Guðlaugur Þór leiðir eftir aðrar tölur – Sigríður Andersen líklega á útleið

Utan­rík­is­ráð­herra er með for­ystu yfir dóms­mála­ráð­herra eftir að búið er að telja yfir þrjú þús­und atkvæði. Þing­flokks­for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins verður að óbreyttu í bar­áttu­sæti en fyrr­ver­andi dóms­mála­ráð­herra á litla mögu­leika á að ná inn á þing.

Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra.
Guð­laugur Þór Þórð­ar­son utan­rík­is­ráð­herra. Mynd: Bára Huld Beck

Guð­laugur Þór Þórð­ar­son utan­rík­is­ráð­herra er í fyrsta sæti í próf­kjöri Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Reykja­vík sam­kvæmt tölum þegar búið er að telja rúm­lega þrjú þús­und atkvæði. Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttir dóms­mála­ráð­herra er í öðru sæti og Diljá Mist Ein­ars­dóttir, aðstoð­ar­maður Guðlaugs Þórs, er í þriðja sæti. Alls munar 101 atkvæðum á Guðlaugi Þór og Áslaugu Örnu í fyrsta sætið sem stendur.

Þing­mað­ur­inn Brynjar Níelsson er í fjórða sæti og Hildur Sverr­is­dóttir, aðstoð­ar­maður ráð­herra og vara­þing­maður, er í fimmta sæti. Birgir Ármanns­son, þing­flokks­for­maður Sjálf­stæð­is­flokks, er í sjötta sæti sam­kvæmt fyrstu tölum.

[adspot]Þar á eftir koma Kjartan Magn­ús­son, fyrr­ver­andi borg­ar­full­trúi, í sjö­unda sæt­inu og í því átt­unda situr Sigríður Andersen, sitj­andi þing­maður og fyrr­ver­andi dóms­mála­ráð­herra.

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn er sem stendur með fimm þing­menn sam­an­lagt í báðum Reykja­vík­ur­kjör­dæm­unum. Samkvæmt nýj­ustu könn­unum getur flokk­ur­inn vænst þess að ná fjórum til fimm þing­mönnum inn í kjör­dæmum höf­uð­borg­ar­innar.

Alls er búið að telja um 3.013 atkvæði af um 7.500 en búist er við að loka­tölur liggi fyrir í nótt.

Fréttin var upp­færð kl. 21:12 eftir að aðrar tölur voru birtar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2021

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár