Aldrei meiri munur á væntingum karla og kvenna til efnahags- og atvinnuástands

Vænt­inga­vísi­tala Gallup í júní var 107,1 stig, hún hækk­aði um tæp 24 stig milli mán­aða og hefur ekki mælst hærri síðan í jan­úar 2008. Þegar vísi­talan fer yfir 100 segir það að fleiri neyt­endur séu bjart­sýnir en svart­sýnir á stöðu og horfur í efna­hags- og atvinnu­málum. Frá upp­hafi árs­ins 2008 hefur vísi­talan aðeins mælst yfir 100 stigum í fjóra mán­uði. Allar und­ir­vísi­tölur hækka milli mæl­inga hjá Gallup, mat á efna­hags­líf­inu hækkar um 34 stig og mat á atvinnu­á­stand­inu um rúm 29 stig. Þá hækka vænt­ingar til aðstæðna eftir hálft ár um rúm 28 stig og mat á núver­andi ástandi um 17 stig.

Þegar vænt­inga­vísi­talan er greind eftir kyni kemur í ljós að hækk­unin á sér aðeins stað í við­horfi karla, en lítil breyt­ing er á við­horfum kvenna.

Greining Íslands­banka vekur líka athygli á þessu, að vænt­ingar karl­manna og þeirra sem hafa hæstar tekjur aukast mest. Vænt­inga­vísi­talan fyrir karl­menn mælist 131,4 stig, og hækkar um 43,6 stig milli mán­aða, en hjá konum mælist vísi­talan 75,9 stig og lækkar um 2,8 stig milli mán­aða.

Munurinn á vænt­ingum karla og kvenna til efna­hags- og atvinnu­á­stands­ins hefur aldrei verið meiri frá upp­hafi mæl­inga árið 2001. „Er það áleitin spurn­ing af hverju þessi mikli munur er og hvers vegna hann eykst svo mikið nú sem raun ber vitni,“ segir í grein­ingu Íslands­banka. Munurinn lýsi eflaust aðstöðumun kynj­anna, svo sem launa­mun. Það kunni einnig að skipta máli núna, og skýri að hluta til af hverju svona mikil breyt­ing verður á milli kynj­anna, að hjúkr­un­ar­fræð­ingar séu enn í kjara­deilum við ríkið. Hjúkr­un­ar­fræð­ingar séu að stærstum hluta konur. Þá telur grein­ing Íslands­banka að það gæti verið að mun­ur­inn eigi sér töl­fræði­legar skýr­ingar, þar sem úrtaks­hóp­ur­inn geti valdið flökti milli mán­aða.

Vænt­inga­vísi­talan hækkar fyrir alla tekju­hópa, en mest fyrir þá sem eru með hæstu tekj­urnar. Hjá þeim tekju­hæstu er vísi­talan nú 132,9 stig en hjá þeim tekju­lægstu er hún 79,6.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár