Milljarða kannabisiðnaður verður til - Ör vöxtur

Hags­muna­sam­tök kanna­bis­fram­leið­enda og sölu­að­ila í Banda­ríkj­unum, National Cannabis Industry Association (NCIA) eru ört vax­andi sam­tök í Banda­ríkj­unum og hafa þau nú yfir­bragð hefð­bund­inna hags­muna­sam­tak­anna á banda­rískum vinnu­mark­aði.

Þau hafa lagt sig fram um að vinna náið með Washington ríki sér­stak­lega, frá því að kanna­bis- og maríjúana­neysla, í litlum skömmtum og undir reglu­verki, varð lög­leg í nóv­em­ber 2012. Nýjustu spár Washington ríkis gera ráð fyrir að það fái tæp­lega tutt­ugu millj­ónir Banda­ríkja­dala í skatt­tekjur vegna kanna­bis­iðn­að­ar­ins á síð­asta fjórð­ungi þessa árs, eða sem nemur um tveimur og hálfum millj­arði króna. Það er tæp­lega fjór­falt meira en var í byrjun árs­ins.

Síðan lög­leið­ingin gekk í gegn hefur mikið vatn runnið og risa­vax­inn iðn­aður er nú að verða til, með ört vax­andi tekjum fyrir Washington ríki og fyr­ir­tæki innan hans. Á skömmum tímar hafa stór og smá fyr­ir­tæki orðið til, þar sem mark­hóp­ur­inn er full­orðið fólk, 21 árs og eldri. Fram­leiddir eru neyslu­skammtar til þess að reykja, kökur til að borða og vökvar til að drekka, svo eitt­hvað sé nefnt.

Opinber og svartur markaður - Vaxandi samkeppni


Reglu­verkið með iðn­að­inum er strangt og skattar eru háir miðað marga aðra geira í rík­inu, en 25 pró­sent skattur er lagður á alla virð­is­keðj­una í iðn­að­inum, frá fram­leiðslu til sölu, og er skatt­tekj­unum síðan meðal ann­ars eytt í for­varna­starf. Þetta hefur leitt til þess að verð á lög­lega keyptu maríjúana var mun hærra en á svarta mark­aðnum í upp­hafi, en eftir því sem tím­inn hefur liðið og reynsla kom­ist á fram­leiðslu og sölu, og hag­ræði auk­ist, þá hefur verð­mun­ur­inn minnkað mikið. Samkvæmt upp­lýs­ingum sem Time tók saman í apríl á þessu ári hafði verðið á hverju grammi af lög­lega seldu maríjúana lækkað úr 30 Banda­ríkja­dölum, um 3.800 krónum, í tólf dali á innan við ári, eða sem nemur um 1.500 krónum.

Þrátt fyrir að fram­leiðsla og sala á kanna­bis­efnum sé lög­leg í Washington hefur svarti mark­að­ur­inn ekki koðnað niður. Síður en svo. Fyr­ir­tæki sem hafa orðið til og sinna fram­leiðslu og sölu á kanna­bis­vörum beina því nú til NCIA að þrýsta á stjórn­völd að taka úr umferð ólög­legan svartan markað með kanna­bis­efni, svipað og fyr­ir­tæki í öðrum geirum gera til þess að sporna við svartri atvinnu­starf­semi. Rökin eru þau sömu og í mörgum öðrum geirum; hið opin­bera er að missa skatt­tekjur, fyr­ir­tæki sem starfa sam­kvæmt lögum skað­ast og sam­keppn­is­hæfni geirans minnkar til lengdar.

Þessi tví­skipti mark­aður hins lög­lega og ólölega veldur yfir­völdum áhyggjum, enda var eitt meg­in­mark­miðið með lög­leið­ing­unni að bæla niður svartan markað með kanna­bis­efni, sem var nátengdur skipu­lagðri glæp­a­starf­semi. Svo virð­ist sem tölu­vert sé í það enn að það mark­mið náist.

Milljarða geiri orðinn til


Washington ríki, í takt við lof­orð sem gefin voru þegar hin fræga lög­leið­ing á fram­leiðslu, sölu og neyslu kanna­bis varð að veru­leika, hefur lagt mikið upp úr því að safna saman hag­tölum til að fylgj­ast með iðn­að­inum verða til. Spár rík­is­ins gera nú ráð fyrir að kanna­bis­iðn­að­ur­inn muni skila tæp­lega tutt­ugu millj­ónum Banda­ríkja­dala í skatt­tekjur á fjórða árs­fjórð­ungi þessa árs, eins og áður segir. Sé miðað við að skatt­tekjur séu um 25 pró­sent af heild­ar­um­fangi, eins og lagt er upp með, þá verða heild­ar­tekjur vegna hins lög­lega kanna­bis­iðn­aðar um 80 millj­ónir Banda­ríkja­dala á síð­ustu þremur mán­uðum árs­ins. Á árs­grund­velli eru það um 320 millj­ónir Banda­ríkja­dala, eða sem nemur rúm­lega 40 millj­örðum króna.

[caption id="attachment_37745" align="alignnone" width="682"] Hér má sjá mynd sem sýnir þróun tekna Washington ríkis vegna hins lög­lega kanna­bis­iðn­aðar í rík­inu, eins og hún birt­ist í spá rík­is­ins. Mynd: Vefur Washington ríkis.[/caption]

Hér má sjá mynd sem sýnir þróun tekna Washington ríkis vegna hins löglega kannabisiðnaðar í ríkinu, eins og hún birtist í spá ríkisins. Mynd: Vefur Washington ríkis.
Hér má sjá mynd sem sýnir þróun tekna Washington ríkis vegna hins lög­lega kanna­bis­iðn­aðar í rík­inu, eins og hún birt­ist í spá rík­is­ins. Mynd: Vefur Washington ríkis.

Þróunin hinnan Washington ríkis ein­kenn­ist af örum vexti, sam­kvæmt umfjöllun Forbes, en í mars síð­ast­liðnum var full­yrt í blað­inu að mörg hund­ruð millj­ónir Banda­ríkja­dala væru nú að sog­ast inn í hinn lög­lega kanna­bis­iðn­aða. Veðmálið þar er nokkuð skýrt; mik­ill vöxtur framundan og ef lög­leið­ingin breið­ist hratt út um öll Banda­ríkin þá munu fyr­ir­tækin í Washington ríki - og raunar Colorado einnig - búa við sam­keppn­is­for­skot á risa­vöxnum mark­aði.


Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár