Framsóknarflokkurinn myndi tapa fjórtán þingmönnum

Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn næði ekki inn manni í Reykja­vík, Sjálf­stæð­is­menn og Vinstri græn bæta við sig og Píratar yrðu stærsti þing­flokk­ur­inn. Sam­fylk­ingin tapar þing­sætum og Björt fram­tíð hverfur. Svona yrði staðan ef kosið yrði í dag, sam­kvæmt könnun 365.

Vigdís Hauksdóttir og Frosti Sigurjónsson eru leiðtogar Framsóknarflokksins í Reykjavíkurkjördæmunum tveimur. Flokkurinn næði ekki inn manni í hvorugu þeirra.
Vigdís Hauks­dóttir og Frosti Sig­ur­jóns­son eru leið­togar Fram­sókn­ar­flokks­ins í Reykja­vík­ur­kjör­dæm­unum tveimur. Flokk­ur­inn næði ekki inn manni í hvor­ugu þeirra.

Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn myndi tapa fjórtán þing­sætum ef kosið yrði í dag og yrði minnsti þing­flokk­ur­inn. Hann fengi ein­ungis fimm þing­menn en er með 19 sem stendur. Miðað við fram­boðs­lista flokks­ins fyrir kosn­ing­arnar 2013 yrðu einu þing­menn­irnir sem myndu halda sæti sínu Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, Hösk­uldur Þór­halls­son, Eygló Harð­ar­dóttir, Gunnar Bragi Sveins­son og Sigurður Ingi Jóhanns­son for­sæt­is­ráð­herra. Flokk­ur­inn fengi engan þing­mann í Reykja­vík. Þetta er meðal þess sem fram kemur í úrvinnslu á skoð­ana­könnun 365 miðla sem birt er í Frétta­blað­inu í dag. Þar mælist Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn mælist með 8,3 pró­sent fylgi sam­kvæmt henni en fékk 24,4 pró­sent í kosn­ing­unum 2013. Rík­is­stjórnin væri kol­fall­inn ef þetta yrði nið­ur­staða kosn­inga. Hún fengi 26 þing­menn en er í dag með 38.

Sam­fylk­ingin er annar flokkur á þingi sem myndi tapa þing­mönnum. Í dag er flokk­ur­inn með níu þing­menn en myndi ein­ungis fá sex ef kosið væri í dag. Fylgi flokks­ins mælist 8,4 pró­sent og því ekki mark­tækur munur á fylgi hans og Fram­sóknar. Björt Framtíð mælist með fjögur pró­sent fylgi og næði ekki inn manni. Flokk­ur­inn er með sex þing­menn í dag.

Píratar mæl­ast stærsti flokkur lands­ins með 31,8 pró­sent fylgi. Það myndi tryggja þeim 22 þing­menn en þeir hafa þrjá í dag. Því er ljóst að þorri þeirra þing­manna ofan­greindir þrír flokkar tapa myndu fara til þeirra. Næst stærsti flokkur lands­ins sam­kvæmt könn­un­inni er Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn með 29,9 pró­sent fylgi. Yrði það nið­ur­staða kosn­inga myndi flokk­ur­inn bæta við sig frá því síð­asta og fá tvö ný þing­sæti, 21 alls. Einungis Píratar og Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn gætu myndað tveggja flokka rík­is­stjórn.

Vinstri græn virð­ast vera að fá aukin með­byr sam­kvæmt síð­ustu könn­unum og mæl­ast nú með 14 pró­sent fylgi. Það myndi þýða að flokk­ur­inn fengi níu þing­menn en hann er með sjö í dag.

Síðustu kann­anir sem hafa verið birtar hafa allar sýnt mikla hreyf­ingu á fylgi. Helst hafa það verið Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn og Vinstri græn sem hafa verið að bæta við sig en Píratar að missa lít­il­lega af því mikla fylgi sem mælst hefur við þá und­an­farið rúmt ár.

Könnunin var fram­kvæmd 2. og 3. maí. Hringt var í 1.161 manns þar til náð­ist í 797 sam­kvæmt lag­skiptu úrtaki. Svar­hlut­fall var 68,6 pró­sent en 59,9 pró­sent tóku afstöðu til spurn­ing­ar­innar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár