Jón Gnarr mun starfa þvert á öll svið 365 - frá fréttum til markaðsdeildar

Jón Gnarr, fyrr­ver­andi borg­ar­stjóri í Reykja­vík, verður alhliða stjórn­andi hjá 365, og mun starfa þvert á öll svið fyr­ir­tæk­is­ins svipað og fjár­mála- eða mannauðs­stjórar gera. Þetta segir Sævar Freyr Þrá­ins­son, for­stjóri 365, í sam­tali við Kjarnann.

Eins og greint var frá í morgun hefur Jón verið ráð­inn rit­stjóri inn­lendrar dag­skrár hjá fjöl­miðla­fyr­ir­tæk­inu.

Starf Jóns er nýtt í fyr­ir­tæk­inu. Sævar segir að þannig muni starf Jóns ekki aðeins fel­ast í inn­lendri dag­skrár­gerð fyrir ljós­vaka­miðla fyr­ir­tæk­is­ins. Hann mun líka koma að ýmissi hug­mynda­vinnu fyrir alla miðla, þar á meðal í frétta­tengdu efni, og líka fyrir mark­aðs­deild fyr­ir­tæk­is­ins, að sögn Sævars. Ráðning hans hefur ekki í för með sér breyt­ingar á starfs­sviði ann­arra stjórn­enda fyr­ir­tæk­is­ins.

„Hann er að fara að styrkja okkur með þessum frá­bæra skap­andi og frjóa huga sem hann hefur,“ segir Sævar, og bætir því við að hug­mynda­auðgi Jóns muni koma sér vel víða í fyr­ir­tæk­inu. Jón mætti til vinnu nú klukkan 10 og var Sævar á leið að taka á móti honum þegar Kjarninn ræddi við hann.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár