500 kvótaflóttamenn komi til Íslands

22 þing­menn stjórn­ar­and­stöð­unnar, úr öllum flokkum, hafa lagt fram þings­á­lykt­un­ar­til­lögu um auk­inn stuðn­ing við mót­töku flótta­fólks á Íslandi. Þing­menn­irnir vilja að rík­is­stjórnin hefji þegar í stað und­ir­bún­ing á mót­töku fleiri kvótaflótta­manna en nú hefur verið ákveðið að gera í sam­vinnu við Flótta­manna­hjálp Sam­ein­uðu þjóð­anna.

Að minnsta kosti eigi að bjóða 100 flótta­mönnum dvöl á Íslandi á þessu ári, 200 á næsta ári og aftur 200 árið 2017. Þá verði einnig unnin áætlun um mót­töku kvótaflótta­fólks sem taki gildi frá árinu 2018, „þar sem tryggt verði að Ísland taki á móti flótta­fólki til sam­ræmis við íbúa­fjölda og efna­hag lands­ins.“ Leggja eigi sér­staka áherslu á að taka á móti fólki frá Sýrlandi og ann­ars staðar frá, fólki sem sé í sam­bæri­legri stöðu og við­kvæmir hópar flótta­fólks sem tekið hefur verið á móti und­an­farin ár.

Þá eigi, vegna langvar­andi stríðs­á­stands í Sýrlandi, jafn­framt að vinna að auk­inni fjöl­skyldu­sam­ein­ingu Sýr­lend­inga, meðal ann­ars með því að heim­ila tíma­bundið veit­ingu dval­ar­leyfa til aðstand­enda Sýr­lend­inga sem búsettir eru á Íslandi.

Rík­is­stjórnin hefur sam­þykkt að taka á móti 50 kvótaflótta­mönnum, 25 á þessu ári og 25 á næsta ári.

„Ísland verður að leggja meira af mörkum vegna þess gríð­ar­lega fjölda flótta­fólks sem er í heim­inum og veita fórn­ar­lömbum stríðs­á­taka skjól og vernd,“ segir í grein­ar­gerð með þings­á­lykt­un­ar­til­lög­unni, sem Sigríður Ingi­björg Inga­dóttir, þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar og for­maður vel­ferð­ar­nefndar, er fyrsti flutn­ings­maður að. Aukinn fjöldi kvótaflótta­manna sé ein leið til þess að leggja meira af mörkum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár