CCP hættir að greiða starfsmönnum í evrum

Íslenska tölvu­leikja­fyr­ir­tækið CCP hætti í dag að greiða starfs­mönnum sínum á Íslandi laun í evrum eins og verið hefur und­an­farin ár. Laun sem starfs­fólk fékk í dag voru í krónum.

CCP stað­festir þetta í svari við fyr­ir­spurn Kjarnans um málið en svar­aði fyr­ir­spurn­inni ekki að öðru leyti vegna þess að fyr­ir­tækið ræði ekki um launa­mál starfs­manna í fjöl­miðlum.

Það vakti athygli þegar CCP ákvað að bjóða starfs­fólki upp á laun í evrum, en starfs­mönnum fyr­ir­tæk­is­ins á Íslandi bauðst frá og með 1. jan­úar 2009 að fá greidd laun í evrum. Frá þessu var greint í Morg­un­blað­inu þann 30. des­em­ber 2008 og þá sagði Hilmar Veigar Pét­urs­son, for­stjóri fyr­ir­tæk­is­ins, að tvennt lægi að baki þeirri ákvörðun. „Annars vegar erum við með fjölda erlendra starfs­manna hér á landi og sumir þeirra eru með skuld­bind­ingar í öðrum gjald­miðlum.“ Óvissan sem þá ríkti í geng­is­málum hefði verið þessu fólki erfið. „Hins vegar hafa sveiflur á gengi krón­unnar komið illa við fyr­ir­tækið, því erfitt er að gera áætl­anir fram í tím­ann þegar gengið sveifl­ast öfganna á milli á skömmum tíma. Nær allar okkar tekjur eru í erlendri mynt og tak­ist okkur að auka hlut­fall erlendra gjald­miðla í útgjöldum náum við meira jafn­vægi í rekstr­ar­reikn­ingi okkar.“

Í umfjöllun í Frétta­blað­inu í apríl 2009 sagði Hilmar Veigar svo að fyr­ir­tækið væri með marga sér­fræð­inga í vinnu, bæði inn­lenda og erlenda. „Við lítum svo á að það sé ekki rétt­læt­an­legt annað en borga þeim laun sem eru sam­keppn­is­hæf á alþjóða­vísu.“

Segja stærsta framtakssjóð heimsins vilja eignast CCP


Greint er frá því í Við­skipta­blað­inu í dag að stærsti fram­taks­sjóður í heimi, New Enter­prise Associates, og Novator, félag Björg­ólfs Thors Björg­ólfs­sonar, hafi verið á hött­unum eftir hluta­bréfum í fyr­ir­tæk­inu. Við­skipta­blaðið segir að boðið hafi verið allt að 2.500 krónur á hlut. NP ehf, sem er í eigu Novator, á nú um 43% hlut í fyr­ir­tæk­inu, en átti 29,74% um síð­ustu ára­mót. Fyr­ir­tækið er því orðið stærsti ein­staki hlut­haf­inn í CCP.

New Enter­prise Associates er banda­rískur sjóður sem á eignir sem eru metnar á átján millj­arða Banda­ríkja­dala. Við­skipta­blaðið hefur heim­ildir fyrir því að sjóð­ur­inn hafi nú þegar eign­ast 10% eign­ar­hlut í fyr­ir­tæk­inu.

CCP tap­aði meira en 87 millj­ónum dala síð­ustu tvö ár.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár