Ríkisendurskoðun ætlar ekki að draga til baka fyrri niðurstöðu um Hauck & Afhäuser

Rík­is­end­ur­skoðun segir að gögn sem for­svars­menn Eglu lögðu fyrir stofn­un­ina árið 2006 hafi verið lögð fram í blekk­ing­ar­skyni. Hún hafi ekki haft aðgang að þeim tölvu­póstum sem sanni blekk­ing­una á bak­við aðkomu Hauck & Afhäuser að kaupum á Bún­að­ar­bank­anum.

Skýrsla rannsóknarnefndar Alþingis um aðkomu þýska bankans Hauck & Aufhäuser að kaupunum á hlut í Búnaðarbankanum kom út á miðvikudag. Þar er sýnt fram á að sú aðkoma var blekking.
Skýrsla rann­sókn­ar­nefndar Alþingis um aðkomu þýska bank­ans Hauck & Auf­häuser að kaup­unum á hlut í Bún­að­ar­bank­anum kom út á mið­viku­dag. Þar er sýnt fram á að sú aðkoma var blekk­ing. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Rík­is­end­ur­skoðun seg­ist fagna nið­ur­stöðu rann­sókn­ar­nefndar Alþingis um þátt­töku Hauck & Afhäuser í einka­væð­ingu Bún­að­ar­banka Íslands hf. árið 2003 og þeirri „skýru nið­ur­stöðu sem rann­sókn­ar­nefndin kemst að í krafti aðgangs nefnd­ar­innar að tölvu­póstum sem sýndu fram á mik­il­væga bak­samn­inga sem haldið hafði verið leyndum. Það er alltaf mik­il­vægt að draga sann­leik­ann fram.“

Rík­is­end­ur­skoðun telur hins vegar ekki ástæðu til að draga til baka það mat sitt að gögn þau sem Vil­hjálmur Bjarna­son afhenti Rík­is­end­ur­skoðun 22. febr­úar 2006 séu ekki nægj­an­leg til að sýna fram að Hauck & Afhäuser hafi ekki verið raun­veru­legur eig­andi Eglu hf., eign­ar­halds­fé­lags sem mynd­aði stóran hluta S-hóps­ins svo­kall­aða sem keypti 45,8 pró­sent hlut rík­is­ins í Bún­að­ar­bank­anum.

„Breytir engu í því sam­bandi þó rann­sókn­ar­nefnd Alþingis hafi nú á grund­velli upp­lýs­inga og ábend­inga, sem bár­ust umboðs­manni Alþingis sl. vor undir þeim for­merkjum að hann gætti trún­aðar um upp­runa þeirra, og á grund­velli víð­tækra rann­sókn­ar­heim­ilda sinna, sýnt fram á að gögn þau sem Rík­is­end­ur­skoðun afl­aði sér í kjöl­farið hafi verið lögð fram í blekk­ing­ar­skyni.“

Þetta kemur fram í ítar­legu svari Rík­is­end­ur­skoð­unar við fyr­ir­spurn Kjarnans.

[adspot]

Allt saman blekking

Á mið­viku­dag opin­ber­aði rann­sókn­ar­nefnd Alþingis, með til­vísun í gögn, að aðkoma Hauck & Auf­häuser að kaup­unum á hlut í Bún­að­ar­bank­anum var blekk­ing. Kaupþing fjár­magn­aði kaupin að fullu, að baki lágu bak­samn­ingar sem tryggðu Hauck & Auf­häuser fullt skað­leysi, þókn­ana­tekjur upp á eina milljón evra fyrir að leppa og sölu­rétt á hlutnum eftir að þýski lepp­bank­inn var búinn að halda á honum í tæp tvö ár.

Til við­bótar lá fyrir í flétt­unni, sem var kölluð „Puffin“, að hagn­aður sem gæti skap­ast hjá réttum eig­enda hlut­ar­ins, aflands­fé­lags­ins Welling & Partners á Bresku Jóm­frú­areyj­unum, myndi renna til tveggja aflands­fé­laga, skráð á sama stað, sem áttu það félag. Annað þeirra aflands­fé­laga var Marine Choice Limited, í eigu Ólafs Ólafs­sonar. Hann hagn­að­ist um 3,8 millj­arða króna á flétt­unni. Hitt félagið, Dekhill Advisors, hagn­að­ist um 2,9 millj­arða króna á „Puffin“ verk­efn­inu. Á núvirði er sam­eig­in­legur hagn­aður félag­anna tveggja rúm­lega 11 millj­arðar krona.

Eign­ar­hald Dekhill hefur ekki verið stað­fest. Rann­sókn­ar­nefndin ályktar að aðilar tengdir Kaup­þingi hafi verið eig­endur þess. Þar er án nokk­urs vafa átt við að mögu­lega hafi stjórn­endur Kaup­þings átt það. En það hefur líka öðrum mögu­leikum verið velt upp. Í samn­ings­drögum sem birt eru í skýrsl­unni kom á einum tíma til greina að Ágúst og Lýður Guð­munds­synir myndu eiga hlut í Welling & Partners.

Ríkisendurskoðun vann tvær skýrslur

Rík­is­end­ur­skoðun vann skýrslu árið 2003 um einka­væð­ingu rík­is­eigna þar sem nið­ur­staðan var sú að „íslensk stjórn­völd hafi í meg­in­at­riðum náð helstu mark­miðum sínum með einka­væð­ingu rík­is­fyr­ir­tækja á árunum 1998-2003.“ Engar athuga­semdir voru gerðar við það hvernig staðið var að sölu á hlut rík­is­ins í Bún­að­ar­bank­anum til S-hóps­ins í skýrsl­unni.

[links]Í mars 2006 vann Rík­is­end­ur­skoðun síðan átta blað­síðna sam­an­tekt í kjöl­far fundar Vil­hjálms Bjarna­sonar, núver­andi þing­manns Sjálf­stæð­is­flokks­ins, þar sem hann lagði fram nýjar upp­lýs­ingar um söl­una á Bún­að­ar­bank­anum til S-hóps­ins. Vil­hjálmur hefur lengi verið þeirrar skoð­unar, og taldi sig hafa gögn til að sýna fram á, að aðkoma Hauck & Auf­häuser hafi aldrei verið raun­veru­legur eig­andi að hlut í Bún­að­ar­bank­anum.

Nið­ur­staða Rík­is­end­ur­skoð­unar var sú að ekk­ert sem lagt hafi verið fram í mál­inu hafi stutt víð­tækar álykt­anir Vil­hjálms. „Þvert á móti þykja liggja óyggj­andi upp­lýs­ingar og gögn um hið gagn­stæða,“ segir í skýrslu hennar.

Því hefur Rík­is­end­ur­skoðun tví­vegis sent frá sér skýrslu eða sam­an­tekt þar sem stofn­unin vottar að ekk­ert athuga­vert hafi verið við söl­una á 45,8 pró­sent hlut rík­is­ins í Bún­að­ar­bank­anum til S-hóps­ins og að aðkoma Hauck & Auf­häuser hafi alls ekki verið tor­tryggi­leg.

Tölvupóstar ekki aðgengilegir fyrr en eftir 2010

Kjarninn beindi fyr­ir­spurnum til stofn­un­ar­innar í kjöl­far birt­ingar á skýrslu rann­sókn­ar­nefnd­ar­innar, sem sýndi með óyggj­andi hætti að álykt­anir Vil­hjálms Bjarna­sonar á sínum tíma hefðu verið á rökum reistar, og spurði hvort Rík­is­end­ur­skoðun hefði í hyggju að draga til baka fyrri nið­ur­stöðu sína. Enn fremur var spurt hvor Rík­is­end­ur­skoðun myndi bregð­ast við með ein­hverjum öðrum hætti í ljósi þess að nið­ur­staða stofn­un­ar­innar hafi verið hrakin.

Í svari Rík­is­end­ur­skoð­unar segir að það sé alltaf mik­il­vægt að draga sann­leik­ann fram og þess vegna fagni hún skýrslu rann­sókn­ar­nefnd­ar­innar.

Í svar­inu er hins vegar bent á að þeir tölvu­póstar sem rann­sókn­ar­nefndin byggir nið­ur­stöðu sína á hafi ekki verið aðgengi­legir fyrr en eftir 12. apríl 2010., þegar skýrsla rann­sókn­arnendar Alþingis um banka­hrunið kom út. Auk þess séu þeir ekki gögn sem Rík­is­end­ur­skoðun geti kraf­ist í störfum sínum. „Lög­bundið hlut­verk stofn­un­ar­innar tak­markast við end­ur­skoðun reikn­inga rík­is­ins og eft­ir­lit með fjár­reiðum þess. Rann­sókn­ar­heim­ildir hennar tak­markast á sama hátt við þetta hlut­verk hennar og ná því aðeins til rík­is­að­ila. Um tak­mark­aðar rann­sókn­ar­heim­ildir stofn­un­ar­innar er í þessu sam­bandi hægt að benda á að í bréfi umboðs­manns Alþingis til stjórn­sýslu og eft­ir­lits­nefndar Alþingis frá 19. maí sl. kemur skýrt fram að hann teldi ljóst að hvorki lög­bundnar starfs­heim­ildir emb­ættis hans né Rík­is­end­ur­skoð­unar dygðu til að afla þeirra gagna er þær upp­lýs­ingar, sem hann hefði fengið, vís­uðu til og jafn­framt, eftir því sem þörf krefði, til að afla upp­lýs­inga og skýr­inga hjá fyr­ir­svars­mönnum þeirra lög­að­ila sem kæmu við sögu í mál­inu.“

Hafði ekki möguleika á að upplýsa um blekkingar

Rík­is­end­ur­skoðun seg­ist ekki telja ástæðu til að draga til baka það mat sitt að gögn þau sem Vil­hjálmur Bjarna­son afhenti Rík­is­end­ur­skoðun 22. febr­úar 2006 séu ekki nægj­an­leg til að sýna fram að Hauck & Afhäuser hafi ekki verið raun­veru­legur eig­andi Eglu hf. „Breytir engu í því sam­bandi þó rann­sókn­ar­nefnd Alþingis hafi nú á grund­velli upp­lýs­inga og ábend­inga, sem bár­ust umboðs­manni Alþingis sl. vor undir þeim for­merkjum að hann gætti trún­aðar um upp­runa þeirra, og á grund­velli víð­tækra rann­sókn­ar­heim­ilda sinna, sýnt fram á að gögn þau sem Rík­is­end­ur­skoðun afl­aði sér í kjöl­farið hafi verið lögð fram í blekk­ing­ar­skyni.“

Á fund­inum með Rík­is­end­ur­skoðun hafi Vil­hjálmur gert grein fyrir þeirri skoðun sinni að þar sem ekki væri hægt að lesa það úr árs­reikn­ingi Hauck & Afhäuser fyrir árið 2003 væri úti­lokað að þýski bank­inn hefði verið eig­andi að helm­ings­hlut í Eglu hf. Þá hefði bank­inn ekki virt sam­ræmdar reikn­ings­skila­reglur Evr­ópu­sam­bands­ins sem kveða á um að færa eigi eign­ar­hluti í félögum á borð við Eglu hf. sam­kvæmt s.k. hlut­deild­ar­að­ferð. Að auki sagð­ist hann hafa upp­lýs­ingar um það bank­inn hafi ekki kynnt við­eig­andi eft­ir­lits­að­ilum í Þýska­landi um fjár­fest­ingu sína í Eglu hf. og búa yfir frek­ari upp­lýs­ingum um málið, en þar sem þær væri óform­legar myndi hann ekki gera nánar grein fyrir þeim.

Í svari Rík­is­end­ur­skoð­unar segir: „Rík­is­end­ur­skoðun taldi sig ekki búa ekki yfir nægi­legri sér­fræði­þekk­ingu á þessu sviði og því treysti hún sér ekki til að taka strax afstöðu til þess­arar nið­ur­stöðu Vil­hjálms. Þess í stað óskaði hún eftir sér­fræði­á­liti Stefáns Svav­ars­sonar, end­ur­skoð­anda og þáver­andi dós­ents við HR á því hvort unnt væri að full­yrða með hlið­sjón af upp­lýs­ingum í reikn­ings­skilum þýska bank­ans að hann hafi ekki fjár­fest í Eglu hf. Nið­ur­staða Stefáns var á þá lund að hvorki væri með því að rýna ein­ungis reikn­ings­skil þýska bank­ans hægt að full­yrða að hann hafi fjár­fest eða ekki fjár­fest í Eglu hf á árinu 2003. Í áliti sínu tekur Stefán jafn­framt fram að í reikn­ings­skilum bank­ans komi fram að hann skrái fjár­fest­ingu í verð­bréfum á kostn­að­ar­verði eða miðað við regl­una um kostn­að­ar­verð eða mark­aðs­verð, hvort sem lægra reyn­ist. Þær reglur eru í sam­ræmi við ákvæði 4. til­skip­unar ESB um skrán­ingu lang­tíma- og skamm­tíma­fjár­fest­ingar í verð­bréfum.

Jafn­framt freist­aði stofn­unin þess að afla frek­ari gagna í því skyni að varpa skýr­ara ljósi á aðkomu Hauck & Afhäuser að kaup­unum. Því var fundað með Guðmundi Hjalta­syni, þáver­andi fram­kvæmda­stjóra Eglu hf og Kristni Hall­gríms­syni, lög­fræð­ingi Eglu hf hinn 24. febr­úar 2006 og afhentu þeir Rík­is­end­ur­skoðun marg­vís­leg gögn um Eglu og aðild þýska bank­ans að Eglu hf. Einnig var óskað eftir stað­fest­ingu, frá Hauck & Afhäuser, á kaupum þeirra á hluta­bréfum í Eglu hf og að bank­inn hafi fært þær í bók­haldi sínu í sam­ræmi við þýsk lög og reglur.[...]Án upp­lýs­inga um þá bak­samn­inga sem rann­sókn­ar­nefnd Alþingis upp­lýsti um í síð­ustu viku hafði Rík­is­end­ur­skoðun ekki mögu­leika á því árið 2006 að upp­lýsa um blekk­ingu og svik.“

Segist standa við fyrri gagnrýni

Varðandi skýrslu Rík­is­end­ur­skoð­unar um einka­væð­ingu helstu rík­is­fyr­ir­tækja, sem birt var í des­em­ber 2003, segir stofn­unin að meg­in­mark­mið hennar hafi verið að meta hvort meg­in­mark­mið stjórn­valda með einka­væð­ingu hafi náðst, hvort Fram­kvæmda­nefnd um einka­væð­ingu hafi fylgt settum reglum, og reynt að leggja mat á tíma­setn­ingu sölu, verð­mæta­mat, sölu­að­ferð, mat á kauptil­boðum og kostn­aði og tekjum við einka­væð­ingu. „Sú gagn­rýni sem þar kemur fram bein­ist að rík­inu sem selj­anda en ekki var reynt að leggja mat á kaup­endur í þeirri skýrslu. Sú gagn­rýni sem kom þar fram um einka­væð­ingu Bún­að­ar­bank­ans stendur enn.“

Í þeirri skýrslu er það dregið í efa að mark­miði rík­is­ins um að ríkið fái hámarks­verð fyrir eign sína í Lands­banka Íslands og Bún­að­ar­bank­anum hafi náðst, gengi Bún­að­ar­bank­ans hafi verið óveru­lega hærra en almennt gengi á mark­aðnum, þrátt fyrir að um sölu á ráð­andi hlut væri að ræða. Þá var það gagn­rýnt að aug­lýsa ráð­andi hlut til sölu á báðum bönkum á sama tíma og sér­stak­lega var tíma­setn­ing á sölu á Bún­að­ar­bank­anum gagn­rýnd, þar sem gengi á bréfum í bank­anum höfðu lækkað veru­lega í árs­byrjun 2001. Einnig var gagn­rýnt að í ljósi áherslu á fjár­hags­lega getu kaup­enda hafi hvorki Lands­bank­inn né Bún­að­ar­bank­inn verið stað­greiddir.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Hauck&Aufhäuser

Leiðari

Þórður Snær Júlíusson

Að opin­bera Ólaf Ólafsson er ekki mann­rétt­inda­brot

Ólafur Ólafsson hefur kært íslenska ríkið til Mann­rétt­inda­dóm­stóls Evrópu fyrir það að Alþingi hafi skipað rann­sókn­ar­nefnd til að upp­lýsa um það að hann og sam­starfs­fé­lagar hans hefðu beitt ríkið, fjöl­miðla og almenn­ing allan stór­kost­legum blekk­ingum til að kom­ast yfir Bún­að­ar­bank­ann árið 2003. Ólafur telur að vinna og birt­ing á skýrslu rann­sókn­ar­nefnd­ar­innar hafi vegið „alvar­lega að orð­spori og æru“ hans án...

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár