„Bilið virðist oft ómögulegt að brúa“

Dag­skrár­stjóri tón­listar í Hörpu segir eðli­legt að það þurfi að borga með menn­ingu. Hörpu hefur verið fært það verk­efni að laga mark­aðs­brest án þess að fá til þess sér­staka styrki.

Melkorka Ólafsdóttir er dagskrárstjóri Tónlistar í Hörpu. Hún segir það ganga misjafnlega vel að standa fyrir „brjálæðislega kostnaðarsömum“ viðburðum. Aðrar leiðir eru þess vegna farnar svo Harpa geti sinnt hlutverki sínu.
Melkorka Ólafs­dóttir er dag­skrár­stjóri Tón­listar í Hörpu. Hún segir það ganga mis­jafn­lega vel að standa fyrir „brjál­æð­is­lega kostn­að­ar­sömum“ við­burðum. Aðrar leiðir eru þess vegna farnar svo Harpa geti sinnt hlut­verki sínu. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Það er ástæða til þess að rök­ræða hvort það sé hægt að halda eig­enda­stefnu Hörpu til streitu segir Melkorka Ólafs­dóttir, dag­skrár­stjóri tón­listar í Hörpu. Hún segir bilið í rekstr­inum oft nær ómögu­legt að brúa.

Kjarninn ræddi við Melkorku um dag­skrá Hörpu í sumar og rekstur húss­ins.

Tónleika- og ráð­stefnu­húsið Harpa er í eigu íslenska rík­is­ins og Reykja­vík­ur­borgar og um rekstur húss­ins gildir sér­stök eig­enda­stefna. Íslenska ríkið ræður 54 pró­sent hlut og Reykja­vík 46 pró­sent.

Í eig­enda­stefn­unni segir að húsið eigi að bjóða upp á fjöl­breytt úrval við­burða og auka á menn­ing­ar­lífið. Kjarninn greindi frá því í ágúst í fyrra að frá því að Harpa hóf starf­semi 2011 hefur rekstr­ar­fé­lag hennar tapað 2,5 millj­örðum króna. Til við­bótar hafa ríki og borg greitt fimm millj­arða króna í fjár­magns­kostnað og 500 millj­ónir í rekstr­ar­styrki. Samtímis hefur fjöldi tón­leika­gesta í Hörpu marg­fald­ast.

Spurð hvað ráði því hvaða verk­efni Harpa ræðst bein­línis í segir Melkorka þau verk­efni í raun vera afar fá því Harpa fari ekki í sam­keppni við við­skipta­vini sína. Mark­miðið sé þó alltaf að ljúka verk­efn­unum þannig að þau skili hagn­aði. Það sé hins vegar hlut­verk Hörpu að standa fyrir við­burðum sem aðrir á mark­aði treysti sér ekki til að standa fyrir. Harpa eigi að bæta upp fyrir þann mark­aðs­brest.

„Það hafa verið við­burðir eins og ball­ett­sýn­ing­arnar og heim­sóknir stóru erlendu hljóm­sveit­anna eins og Berlín­ar­fíl­harm­on­í­unnar og Gauta­borg­ars­in­fón­í­unnar. Það er ein kamm­er­tón­list­ar­há­tíð á ári, Midsum­mer Music, sem Víkingur Heiðar stýrir. Þetta eru allt við­burðir sem eng­inn annar tón­leika­hald­ari treystir sér í að standa að en þurfa þó að vera í fram­boðs­flór­unni ef við yfir­leitt viljum að hún end­ur­spegli raun­veru­leik­ann og umheim­inn.“

[adspot]

Melkorka segir að með til­komu Hörpu hafi opn­ast dyr út í hinn stóra heim og tæki­færi til að kynna hvað sé í gangi fyrir utan land­stein­ana. Jafn­framt sýni erlendar hljóm­sveitir og tón­list­ar­menn gíf­ur­legan áhuga á að spila í Hörpu, Eldborg sé þegar talin með eft­ir­sótt­ari tón­leika­stöðum í heimi.

„Tón­leika­hald­ar­arnir sem við eigum í mestum við­skiptum við hafa verið mjög öfl­ugir í að flytja inn popptón­list­ar­menn, svo sá bransi rúllar nokkuð vel. En það að flytja inn 100 manna hljóm­sveit er brjál­æð­is­lega kostn­að­ar­samt og flókið. Samt þurfum við að finna leiðir til þess að gera það án þess að tapa á því.“

Hvernig hefur það gengið?

„Mis­jafn­lega vel. Það er alveg ástæða til þess að rök­ræða það hvort það sé hægt að halda því áfram,“ svarar Melkorka. „Það eru ýmsar leiðir farnar og færar en það er á hreinu að Harpa þarf aukið fjár­fram­lag til þess að geta við­haldið breidd í tón­leika­fram­boði. Við höfum reynt að horfa til sam­starfs og sam­vinnu, til dæmis með því að styðja við þá sem eru að skipu­leggja tón­leik­araðir og hátíðir sem myndu ann­ars ekki ger­ast, eins og til dæmis Jazzhátíð Reykja­víkur.“

Til þess að geta fram­fylgt þess­ari eig­enda­stefnu, fær Harpa ein­hvers­konar styrki frá rík­inu eða opin­berum sjóðum?

„Það er rosa­lega lítið. Við höfum verið með nokkra styrkt­ar­að­ila sem hafa verið fyr­ir­tæki. Fyrir San Fransisco-ball­ett­inn fengum við líka góðan styrk frá mennta­mála­ráðu­neyt­inu, en slíka styrki þarf að sækja fyrir hvert ár,“ segir Melkorka.

Erlendis er allur gangur á því hvernig styrk­veit­ingar fara fram til menn­ing­ar­stofn­ana. Sums staðar eru heilu mark­aðs­deild­irnar sem hafa það eina hlut­verk að sækja styrki fyrir rekstri tón­list­ar­húsa.

„Það á til dæmis við hjá kol­legum okkar í South Bank Center í London. Þar var mér sagt að fram­lag hins opin­bera væri að minnka og aukast í einka­geir­anum, en að á sama tíma vilji einka­geir­inn vera minna sýni­legur út á við. Það þykir ekki töff að vera með stóra aug­lýs­inga­borða eða flíka nafn­inu sínu of mikið. Heldur koma styrkt­ar­að­il­arnir inn í sköp­un­ar­ferlið eða fá að taka þátt í við­burð­inum á ein­hvern annan hátt. Það breyt­ast aðeins áhersl­urnar.“

„Þetta er ein af stóru áskor­unum okkar. Af því að eins og allir vita þá er Harpa rekin með tapi. Mér líður þess vegna eins og ég sé að reyna að brúa eitt­hvað bil sem er bara ómögu­legt eins og staðan er í dag,“ segir Melkorka og bætir við að hér tak­ist á spurn­ingar um hug­sjónir og gildi; hvernig sam­fé­lag viljum við búa í og hvers konar menn­ing­ar­líf viljum við?

„Það er líka spurn­ing hvort það hafi verið vit­laust sett upp að ætla Hörpu að standa undir sér. Að mínu mati er eðli­legt að það þurfi að borga með menn­ingu, það þarf að fjár­festa í henni, okkur öllum til heilla.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár