Ljónynjurnar hvetja næsta forsætisráðherra til að tryggja stúlkum aðgengi að knattspyrnu

Áhugi á kvennaknatt­spyrnu hefur aldrei verið meiri í heim­inum. Nýkrýndir Evr­ópu­meist­arar Englands skora á Rishi Sunak og Liz Truss að tryggja öllum stúlkum í Bret­landi aðgengi að knatt­spyrnu­æf­ingum í gegnum skóla­starf.

Evrópumeistarar kvenna 2022.
Evr­ópu­meist­arar kvenna 2022. Mynd: EPA

Enska kvenna­lands­liðið í knatt­spyrnu, sem varð Evr­ópu­meist­ari síð­ast­lið­inn sunnu­dag, hefur birt opið bréf til Rishi Sunak og Liz Truss, en þau bít­ast nú um að verða næsti leið­togi Íhalds­flokks­ins í Bret­landi og þar af leið­andi næsti for­sæt­is­ráð­herra.

Í bréf­inu, sem allir 23 leik­menn liðs­ins skrifa undir, benda leik­menn­irnir, sem kall­ast ljónynj­unnar með skírskotun í ljónin þrjú í merki enskra knatt­spyrnu­lands­liða, á að ein­ungis 63 pró­sent stúlkna í Englandi eigi kost á því að spila knatt­spyrnu á skóla­tíma. Auk þess bjóða 40 pró­sent skóla upp á æfingar utan hefð­bund­ins skóla­tíma. Hlutfall þeirra drengja sem hafa aðgengi að fót­bolta­iðkun í gegnum skóla lands­ins er mun hærra.

Ljónynj­urnar segja að Evr­ópu­meist­ara­tit­ill­inn hafi ein­ungis verið upp­hafið. Þær vilja að allar ungar stúlkur geti spilað knatt­spyrnu í skólum lands­ins. „Raun­veru­leik­inn er sá að við erum að veita ungum stúlkum inn­blástur til þess að spila knatt­spyrnu, en margar þeirra fars svo í skól­ann og fá ekki tæki­færi til að spila. Þetta er eitt­hvað sem við upp­lifðum allar þegar við vorum að alast upp. Við þurftum oft að hætta að spila. Þess vegna bjuggum við til okkar eigin lið, ferð­uð­umst um landið end­anna á milli og þrátt fyrir að lík­urnar væru ekki okkur í hag þá héldum við áfram að spila knatt­spyrnu.“

Í bréf­inu segir að kvennaknatt­spyrna hafi vaxið mikið, en að langur vegur eftir. Liðið biðlar því til Sunak og Truss, og rík­is­stjórn­ar­innar sem annað hvort þeirra mun mynda, að tryggja að allar stúlkur hafi aðgang að knatt­spyrnu að minnsta kosti tveimur klukku­tímum á viku. „Við ættum ekki bara að vera að bjóða öllu stúlkum upp á að spila knatt­spyrnu, heldur ættum við líka að fjár­festa í og styðja við kven­kyns þjálf­ara líka.“

[adspot]Ljónynj­urnar segja að nú sé tæki­færi til breyt­inga. „Breyt­inga sem munu hafa áhrif á líf millj­óna stúlkna. Allir 23 leik­menn evr­ópu­hóps enska kvenna­lands­liðs­ins biðla til ykkar um að gera það að for­gangs­at­riði að fjár­festa í stúlknaknatt­spyrnu í skólum, þannig að allar stúlkur eigi val.“

Áhorfendamet sett

Enska knatt­spyrnu­sam­bandið, í sam­starfi við Barclays-bank­ann, setti af stað átak í fyrra­haust sem kall­að­ist „Let Girls Play“. Markmið þess átaks var að 75 pró­sent skóla í Englandi myndu bjóða upp á knatt­spyrnu í íþrótta­kennslu á skóla­tíma árið 2024 og að 90 pró­sent þeirra myndu bjóða upp á knatt­spyrnu sem val­kost utan skóla­tíma.

Átakið fól í sér að haldnar voru æfingar í 1.450 skólum til að ýta undir áhuga stúlkna á knatt­spyrnu í mars síð­ast­liðnum og vekja athygli á skakkri stöðu milli drengja og stúlkna þegar kæmi að aðgengi að knatt­spyrnu­æf­ingum. Yfir 90 þús­und stúlkur tóku þátt.

[links]Evr­ópu­mót kvenna­lands­liða, sem fór fram i Englandi, var svo heldur betur ekki til að draga úr áhuga á kvennaknatt­spyrnu. Þar var hvert áhorf­enda­metið á fætur öðru slegið og á þegar úrslita­leik­ur­inn sjálfur, milli Englands og Þýska­lands, fór fram á sunnu­dag var sett áhorf­enda­met á Wembley-leik­vang­inum í London. Aldrei höfðu fleiri mætt á leik í loka­keppni Evr­ópu­móts, hvort sem var hjá körlum eða konum, en alls 87.192 sáu enska kvenna­lands­liðið vinna sinn fyrsta Evr­ópu­meist­ara­titil með 2-1 sigri í fram­lengdum leik. Þar var einnig um að ræða fyrsta stóra titil ensks lands­liðs frá árinu 1966, þegar karla­lands­liðið varð heims­meist­ari, líka á heima­velli.

Fyrra met var sett í úrslita­leik Spánar og Sov­ét­ríkj­anna á Evr­ópu­móti karla­lands­liða árið 1964 þegar 79.115 áhorf­endur mættu á völl­inn.

Auk þess horfðu 17,4 millj­ónir manna í Englandi á úrslita­leik­inn sem þýðir að hann er sá kvennaknatt­spyrnu­leikur sem dregið hefur að flesta sjón­varps­á­horf­endur í land­inu frá upp­hafi. Fjöldinn var næstum tvö­faldur sá sem horfði á und­an­úr­slita­leik liðs­ins á móti Svíum. Um 5,9 milljonir til við­bótar horfðu á leik­inn í streymi auk þess sem stórir hópar fólks söfn­uð­ust saman víða um landið og horfðu á leik­inn á svoköll­uðum „Fan-zoneum“ og öðrum stöðum þar sem fjöldi fólks gat horft á úrslita­leik­inn á risa­skjám.

Í Þýska­landi horfðu 17,9 millj­ónir manns á úrslita­leik­inn í sjón­varpi. Það er tvö­faldur sá fjöldi sem sá þýska kvenna­lands­liðið minna Evr­ópu­mótið árið 2009.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár