Sigmundur: Björt framtíð og Píratar ekki aðeins jafnslæm og hinir, heldur verri

Bæði for­sæt­is­ráð­herra og fjár­mála­ráð­herra hafa í morgun tekið þátt í umræðum á Alþingi undir liðnum fund­ar­stjórn for­seta. Und­an­farna rúma viku hafa stjórn­ar­and­stæð­ingar notað þennan lið til að koma á fram­færi óánægju sinni með til­lögu atvinnu­vega­nefndar um að færa virkj­anir í nýt­ing­ar­flokk ramma­á­ætl­unar. Undan þessu kvört­uðu ráð­herr­arnir í dag.

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son for­sæt­is­ráð­herra kom í ræðu­stól og sagði stjórn­ar­and­stöð­una hafa slegið ýmis met í umræðum und­an­far­inna daga. „Þau hafa haldið 783 ræður um fund­ar­stjórn for­seta,“ sagði hann og sagði annað eins aldrei hafa sést áður. Sú nýja póli­tík, sem sumir þing­menn hafi sagst standa fyrir sé þannig farin fyrir lítið. Hann sagði þing­menn Bjartrar fram­tíðar og Pírata hafi reynst ekki aðeins „jafnslæmir og allir hinir, þeir reynd­ust verri.“

Bjarni kom einnig í ræðu­stól og sagði það „óskap­lega dap­ur­legt“ að það þurfi að taka svo mik­inn tíma í að tala um form máls­ins en ekki efni þess. Mikið var gripið fram í fyrir Bjarna og hann end­aði á því að segja „Jæja, haldið bara áfram að tala, ég skal ekki trufla frek­ari ræðu­höld hér um fund­ar­stjórn for­seta. Gjörið svo vel, ræðu­stóll­inn er ykkar.“

Árni Páll Árnason, for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, kom einnig í ræðu­stól og sagð­ist lýsa yfir áhyggjum af „þeirri van­still­ingu sem hefur ein­kennt mál­flutn­ing“ Sig­mundar og Bjarna. Hann sagði þá ein­fald­lega verða að axla ábyrgð á því hvernig þeir hafi lagt málið, breyt­ingar á ramma­á­ætlun, fyrir þingið. „Þeir verða seint kall­aðir miklir frið­ar­höfð­ingjar,“ sagði Katrín Jak­obs­dóttir um Sigmund og Bjarna.

Umræðum um fund­ar­stjórn for­seta er að ljúka í bili, eftir tæp­lega klukku­stundar þing­fund.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár