Óvissa um áhrifin af innflutningsbanni Rússa

Inn­flutn­ings­bann Rússa getur haft umtals­verð áhrif á íslenskt efna­hags­líf. Hins vegar er sam­dráttur í Rúss­landi og ekki úti­lokað að við­skipti hefðu skað­ast hvort sem er.

Efna­hags­leg áhrif af inn­flutn­ings­banni Rússa á íslensk mat­væli geta orðið umtals­verð, en það verður líka að hafa í huga að sam­dráttur ríkir í efna­hags­málum Rúss­lands og kaup­máttur þar fer minnk­andi. Þetta kemur fram í nið­ur­stöðum skýrslu um efna­hags­leg áhrif inn­flutn­ings­banns Rúss­lands á íslenska hags­muni, sem fyr­ir­tækið Reykja­vik Economics vann að beiðni sam­ráðs­hóps stjórn­valda og hags­muna­sam­taka á Rúss­lands­mark­aði.

Mjög erfitt er að meta áhrifin af inn­flutn­ings­bann­inu á íslenskt hag­kerfi. Draga þarf ýmsar álykt­anir um fram­boð og eft­ir­spurn og fjár­hags­leg áhrif á ein­stök fyr­ir­tæki og geira. En að mati skýrslu­höf­unda er hins vegar ljóst að áhrifin á ein­staka byggð­ar­lög eru alvar­leg og að heild­ar­á­hrifin eru tals­verð, sér­stak­lega ef ástandið verður við­var­andi til langrar fram­tíðar. 

Samkvæmt útreikn­ingum skýrslu­höf­unda gætu áhrifin af inn­flutn­ings­bann­inu numið frá tveimur og til rúm­lega átján millj­örðum króna, allt eftir mis­mun­andi sviðs­myndum, en þær líta til næsta árs, næstu þriggja ára og næstu tíu ára. Í þessum ólíku sviðs­myndum er einnig litið til þess hvort vöxtur yrði á inn­flutn­ingi og hversu hátt hlut­fall tap­ast.

Þar kemur líka fram að Ísland, sem lítið og opið hag­kerfi sem treysti mikið á utan­rík­is­við­skipti, verði fyrir nei­kvæð­ari áhrifum af inn­flutn­ings­banni Rússa en flest önnur ríki, vegna þess að útflutn­ingur sjáv­ar­út­vegs­af­urða hafi svo mikil áhrif á íslenskt hag­kerfi og vegna hlut­falls­legs mik­il­vægis Rúss­lands sem mark­aðar fyrir þessar sömu afurðir. Ef Rússar hefðu sett inn­flutn­ings­bann á ein­hverjar aðrar vörur hefði Ísland ekki komið eins illa út.

Rússland hafi verið vax­andi mark­aður fyrir íslenskar vörur lengi og frá því að krónan hrundi árið 2008 og með auknum mak­ríl­veiðum hafi vöxt­ur­inn verið umtals­verður. Makríll er verð­mætasta sjáv­ar­af­urðin sem seld var til Rúss­lands árið 2014, 38% alls verð­mæt­is­ins, á meðan síld er 31% og loðna 16%.

Koma mak­ríls inn í íslenska lög­sögu er ein stærsta ástæða þess að útflutn­ingur til Rúss­lands hefur auk­ist mikið á und­an­förnum árum. Makríll var nán­ast ekk­ert veiddur hér fram til árs­ins 2007 en árið 2014 voru á bil­inu 171 þús­und til 174 þús­und tonn veidd.

Efnahagsástandið hefði kostað viðskipti hvort sem er

Sam­drátt­ur­inn í efna­hags­málum Rúss­lands nam 3,8% á síð­asta ári og talið er að sam­drátt­ur­inn nemi 0,6% á þessu ári. Kaup­máttur þar í landi hefur því minnkað og eft­ir­spurn sömu­leiðis. Það er þó óljóst að hversu miklu leyti þetta hefði áhrif á íslenskar fiskvörur, sem séu ódýrt prótein, segir í skýrsl­unni.

Rússar séu hins vegar að gefa inn­lendum fram­leið­endum tæki­færi með inn­flutn­ings­bann­inu. Inn­lendir fram­leið­endur hafi þannig tæki­færi nú til þess að bæta sínar vörur og auka mark­aðs­hlut­deild. Þá hafa rúss­neskar vörur orðið ódýr­ari en inn­fluttar vegna falls rúblunnar.

Einnig er tekið fram í skýrsl­unni að með styrk­ingu krón­unnar gagn­vart dollar og evru hafi Ísland ekki eins sterka sam­keppn­is­stöðu og áður, auk þess sem ekki sé hægt að úti­loka að geng­is­lækkun rúblunnar gagn­vart krón­unni hefði haft nei­kvæð áhrif á við­skipti milli ríkj­anna hvort sem að gripið hefði verið til við­skipta­þving­ana eða inn­flutn­ings­banns.

Í skýrsl­unni kemur líka fram að það sé of snemmt að segja til um það hvaða áhrif mót­væg­is­að­gerðir stjórn­valda hér á landi muni hafa.

Utanríkisráðuneytið segir það meiriháttar frávik ef samstaða væri rofin

Utan­rík­is­ráðu­neytið hefur einnig tekið saman mat á hags­munum Íslands í mál­inu. Meðal þess sem þar kemur fram er að óvissa ríki um áhrif inn­flutn­ings­banns­ins en það sé full ástæða til að ætla til lengri tíma að sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tæki finni nýja mark­aði fyrir vörur sínar. „Er margt sem bendir til þess að fyr­ir­tækin hafi nú þegar náð að aðlaga sig að þeim breyttu aðstæðum.“ Íslensk stjórn­völd hafi líka fljótt gripið til mót­væg­is­að­gerða til að milda áhrifin.

Þá kemur einnig fram í hags­muna­mat­inu að Ísland hafi sýnt sam­stöðu með ríkjum sem standi gegn alvar­legum brotum á alþjóða­lögum og sátt­málum. Samvinna og sam­leið með vest­rænum lýð­ræð­is­ríkjum hafi verið leið­ar­ljós íslenskrar utan­rík­is­stefnu í ára­tugi og það hafi ítrekað sýnt sig að hags­munum Íslands sé best borgið í hópi og sam­stöðu þess­ara ríkja. „Að rjúfa sam­stöðu vest­rænna ríkja teld­ist meiri­háttar frá­vik frá utan­rík­is­stefn­unni og ábyrgð­ar­hluti sem kall­aði, í besta falli, á gagn­rýnar spurn­ingar vina­þjóða um veg­ferð íslenskra stjórn­valda í alþjóða­sam­skiptum og orð­spor Íslands sem traust banda­lags­ríki myndi bíða hnekki. Hags­muna­gæsla við okkar helstu vina- og banda­lags­þjóðir yrði þyngri í vöfum.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár