Vextir lækkaðir um 0,25 prósentustig

Stýri­vextir Seðla­bank­ans eru nú 7,25% eftir lækkun sem pen­inga­stefnu­nefnd bank­ans birti í morgun. Allir nefnd­ar­menn voru sam­mála ákvörð­un­inni.

Ásgeir Jónsson
Ásgeir Jónsson Pen­inga­stefnu­nefnd, sem seðla­banka­stjóri fer fyrir, birti vaxta­á­kvörðun sína í morgun. Mynd: Golli

Pen­inga­stefnu­nefnd Seðla­banka Íslands hefur ákveðið að lækka vexti bank­ans um 0,25 pró­sentur. Allir nefnd­ar­menn studdu ákvörð­un­ina.

Meg­in­vextir bank­ans, vextir á sjö daga bundnum inn­lánum, verða því 7,25%.

Yfir­lýs­ing pen­inga­stefnu­nefndar var birt rétt í þessu á vef Seðla­bank­ans.

„Verð­bólga var 4,3% í októ­ber og jókst um 0,2 pró­sentur frá mán­uð­inum á undan,“ segir í til­kynn­ing­unni. „Hún hefur hald­ist í um 4% í tæpt ár. Und­ir­liggj­andi verð­bólga sýnir áþekka þróun.“

Í til­kynn­ing­unni kemur fram að hægt hafi á vexti inn­lendrar eft­ir­spurnar í takt við þétt taum­hald pen­inga­stefn­unnar og vís­bend­ingar um við­snún­ing í efna­hags­um­svifum verði æ greini­legri.

„Þar vegur þungt röð áfalla sem hafa skollið á útflutn­ings­greinum“

„Samkvæmt nýbirtri spá Seðla­bank­ans virð­ist spennan í þjóð­ar­bú­inu horfin og útlit er fyrir að það hægi meira á hag­vexti en áður var talið. Þar vegur þungt röð áfalla sem hafa skollið á útflutn­ings­greinum en ekki síður það …

Kjósa
3
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár