Gáskafullur hrærigrautur

Leik­hús­gagn­rýn­and­inn Sigríður Jóns­dóttir brá sér í Borg­ar­leik­húsið á Deleríum búbónis eftir bræð­urna Jónas og Jón Múla Árnasyni.

Leikhús

Deleríum Búrbónis

Höfundur Jónas og Jón Múli Árnason
Leikstjórn Bergur Þór Ingólfsson
Leikarar Ásthildur Úa Sigurðardóttir, Björn Stefánsson, Esther Talía Casey, Halldór Gylfason, Haraldur Ari Stefánsson, Sigurður Þór Óskarsson, Sólveig Guðmundsdóttir, Valur Freyr Einarsson og Vilhelm Neto

Hljómsveit: Agnar Már Magnússon, Mathías Hemstock, Nicolas Moreaux og Sigurður Flosason Danshöfundur: Unnur Elísabet Gunnarsdóttir Tónlistarstjórn: Agnar Már Magnússon Leikmynd: Heimir Sverrisson Búningar: Stefanía Adolfsdóttir Lýsing: Gunnar Hildimar Halldórsson Hljóðmynd: Þorbjörn Steingrímsson Leikgervi: Guðbjörg Ívarsdóttir

Borgarleikhúsið
Gefðu umsögn

Deleríum búbónis eftir bræð­urna Jónas og Jón Múla Árnasyni er fyrir löngu orð­inn sama­n­of­inn dæg­ur­menn­ingu þjóð­ar­innar. Gam­an­leik­ur­inn var frum­fluttur í Rík­is­út­varp­inu árið 1954, undir höf­unda­nöfn­unum Einbjörn og Tvíbjörn, og Leik­fé­lag Reykja­víkur tók verkið til sýn­ingar í árs­byrjun 1959. Sýningin sló ræki­lega í gegn og á næstu ára­tugum varð verkið eitt vin­sælasta við­fangs­efni áhuga­leik­hópa lands­ins. Þar léku lög eins „Söngur jóla­svein­anna“ og „Ágúst­kvöld“ stórt hlut­verk, enda gríp­andi og glettin.

Leik­ur­inn umhverf­ist um til­raunir athafna­manns­ins Ægis Ó. Ægis til að koma jóla­varn­ingi sínum í versl­anir höf­uð­borg­ar­innar. Hann hefur lengi ein­okað mark­að­inn með aðstoð Jafn­væg­is­mála­ráð­herra rík­is­stjórn­ar­innar en svo heppi­lega vill til að hann er mágur Ægis. Inn í málið bland­ast til­huga­líf ungra elskenda, nýr sam­keppn­is­að­ili á jóla­mark­að­inum, borg­ara­legar áhyggjur Pálínu, eig­in­konu Ægis, og auð­vitað djákn­inn á Myrká.

Bergur Þór Ing­ólfs­son heldur um stjórn­ar­taumana og skrifar aðlögun text­ans. Lögum úr öðrum leik­verkum bræðrana hefur verið bætt við og hand­rit­inu breytt tölu­vert, þó …

Kjósa
4
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár