Þorgerður Katrín og Þorsteinn Pálsson til liðs við Viðreisn

Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir, fyrr­ver­andi vara­for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, og Þor­steinn Pálsson, fyrr­ver­andi for­maður flokks­ins, hafa gengið til liðs við Viðreisn. Frá þessu segir hún á Twitter í dag. Talið er að Þor­gerður Katrín muni skipa efsta sæti á lista flokks­ins í Suð­vest­ur­kjör­dæmi, eins og full­yrt var á síðum DV í gær.

Þor­gerður Katrín hefur starfað hjá Samtökum atvinnu­lífs­ins und­an­farin þrjú ár. Hún var mennta­mála­ráð­herra á árunum 2004 til 2009 og sat á Alþingi fyrir Sjálf­stæð­is­flokk­inn í tíu ár, frá 1999 til 2009.

Þor­steinn Pálsson var lengi ráð­herra fyrir Sjálf­stæð­is­flokk­inn undir lok síð­ustu aldar, meðal ann­ars for­sæt­is­ráð­herra árin 1987 til 1988. Þá var hann for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins árin 1983 til 1991.

Viðreisn mun bjóða fram í fyrsta skipti í Alþing­is­kosn­ing­unum í haus. Í nýj­ustu Kosn­inga­spá Kjarnans mælist Viðreisn með 9,7 pró­sent stuðn­ing kosn­inga­bærra manna og hefur verið með slíkt fylgi und­an­farna tvo mán­uði.

Und­an­farið hafa for­kólfar innan fram­boðs­ins til­kynnt um fram­boð sitt í hinum ýmsu kjör­dæmum og hefur nafn Þor­gerðar Katrínar oft komið fram sem hugs­an­legan odd­vita í Suð­vest­ur­kjör­dæmi. Það er kjör­dæmi Bjarna Bene­dikts­sonar, for­manns Sjálf­stæð­is­flokks­ins, vinar og fyrr­ver­andi sam­herja Þor­gerðar Katrínar í Sjálf­stæð­is­flokknum.

Með fram­boði Þor­gerðar Katrínar er komin nokkuð skýr mynd á hverjir muni skipa efstu sætin á lista Við­reisnar í fyrstu kosn­ing­unum sem stjórn­mála­flokk­ur­inn tekur þátt í. Hanna Katrín Frið­­riks­­son, fram­­kvæmd­­ar­­stjóri heil­brigð­is­sviðs Icepharma, sæk­ist eftir því að leiða annað Reykja­vík­­­ur­­kjör­­dæm­ið, og Þor­steinn Víglunds­son mun, líkt og áður sagði, vænt­an­lega leiða hitt. Þá ætla Þor­­­björg Sig­ríður Gunn­laugs­dótt­ir, deild­­­ar­­­for­­­seti laga­­­deildar Háskól­ans á Bif­­­röst, og Pawel Bar­toszek, stærð­fræð­ingur og pist­la­höf­und­­­ur, einnig fram fyrir Við­reisn í Reykja­vík og búist er við að þau verði í næstu sætum fyrir neðan Hönnu Katrínu og Þor­stein.

Bene­dikt Jóhann­es­­­son, for­­­maður Við­reisn­­­­­ar, greindi frá því í síð­ustu viku að hann muni verða í fyrsta sæti á fram­­­boðs­lista flokks­ins í Norð­aust­­­ur­­­kjör­­­dæmi. Áður hafði verið búist við því að hann myndi bjóða fram í öðru hvoru Reykja­vík­­­­­ur­­­kjör­­­dæm­inu. Þá hefur verið greint frá því að Gylfi Ólafs­­­­son, heilsu­hag­fræð­ingur frá Ísa­­­­firði, muni leiða lista Við­reisnar í Norð­vest­­­­ur­­­­kjör­­­­dæmi. Jóna Sól­­­­veig Elín­­­­ar­dótt­ir, aðjúnkt við stjórn­­­­­­­mála­fræð­i­­­­deild Háskóla Íslands, hefur til­­­­kynnt um fram­­­­boð og þykir lík­­­­­­­leg­ust til að vera í efsta sæti á lista flokks­ins í Suð­­­­ur­­­­kjör­­­­dæmi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár