Afríkukeppnin í Gabon – Spilling, mannréttindabrot og fótbolti

Afr­íku­keppnin í fót­bolta karla­lands­liða stendur yfir þessa dag­ana í Gabon og munu Egyptar mæta Kamer­únum í úrslita­leik á sunnu­dag­inn. Mótið var haldið í land­inu þrátt fyrir að valda­tíð for­seta Gabon,hafi ein­kennst af mann­rétt­inda­brotum og spill­ingu.

Ali Bongo, forseti Gabon, við opnunarhátíð Afríkukeppninnar.
Ali Bongo, for­seti Gabon, við opn­un­ar­há­tíð Afr­íku­keppn­innar. Mynd: EPA

Afr­íku­keppnin í fót­bolta karla­lands­liða stendur yfir þessa dag­ana í Gabon og munu Egyptar mæta Kamer­únum í úrslita­leik á sunnu­dag­inn, 5. febr­úar. Framboð Gabon til að fá að halda keppn­ina og und­ir­bún­ingur hennar hafa sætt gagn­rýni vegna meintrar spill­ingar, og vekur athygli að mótið skuli hafa verið haldið í land­inu yfir höfuð þar sem valda­tíð Ali Bongo, for­seta Gabon, hefur ein­kennst af mann­rétt­inda­brotum og spill­ingu.

Upp­haf­lega átti að halda keppn­ina í Líbíu en í ágúst 2014 ákvað knatt­spyrnu­sam­band Afríku (CAF) að landið gæti ekki haldið keppn­ina vegna stríðs­á­stands í land­inu. Í kjöl­farið hófst ný fram­boðs­um­ferð og þar sem þrjú lönd komust til loka­stigs fram­boðs­slags­ins; Alsír, Gabon og Ghana. Framboð Alsír var talið sér­stak­lega öfl­ugt og til­raun til að sporna við nei­kvæðri umfjöllun um örygg­is­á­standið í land­inu, og Ghana, sem hélt keppn­ina árið 2008, reiddi sig á sterka inn­viði í fram­boði sínu. Gabon sem, ásamt Miðbaugs-Gíneu, hélt mótið árið 2012 taldi sig geta byggt á þeirri reynslu til að halda það aftur. Mikil spenna ríkti því þegar kosn­ing um fram­boðin þrjú átti sér stað í höf­uð­stöðvum CAF í Kaíró í Egypta­landi apríl 2015.

Og sigurvegarinn er...

Til að sigra kosn­ing­arnar þurfti eitt fram­boð­anna að hljóta meiri­hluta af atkvæðum frá hinum fjórtán með­limum fram­kvæmda­nefndar CAF. Þegar kom að því að telja atkvæðin og til­kynna sig­ur­veg­ara sá Issa Hayatou, for­seti CAF og um tíma for­seti FIFA í kjöl­far þess að Sepp Blatter, fyrrum for­seti FIFA, var settur í bann vegna spill­ingar árið 2015, sér leik á borði til að brjóta venjur CAF. Í stað þess að tryggja gegn­sæi með því að til­kynna hvernig atkvæðin skipt­ust taldi Hayatou sjálfur, ásamt tveimur með­limum fram­kvæmda­nefnd­ar­innar, atkvæðin fyrir luktum dyrum. Þegar það var gert gekk Hayatou út úr fund­ar­her­berg­inu og til­kynnti við­stöddum og fjöl­miðlum ein­fald­lega með miða þar sem á stóð "Gabon" hver sig­ur­veg­ar­inn væri, og þar með var málið afgreitt.

Hayatou nýtti sömu­leiðis sama fund til að breyta reglum CAF sem sögðu að for­seti sam­tak­anna mætti ekki sitja lengur en fram að sjö­tíu ára aldri, en Hayatou, sem varð sjö­tugur í ágúst í fyrra vildi með þessu sitja áfram í for­seta­stöðu sem hann hefur gegnt frá árinu 1988. Hann sætir einnig ásök­unum um spill­ingu varð­andi veit­ingu sjón­varps­rétt­inda fyrir heims­meist­ara­mót í fót­bolta á 10. ára­tugnum og er sak­aður um að hafa tekið á móti 1,5 millj­ónum Banda­ríkja­dala í mútufé frá Katar gegn því að kjósa fram­boð þeirra til að halda heims­meist­ara­mótið árið 2022.

Skóflustungur og leikvangar

Mótmæli frá knatt­spyrnu­sam­böndum Gana og Alsír féllu fyrir daufum eyrum og Gabon hófst handa með að und­ir­búa Afr­íku­keppn­ina. Und­ir­bún­ing­ur­inn hófst með látum þegar Lionel Messi var feng­inn til að taka fyrstu skóflustungu að nýjum leik­vangi í borg­inni Port-Gentil. Ali Bongo tók sjálfur við Messi og virt­ist fara vel á þeim félögum er þeir óku um á jeppa í höf­uð­borg lands­ins, Libreville, við mik­inn fögnuð heima­manna en Messi er tal­inn hafa fengið 3,5 millj­ónir evra fyrir skóflustung­una. Mann­rétt­inda­sam­tökin Human Rights Foundation for­dæmdu Messi harka­lega fyrir atvikið og bentu á Messi væri orð­inn hluti af almanna­tengsla­batt­eríi Ali Bongo þrátt fyrir að fjár­svik Bongo-fjöl­skyld­unnar hafi gert það að verkum að tutt­ugu pró­sent íbúa Gabon neyð­ist til að lifa á undir tveim Banda­ríkja­dölum á dag.

Til að geta haldið keppn­ina stóðu stjórn­völd í Gabon frammi fyrir stóru verk­efni að byggja tvo nýja leik­vanga á átján mán­uðum. Samn­ingur um bygg­ingu þeirra var und­ir­rit­aður við rík­is­rekin kín­versk fyr­ir­tæki sem þýddi að fjórir af fimm leik­vöngum sem not­aðir eru í keppn­inni voru byggðir af slíkum fyr­ir­tækjum. Kína á sér ríka hefð í að byggja leik­vanga víðs vegar um heim­inn, og sér­stak­lega í Afr­íku­ríkjum, og eru þeir yfir­leitt veittir að gjöf eða fjár­magn­aðir með mjög hag­stæðum lánum frá kín­verska rík­inu. Stadium diplomacy svo­kallað er hálf­gerður hold­gerv­ingur kín­verskrar þró­un­ar­að­stoðar þar sem víð­tækar inn­viða­fjár­fest­ingar á sér stað í þró­un­ar­löndum um allan heim án þeirra víð­tækra skil­mála sem fylgja þró­un­ar­að­stoð frá Vest­ur­löndum. Með því að ekki líta á mann­rétt­inda­á­stand þró­un­ar­landa sem ábyrgð sína og frekar hugsa um þró­un­ar­lönd sem fjár­fest­ing­ar­mögu­leika hefur Kína náð að hasla sér völl sem mik­il­væg­asta við­skipta­land fjöl­margra þró­un­ar­landa.

Herra Sonur

Faðir Ali Bongo, Omar Bongo, var for­seti Gabon í 42 ár en Ali tók við þegar Omar lést árið 2009. Kosn­ing­arnar sem veittu Ali Bongo for­seta­emb­ættið, sem og kosn­ingar sem haldnar voru í land­inu í sept­em­ber í fyrra, voru væg­ast sagt umdeildar og er Ali Bongo tal­inn bera ábyrgð á þeim átökum, ofsóknum og pynt­ingum af and­stæð­ingum sem hefur átt sér stað í kjöl­far þeirra. Ali Bongo, sem hlotið hefur upp­nefnið "Mr. Son", eða Herra Sonur, hafnar því að fyr­ir­greiðslupóli­tík föður síns hafi fleytt honum í emb­ætti for­seta en ljóst er að hann hefur haldið uppi stjórn­ar­háttum hans - landið er rekið eins og skipu­lögð glæp­a­starf­semi þar sem kerf­is­bundið rán af arði nátt­úru­auð­linda lands­ins gerir það að verkum að allt að 25% av vergri lands­fram­leiðslu fer til per­sónu­legra nota for­set­ans og valda­klíku hans. Til að bæta gráu ofan á svart hefur Ali Bongo sætt ásök­unum um að við­halda hjá­trú­ar­hefð þar sem börn eru myrt og líf­færi þeirra notuð til mann­legrar neyslu.

Með því að veita Gabon rétt til að halda alþjóð­leg íþrótta­mót og taka þátt í almanna­tengsla­við­burðum tengt þeim er FIFA, hlutar alþjóða­sam­fé­lags­ins, og frægir ein­stak­lingar að við­ur­kenna hina harð­skeyttu rík­is­stjórn lands­ins þegar rétt­ast væri að for­dæma hana. Auðvelt er að gleyma fót­bolt­anum í þessu öllu saman og setur ákvörð­unin um að veita Gabon réttin til að halda keppn­ina skugga­blett á eitt stærsta og skemmti­leg­asta stór­mót í fót­bolta í heim­inum í dag.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár