„Jú, ég veit alveg hver staðan er á málunum. Það er langbest að þú talir bara við hann,“ segir Eyþór Arnalds, stjórnarmaður í Thorsil, aðspurður um af hverjum fyrirtækið muni kaupa 87 MW raforku fyrir kísilmálmverksmiðju sína í Helguvík á Reykjanesi. Eyþór veit því hver staðan er á málinu en vill ekki ræða það. Fjallað er um málið í Fréttablaðinu í dag þar sem framkvæmdastjóri Thorsil, Hákon Björnsson, segir: „Við erum búnir að tryggja okkur samning um 87 MW raforku fyrir verksmiðju okkar í Helguvík. Hvaðan það kemur get ég ekki upplýst um á þessu stigi málsins en það upplýsist fljótlega,“ segir Hákon við blaðið en Thorsil hefur hingað til átt í viðræðum við Landsvirkjun um kaup á rafmagni fyrir kísilverksmiðjuna.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.




















































Athugasemdir