Bolsonaro ásakaður um glæpi gegn mannkyni vegna viðbragða sinna við COVID-19

Rekja má dauða um 300 þús­und Bras­il­íu­manna til stefnu for­set­ans í far­aldr­inum. Rík­is­stjórnin huns­aði yfir 100 tölvu­pósta frá Pfizer, leyfði veirunni að breið­ast út meðal frum­byggja og for­set­inn hvatti til fjölda­sam­koma er sjúkra­húsin voru að fyll­ast.

Jair Bolsonaro hefur verið forseti Braslilíu frá árinu 2019.
Jair Bol­son­aro hefur verið for­seti Braslilíu frá árinu 2019. Mynd: EPA

Brasil­ísk þing­nefnd mælir með því að for­set­inn Jair Bol­son­aro verði ákærður fyrir glæpi gegn mann­kyni og full­yrðir að hann hafi vilj­andi látið kór­ónu­veiruna fara um landið óhefta sem varð til þess að hund­ruð þús­unda manna létu lífið. Þannig hafi hann ætlað að ná hjarð­ó­næmi og halda lífi í stærsta hag­kerfi Suður-Ameríku. Í skýrslu nefnd­ar­innar er einnig lagt til að 69 manns til við­bótar, þar á meðal þrír synir Bol­son­aros og margir núver­andi og fyrr­ver­andi emb­ætt­is­menn rík­is­stjórnar hans, verði ákærðir. Skýrslan átti að koma út í dag en New York Times hafði áður fengið hana í hendur og fjallað ítar­lega um nið­ur­stöð­urnar.

[adspot]

Þing­nefndin sem hafði það hlut­verk að rann­saka við­brögð við far­aldr­inum í Brasilíu, komst fyrst að þeirri nið­ur­stöðu að ákæra ætti Bol­son­aro fyrir fjöldamorð og þjóð­ar­morð á frum­byggjum í Amazon. Á þeim slóðum strá­féll fólk úr COVID-19, m.a. vegna þess að sjúkra­húsin urðu uppi­skroppa með súr­efni. Frá þess­ari fyrri nið­ur­stöðu nefnd­ar­innar var greint í mörgum fjöl­miðlum, m.a. New York Times. Viðbrögð nokk­urra brasil­ískra þing­manna voru þau að nefndin hefði gengið of langt og skömmu síðar, rétt áður en birta átti end­an­lega skýrslu skipti nefndin um skoðun, hætti við að leggja til að Bol­son­aro yrði ákærður fyrir fjölda- og þjóð­ar­morð en í stað­inn að hann yrði ákærður fyrir glæpi gegn mann­kyni.

[links]Í nefnd­inni eiga ell­efu þing­menn sæti og sjö þeirra eru and­stæð­ingar for­set­ans. Einn nefnd­ar­manna er sonur Bol­son­aro. Í frétta­skýr­ingu New York Times segir að alls óvíst sé hvort að nið­ur­staðan muni að end­ingu leiða til þess að farið verði að til­mælum hennar og Bol­son­aro ákærður. Nefndin segir að um 300 þús­und manns hafi týnt lífi í far­aldr­inum vegna stefnu for­set­ans sem er um helm­ingur allra sem lát­ist hafa vegna COVID-19.

Gjá hefur mynd­ast milli þjóð­fé­lags­hópa í Brasilíu undir stjórn Bol­son­aro sem tók við völdum árið 2019. Á næsta ári verður kosið á ný og stjórn­mála­skýrendur telja að mögu­lega geti skýrslan, í ljósi skiptra skoð­ana um ágæti for­set­ans, haft eitt­hvað að segja um nið­ur­stöðu kosn­ing­anna.

„Það hefði verið hægt að koma í veg fyrir mörg dauðs­föll,“ hefur New York Times eftir Renan Calheiros, þing­manns­ins sem er aðal­höf­undur skýrsl­unnar. „Ég er per­sónu­lega sann­færður um að hann beri ábyrgð á því að veld­is­vöxtur varð í slátr­un­inni.“ Hann sagði við New York Times í byrjun viku að hann ætti ekki von á öðru en að meiri­hluti nefnd­ar­innar myndi styðja nið­ur­stöð­urnar en til stendur að kjósa um fram­hald máls­ins á þing­inu í næstu viku.

Allt frá upp­hafi far­ald­urs­ins gerði Bol­son­aro lítið úr vand­anum og ógn­inni sem veiran hefði í för með sér. Á sama tíma og flest ríki í heim­inum gripu til harðra sótt­varna­að­gerða og sjúkra­hús í Brasilíu hófu að fyll­ast af alvar­lega veiku fólki, hvatti hann til fjölda­sam­koma og sagði grímur óþarfar. Hann hvatti til notk­unar á lyfjum við með­ferð COVID-sjúk­linga sem ekki höfðu fengið sam­þykki sem slík og í ljós hefur komið að voru gagns­laus. Að auki er hann þekktur and­stæð­ingur bólu­setn­inga og var í fyrstu ekk­ert að ýta undir slíkt hjá þjóð sinni. Rík­is­stjórn dró mán­uðum saman lapp­irnar í því að dreifa bólu­efnum um landið og hundsuðu yfir 100 tölvu­pósta frá lyfja­fyr­ir­tæk­inu Pfizer sem fram­leiðir eitt bólu­efn­anna og var fyrst allra til að fá mark­aðs­leyfi. Í stað­inn fyrir að svara Pfizer kaus rík­is­stjórnin að ofgreiða fyrir ósam­þykkt bólu­efni frá Indlandi. Þeim samn­ingi var þó að end­ingu rift.

Muni skýrslan verða sam­þykkt af meiri­hluta þing­manna mun rík­is­sak­sókn­ari Brasilíu hafa þrjá­tíu daga frest til að ákveða hvort að hann ákæri Bol­son­aro. Neðri deild þings­ins mun svo einnig þurfa að sam­þykkja ákær­urnar, segir í frétta­skýr­ingu New York Times. Þar kemur fram að Bol­son­aro hafi skipað núver­andi rík­is­sak­sókn­ara. Þá skipa stuðn­ings­menn Bol­son­aros enn­fremur neðri deild þings­ins.

Calheiros, sem er þing­maður miðju­flokks í brasil­ísku öld­unga­deild­inni og hefur setið í fleiri ár á þingi, segir að ef neðri deildin sam­þykki ekki ákær­urnar verði leitað ann­arra leiða til að draga for­set­ann til saka. Alþjóða glæpa­dóm­stól­inn í Haag komi þar t.d. til greina.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár