Íslensk fyrirtæki brjóta skilmála Facebook til að safna fylgjendum

Flestir Facebook-not­endur ættu að kann­ast við fra­s­ann „læka, deila og kvitta“. Þannig hvetja ýmis fyr­ir­tæki og vöru­merki Facebook-not­endur til að ger­ast fylgj­endur Facebook-síðna þeirra. Oftast er ein­hver umbun í boði fyrir þessa fríu kynn­ingu fyr­ir­tæk­is­ins á vegg Facebook-not­and­ans, sem fer yfir­leitt í lukku­pott og getur unnið allt milli him­ins og jarðar.

Þetta er mark­aðs­setn­ing sem fjöl­mörg íslensk fyr­ir­tæki hafa nýtt sér þrátt fyrir að hún sé óheimil sam­kvæmt not­enda­skil­málum Facebook.

Vinsælasta íslenska Facebook-síðan aldrei efnt til leiks


Facebook-leikir hafa vafa­laust verið árang­urs­rík leið hingað til við að kynna Facebook-síður og safna fylgj­endum. Samkvæmt not­enda­skil­málum Facebook er þó ekki leyfi­legt að hvetja Facebook-not­endur til að deila færslum á sínum eigin vegg í von um að kom­ast í lukku­pott. Fyr­ir­tækjum er heim­ilt að hafa happ­drætti en ekki að setja það sem skil­yrði að not­endur dreifi færslum frá þeim. Brjóti fyr­ir­tæki þessar reglur áskilur Facebook sér rétt til að eyða fylgj­enda­síð­unni og öllu því efni sem þar er.

Vísir vakti athygli á not­enda­skil­málum mið­ils­ins árið 2011 en samt sem áður eru enn fyr­ir­tæki sem standa fyrir leikjum sem þessum. Vin­sælasta íslenska Facebook-síðan er þó ekki þeirra á meðal. Það var í des­em­ber 2010 sem Þórir Ingv­ars­son, rann­sókn­ar­lög­reglu­maður og þáver­andi lög­reglu­stjóri, Stefán Eiríks­son, ákváðu að stofna Facebook-síðu fyrir lög­regl­una á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Það gerðu þeir sem til­raun til að kom­ast í sam­skipti við fólk – sem kom í ljós að var greini­lega alveg til í að fylgj­ast með lög­regl­unni.

Samspil forvitni og samskipta líklegt til árangurs


Þórir segir að ekki hafi verið farið út í neina kynn­ingu þegar Facebook-síðan var stofnuð heldur hafi fylgj­endum fjölgað smám saman. Hann telur marg­þættar skýr­ingar liggja að baki því að fólk vilji fylgj­ast með lög­regl­unni á Facebook. Forvitni fólks sé ein þeirra. „Það vill fá upp­lýs­ingar um hvað lög­reglan er að gera, hvað henni finnst og svo­leiðis,“ segir Þórir, og bætir við að hann líti á for­vitn­ina sem mik­inn kost. Sam­skipta­hluti Facebook sé önnur skýr­ing. Hann telur það vera sam­spil af for­vitni og því að hægt sé að vera í sam­skiptum við lög­regl­una sem fái fólk til að fylgj­ast með.

Að auki segir hann að það skipti miklu máli að vera mann­leg, það sé þessi mann­lega hlið sem fólk vilji sjá. „Við reynum að vera með efni sem er mann­eskju­legt og reynum að setja það fram á skemmti­legan hátt og passa okkur að vera ekki of stofn­ana­leg. Við viljum setja þetta upp á þennan hátt, að fólk sjái að það er bara venju­legt fólk að svara. Við notum húmor og reynum að svara á skemmti­legan máta,“ segir Þórir.

Sprellið er vinsælast


Tólf starfs­menn lög­regl­unnar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu sjá um að birta efni á Facebook-síð­unni, svara athuga­semdum og einka­skila­boðum. Þeirra á meðal eru bæði rann­sókn­ar­lög­reglu­menn og þeir sem vinna úti á vett­vangi. Þórir segir að Facebook-síðan hafi verið sett á lagg­irnar fyrir hart­nær fimm árum síðan til að bregð­ast við hinu nýja staf­ræna sam­fé­lagi. „Lög­reglan á að vera þar sem fólkið er. Við erum ekki lengur í þjóð­fé­lagi þar sem börn eru úti á leik­velli og fólk að vinna úti. Við erum orðin að miklu leyti staf­rænt sam­fé­lag og það vant­aði kannski staf­ræna lög­reglu,“ segir Þórir.

Með sam­fé­lags­miðla­notk­un­inni seg­ist Þórir einnig hafa viljað sýna lög­regl­una frá því sjón­ar­horni sem hann þekki hana. „Mér finnst þetta bara svo skemmti­legur vinnu­staður, svo mikið af skemmti­legu fólki og svona lif­andi og mikið grín og mikið sprell.“ Það er einmitt þetta sprell sem virð­ist vera vin­sæl­ast á síð­unni ef marka má þá færslu sem flestir læk­uðu, deildu eða skrif­uðu athuga­semd á síð­unni í apríl.





Það er fátt sem fer meira í taug­arnar á fólki en að sjá þegar ófatl­aðir ein­stak­lingar leggja í stæði fyrir hreyfi­hamlað...

Posted by Lög­reglan á höf­uð­borg­ar­svæð­inu on 9. apríl 2015

Fyrst og fremst samskiptamiðill

Þórir segir sam­fé­lags­miðla snú­ast um sam­tal. Þeir séu mjög ólíkir fjöl­miðlum að því leyti. „Fjöl­miðlun snýst um útvörpun en sam­fé­lags­miðlar um sam­tal,“ segir Þórir. Þess vegna sé afar mik­il­vægt að svara fólki. Þrátt fyrir að það leiki léttur und­ir­tónn í mörgum þeirra færslna sem lög­reglan birtir á Facebook setur hún einnig inn til­kynn­ingar og mik­il­væg skila­boð. Tvisvar sinnum hefur hún nýtt mið­il­inn til að vera í sam­skiptum við fólk í óveðri þegar hætta var á að aðrar sam­skipta­leiðir lægju niðri. Þá var fólki bent á að hafa sam­band við lög­reglu á Facebook ef það vant­aði aðstoð.

„Þetta er að erlendri fyr­ir­mynd en reynslan er sú að sam­fé­lags­miðlar og 3G send­ingar eru það síð­asta sem hrynur,“ segir Þórir. Því sé Facebook afar mik­il­væg sam­skipta­leið og raunar allir sam­fé­lags­miðlar en lög­reglan er virk á nán­ast öllum helstu miðl­unum. Hún nálg­að­ist til að mynda heims­frægð þegar erlendir fjöl­miðlar fjöll­uðu um krútt­legar myndir á Instagram-síðu lög­regl­unnar, en þar hefur hún ótal erlenda fylgj­endur.

Virkni fylgjenda skiptir sköpum varðandi sýnileika á Facebook


Það sem skiptir mestu máli varð­andi sýni­leika á Facebook er að birta færslur sem verða vin­sælar, þ.e. færslur sem hreyfa við not­endum, fá þá til að læka, deila og/eða skrifa athuga­semdir. Það hefur gengið hjá lög­regl­unni, að minnsta kosti inn á milli. Næstum tíu pró­sent fylgj­enda síð­unnar gáfu lög­regl­unni læk fyrir vin­sæl­ustu færslu apr­íl­mán­aðar. Það þýðir að færslan hefur farið víða og birst í frétta­veitum margra.

Vinsælar færslur geta undið upp á sig og dreifst ennþá betur vegna vin­sæld­anna. Þá sjá fleiri þær og því er lík­legra að þær fái enn fleiri læk. Þannig hefur sá sem fram­leiðir efni tak­mörkuð völd yfir því hvað fær mikla birt­ingu og hvað ekki. Fjöl­miðlar eru meðal þeirra sem hafa sér­stak­lega fundið fyrir þessu en þeir eru vanir að hafa dag­skrár­valdið í sínum höndum, þ.e. að ákveða hvaða fréttir eru mest áber­andi, eru á for­síðum dag­blaða og fyrstar í frétta­tíma.

Nið­ur­staða nýs loka­verk­efnis í blaða- og frétta­mennsku er sú að á Facebook er dag­skrár­vald fjöl­miðla miklu minna en í hefð­bundnum fjöl­miðlum. Á Facebook er það les­end­anna að ákveða hvaða frétt verður sýni­leg­ust vegna flók­inna reikni­að­ferða sam­fé­lags­mið­ils­ins, sem ákvarðar hvaða efni fær mikla dreif­ingu á miðl­inum og hvað ekki. Það þarf alls ekki að vera að for­síðu­frétt blað­anna sé sama frétt og nýtur hylli á Facebook.

Gott að vera vinsæll ef koma á mikilvægum skilaboðum á framfæri


Vin­sældir fyrri færslna eru eitt af því sem reikni­að­ferðir Facebook taka til­lit til við ákvörðun þess hvaða færslur dreifast víða og hverjar ekki. Þannig getur það borgað sig fyrir lög­regl­una að birta skondnar færslur sem njóta mik­illa vin­sælda því þá verður lík­legra að fylgj­endur fái líka aðrar færslur emb­ætt­is­ins í frétta­veit­una hjá sér, til að mynda til­kynn­ingar og annað sem er brýnt að ber­ist til fólks. Það getur nefni­lega verið erfitt að vera sýni­legur á Facebook nema maður greiði bein­línis fyrir það.

Facebook hefur hlotið mikla gagn­rýni und­an­farið fyrir reikni­að­ferðir sínar sem hafa gert það að verkum að fyr­ir­tæki ná til sífellt færri fylgj­enda þegar þeir greiða ekki fyrir dreif­ingu. Facebook segir aðferð­irnar þó nauð­syn­legar. Að með­al­tali birt­ast Facebook-not­and­anum 1.500 nýjar færslur í hvert skipti sem hann skráir sig inn á síð­una.

Í til­raun til að koma reglu á þessar færslur þró­aði Facebook reikni­að­ferð­irnar. Þær byggja á þús­undum und­ir­liggj­andi þátta um Facebook-not­and­ann. Mark­miðið er að sýna honum það sem hann vill sjá. Facebook skráir virkni hvers og eins not­anda fyrir sig og flokkar efni frétta­veitu hans þannig að hún end­ur­spegli það sem hann ætti að hafa áhuga á, að und­an­skildum keyptum aug­lýs­ingum.

Of margir fylgjendur gætu spornað við dreifingu


Þegar ný færsla er birt berst hún aðeins í frétta­veit­una hjá broti af Facebook-vinum eða fylgj­endum eig­and­ans. Ef færslan nýtur vin­sælda hjá þeim, þ.e. margir læka, skrifa athuga­semd og deila henni birt­ist hún í frétta­veitum fleiri not­enda.

Því skiptir sköpum varð­andi dreif­ingu að hafa virka vini eða fylgj­endur. Magn fylgj­enda skiptir ekki eins miklu máli og virkni þeirra því ef þeir sem sjá færsl­una í upp­hafi bregð­ast ekki við henni dreif­ist hún ekki til fleiri fylgj­enda. Því gætu Facebook-leikir þar sem fólk er lokkað til að læka fylgj­enda­síður óháð því hvort það hafi í raun áhuga á því efni sem birt er á síð­unni bein­línis spornað við dreif­ingu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár