Uppgefnar eignir Íslendinga erlendis jukust um 20 prósent á tveimur árum

Bein fjár­muna­eign inn­lendra aðila erlendis jókst um 58 millj­arða króna í fyrra og var 666 millj­arðar króna í lok þess árs. Tölur Seðla­banka Íslands segja að Íslend­ingar eigi ein­ungis 21 millj­ónir króna á Tortóla.

Bein fjár­muna­eign Íslend­inga erlendis jókst um tæp­lega 58 millj­arða króna á árinu 2019 og var 666 millj­arðar króna um síð­ustu ára­mót. Frá lokum árs 2017 hefur hún auk­ist um 116 millj­arða króna. Þetta kemur fram í nýlegum hag­tölum frá Seðla­banka Íslands.

Mestar eru upp­gefnar fjár­muna­eignir Íslend­inga í Hollandi, en þar eiga inn­lendir aðilar alls 357 millj­arða króna. Upp­gefnar eignir lands­manna á þekktum aflandseyjum hafa dreg­ist mikið saman á und­an­förnum árum. Þannig er fjár­muna­eign inn­lendra aðila á Bresku Jóm­frú­areyj­un­um, sem inni­heldur með ann­ars Tortóla, sögð vera 21 millj­ónir króna í tölum Seðla­banka Íslands, sem er svipað og síð­ast­liðin ár. Í árs­lok 2015 voru 32 millj­arðar króna í eigu Íslend­inga sagðir vera vistaðir í eyja­kla­s­an­um.

Sá hluti fjár­muna Íslend­inga erlendis sem eru óflokk­aðir hefur nán­ast þre­fald­ast á nokkrum árum. Í lok árs 2017 var hann met­inn á tæpa 25 millj­arða króna en um síð­ustu ára­mót var sú upp­hæð komin upp í rúm­lega 72 millj­arða króna.

Gengi krónu spillar stóra rullu

Eignir Íslend­ingar í krónum talið lækk­uðu skarpt á í útlöndum frá árunum 2016 og 2017. Þar spil­aði mikil styrk­ing íslensku krón­unnar stóra rullu. Í lok árs 2017 hafði fjár­muna­eign inn­lendra aðila í krónum talið ekki verið lægri frá árinu 2004.

Síðustu ára hefur þetta breyst og á tveggja ára tíma­bili, frá lokum árs 2017 og fram að síð­ustu ára­mótum, juk­ust eign­irnar í krónum talið um 116 millj­arða króna, eða um 21 pró­sent. Það gerð­ist á sama tíma og íslenska krónan veikt­ist umtals­vert, og jók þannig krónu­virði helstu við­skipta­gjald­miðla. Krónan hefur haldið áfram að veikj­ast skarpt það sem af er árinu 2020, eða um 16,3 pró­sent gagn­vart evru.

[adspot]Skrán­ingu á erlendri fjár­­­muna­­­eign Íslend­inga var breytt fyr­ir­ nokkrum árum síð­­­­­an. Nú eru gefnar upp­­­lýs­ingar um eign í færri löndum en áður en ­flokk­­­ur­inn „óflokk­að“ hefur stækk­­­að. Áður var hægt að sjá til að mynda hver bein fjár­­­muna­­­eign Íslend­inga er á Cayman-eyj­um, Mön, Jersey, Guernsey og Má­ri­­­tí­us. Það er ekki hægt leng­­­ur.

Líkt og áður sagði var „óflokkuð“ bein fjár­muna­eign Íslend­inga rúm­lega 72 millj­arðar króna í lok árs 2019.

Íslend­ingar stórnotendur skattaskjóla

Erlend fjár­­muna­­eign Íslend­inga var mjög í kast­­ljósi heims­ins vorið 2016 í kjöl­far frétta úr gagna­­leka frá panömsku lög­­fræð­i­­stof­unni Mossack Fonseca sem gerður var opin­ber í apríl 2016. Í þeim kom fram að um 600 Íslend­ingar teng­dust um 800 aflands­­fé­lögum sem koma fram í skjöl­un­­um. Fyrir liggur að mestu er um að ræða við­­skipta­vini Lands­­banka Íslands sem stund­uðu aflands­við­­skipti. Ekki liggur fyrir hvaða milli­­­göng­u­liði Kaup­­þing og Glitnir not­uðu, en sam­­kvæmt við­­mæl­endum Kjarn­ans sem þekktu vel til í starf­­semi íslensku bank­anna fyrir hrun er ljóst að fjöldi aflands­­fé­laga sem stofnuð voru fyrir íslenska við­­skipta­vini eru mörg þús­und tals­ins. Því sýndi lek­inn frá Mossack Fonseca ekki nema brot af þeim aflands­fé­lögum sem þeir áttu, og eiga mögu­lega enn.

Líklegt verður að telj­ast, að hluti þeirra eigna sem íslenskir rík­is­borg­arar hafa komið fyrir í þekktum skatta­skjól­um, séu ekki inni í þeim tölum yfir erlendar fjár­muna­eignir inn­lendra aðila sem Seðla­bank­inn birt­ir. Til­gangur þess að stofna félag í skatta­skjóli er enda fyrst og síð­ast tal­inn annar af tveim­ur: að kom­ast undan skatt­greiðslum eða til að leyna til­vist eignar frá ein­hverj­um.

Fyrir ári síðan hafði emb­ætti skatt­rann­sókn­ar­stjóra lokið rann­sókn í alls 96 málum sem eiga upp­runa sinn í Panama­skjöl­unum. Af þeim höfðu alls 64 málum verið vísað til refsi­með­ferðar hjá hér­aðs­sak­sókn­ara, farið hafði verið fram á sekt­ar­kröfu fyrir yfir­skatta­nefnd í 17 málum, refsi­með­ferð í tveimur málum var lokið með sekt­ar­gerð hjá skatt­rann­sókn­ar­stjóra og ekki var hlut­ast til um refsi­með­ferð í 13 málum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

skattamál

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár