Helgi Hrafn lagður í einelti í æsku - gagnrýnir meirihluta fyrir eineltisumræðu

Helgi Hrafn Gunn­ars­son, þing­maður Pírata, segir það vekja upp til­finn­ingar sem hann kunni ekki við að lýsa þegar fólk gjald­felli hug­takið ein­elti eins og þing­menn meiri­hlut­ans hafi gert. Hann hafi sjálfur verið lagður í ein­elti í æsku og þolendur ein­eltis ræði slíkt ekki af hrein­skilni án þess að fyrr eða síðar falli tár.

Helgi Hrafn tal­aði um þetta í liðnum störf þings­ins á Alþingi í dag. Á undan honum, og í gær líka, höfðu þing­menn Fram­sókn­ar­flokks­ins komið fram og talað um að Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son for­sæt­is­ráð­herra væri lagður í ein­elti og Einar K. Guð­finns­son þing­for­seti sömu­leiðis.

„Per­sónu­hat­rið og ein­eltið hér inn­an­húss núna það er svo mun verra heldur en var hér á síð­asta kjör­tíma­bili og það náði nýjum hæðum þá,“ sagði Vigdís Hauks­dóttir þing­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins í þing­inu í gær.

Elsa Lára Arn­ar­dóttir, þing­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins hélt þessum umræðum áfram í þing­inu í dag. Hún sagð­ist hafa þurft að takast á við ein­elt­is­mál sem grunn­skóla­kenn­ari og myndi aldrei sam­þykkja ein­elti, hvort sem er á þingi eða ann­ars staðar. Hér má horfa á ræðu Elsu.

Helgi Hrafn kom upp í pontu og svar­aði umræð­unni um ein­elti. „Hér hafa ein­staka þing­menn meiri­hlut­ans hátt­virtir ýjað að því að for­sæt­is­ráð­herra lands­ins og for­seti þings­ins séu lagðir í ein­elti. Einelti verður ekki rætt ítar­lega af þolendum þess af hrein­skilni án þess að fyrr eða síðar falli tár. Sem þol­andi ein­eltis í æsku vekur það til­finn­ingar sem ég kann ekki við að lýsa hér of hrein­skiln­is­lega þegar fólk gjald­fellir hug­takið ein­elti með þeim hætti sem hér hefur verið gert.“ Það að ráða­menn teldu sig lagða í ein­elti segði honum tvennt. „Eitt: að þeir skilji ekki hug­takið ein­elti. Og tvö: að þeir skilji ekki eðli sinnar eigin stöðu, for­rétt­inda sinna og valds.“ Horfa má á ræðu Helga Hrafns hér að neðan.

Fleiri þing­menn komu í pontu og sögðu þing­menn meiri­hlut­ans gjald­fella hug­takið ein­elti. „Við vitum um mjög marga sem eiga veru­lega um sárt að binda vegna þess að þeir hafa orðið fyrir ein­elti,“ sagði Bjarkey Olsen Gunn­ars­dóttir, þing­maður VG, og sagði fólk sem starfað hefði í skólum eiga að vita betur en að leggja gagn­rýni á störf valda­manna að jöfnu við ein­elti.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár