Þorgerður Katrín í framboð fyrir Viðreisn

Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir, fyrr­ver­andi vara­for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, mun leiða lista Við­reisnar í Suð­vest­ur­kjör­dæmi. Þetta er full­yrt í DV í dag. Þor­gerður Katrín hefur ekki viljað svarað með afger­andi hætti spurn­ingum fjöl­miðla um hvort hún hyggi á fram­boð fyrir hinn nýja flokk en orðrómur um það hefur verið afar hávær um langt skeið.

Þor­gerður Katrín mun því fara fram í sama kjör­dæmi og Bjarni Bene­dikts­son, for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, situr. Bjarni og Þor­gerður Katrín eru fyrr­ver­andi sam­herjar og vinir.

Þor­gerður Katrín hefur starfað hjá Samtökum atvinnu­lífs­ins (SA) und­an­farin þrjú ár. Þor­steinn Víglunds­son, sem var fram­kvæmda­stjóri SA á þeim tíma, hefur einnig til­kynnt fram­boð fyrir Viðreisn og ætlar að leiða lista flokks­ins í öðru hvoru Reykja­vík­ur­kjör­dæm­inu.

Þor­gerður Katrín hefur áður setið á Alþingi. Hún tók þar sæti árið 1999 og var mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra árin 2004 til 2009. Hún ákvað hins vegar ekki að gefa kost á sér á lista Sjálf­stæð­is­flokks­ins í síð­ustu þing­kosn­ingum og hætti á þingi. Samkvæmt heim­ildum Kjarnans var mikið þrýst á hana að fara fram fyrir Sjálf­stæð­is­flokk­inn að nýju en Þor­gerður Katrín hafn­aði þeim bónum. Hún hefur þó áfram verið skráð í Sjálf­stæð­is­flokk­inn en ljóst er að hún mun segja sig úr þeim flokki í ljósi nýj­ustu tíð­inda.

Kjarninn fjall­aði ítar­lega um fram­boð Við­reisnar, áhrif þess á Sjálf­stæð­is­flokk­inn og mögu­legt fram­boð Þor­gerðar Katrínar í frétta­skýr­ingu nýverið. Hana má lesa hér.

Komin mynd á hverjir leiða hjá Viðreisn

Með fram­boði Þor­gerðar Katrínar er komin nokkuð skýr mynd á hverjir muni skipa efstu sætin á lista Við­reisnar í fyrstu kosn­ing­unum sem stjórn­mála­flokk­ur­inn tekur þátt í. Hanna Katrín Frið­riks­son, fram­kvæmd­ar­stjóri heil­brigð­is­sviðs Icepharma, sæk­ist eftir því að leiða annað Reykja­vík­ur­kjör­dæm­ið, og Þor­steinn Víglunds­son mun, líkt og áður sagði, vænt­an­lega leiða hitt. Þá ætla Þor­­björg Sig­ríður Gunn­laugs­dótt­ir, deild­­ar­­for­­seti laga­­deildar Háskól­ans á Bif­­röst, og Pawel Bar­toszek, stærð­fræð­ingur og pist­la­höf­und­­ur, einnig fram fyrir Viðreisn í Reykja­vík og búist er við að þau verði í næstu sætum fyrir neðan Hönnu Katrínu og Þorstein.

Bene­dikt Jóhann­es­­son, for­­maður Við­reisn­­­ar, greindi frá því í síð­ustu viku að hann muni verða í fyrsta sæti á fram­­boðs­lista flokks­ins í Norð­aust­­ur­­kjör­­dæmi. Áður hafði verið búist við því að hann myndi bjóða fram í öðru hvoru Reykja­vík­­­ur­­kjör­­dæm­inu. Þá hefur verið greint frá því að Gylfi Ólafs­­­son, heilsu­hag­fræð­ingur frá Ísa­­­firði, muni leiða lista Við­reisnar í Norð­vest­­­ur­­­kjör­­­dæmi. Jóna Sól­­­veig Elín­­­ar­dótt­ir, aðjúnkt við stjórn­­­­­mála­fræð­i­­­deild Háskóla Íslands, hefur til­­­kynnt um fram­­­boð og þykir lík­­­­­leg­ust til að vera í efsta sæti á lista flokks­ins í Suð­­­ur­­­kjör­­­dæmi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár