Mynd: Bára Huld Beck

„Ég held að þetta verði negla“

Voru jarð­ar­berin íslensk og hljóm­aði Tarzan Boy virki­lega er spennan var að ná hámarki? Blaða­maður Kjarnans fylgd­ist með gáska­fullri kosn­inga­vöku Fram­sókn­ar­flokks­ins, eða „partístofu Ásmundar Einars“ eins og ein­hverjir köll­uðu hana.

Það er vinda­samt úti á Granda. Fólk á leið á kosn­inga­vöku Fram­sókn­ar­flokks­ins í sal tölvu­leikja­fram­leið­and­ans CCP heldur úlpum og frökkum þétt að sér er það gengur að hús­inu. Sumir hlaupa jafn­vel við fót í björtu tungls­ljósi að kvöldi kosn­inga­dags.

Þótt úti sé kalt og tunglið bjarta minnk­andi er hlýtt og vax­andi stemn­ing inn­an­dyra. Í raun mætir gestum nota­leg birta sem minnir einna helst á sumar á suð­læg­ari slóðum því græni lit­ur­inn er (skilj­an­lega) alls ráð­andi. Á vegg í and­dyr­inu á fjórðu hæð­inni þar sem vakan er haldin er varpað einu helsta slag­orði Fram­sóknar í kosn­inga­bar­átt­unni: „Fram­tíðin ræðst á miðj­unni“.

„Fram­tíðin ER á miðj­unni,“ segja ungir, glað­hlakka­legir karl­menn sem eru meðal þeirra fyrstu sem mæta á vök­una. Þeir stilla sér upp fyrir mynda­töku. Standa þétt saman, keikir, sjálfsör­uggir og spenntir. Eru greini­lega von­góðir enda bendir allt til þess að flokk­ur­inn sem þeir eru komnir til að styðja eigi eftir að bæta við sig fylgi.

Um hálf­tími er enn í það að kjör­stöðum verði lokað og full­trúar beggja sjón­varps­stöðv­anna eru mættir. Berg­hildur Erla Bern­harðs­dóttir frétta­kona Stöðvar tvö og Sunna Val­gerð­ar­dóttir frétta­kona á RÚV. Töku­menn­irnir eru að stilla upp vél­unum. Allt skal vera til reiðu þegar fram­bjóð­endur koma í hús.

„Mig langar að taka mynd af okkur saman,“ segir ung kona við eldri karl­mann. Á höfð­inu hefur hann der­húfu með merki Fram­sókn­ar­flokks­ins. Þarna eru tvær kyn­slóðir fram­sókn­ar­manna saman komnar. Annars eru ungir karl­menn enn áber­andi flestir í salnum. Þeir tala hátt og hlæja mikið. Á borði fremst í situr ungt par í inni­legum faðm­lögum. Skammt frá stendur ólétt kona við hlið maka síns og strýkur vernd­andi hendi yfir kúl­una. Fram­tíðin er þar sann­ar­lega miðja alls.

„Er hann á kosn­inga­vöku Sós­í­alista?“ hrópar einn ungu mann­anna skyndi­lega upp yfir sig. „ER ein­hver þar?“ spyr hann svo félaga sinn með áherslu. Þeir hlæja báðir. Bera bjór­glös upp að vörum. Ekki í fyrsta skipti þetta kvöld og sann­ar­lega ekki í það síð­asta.

Skvaldrið magn­ast. Tón­listin er hækkuð. Er þetta Tarzan Boy, einn mesti smellur níunda ára­tug­ar­ins sem hljómar? Það væri vissu­lega ekki úr takti við hita­belt­is­stemn­ing­una sem græni lit­ur­inn skapar.

Það er smellt af sjálfum í gríð og erg. Með­al­aldur gesta er alveg örugg­lega enn undir þrí­tugu. Það þarf að gera grein fyrir stöð­unni á öllum helstum sam­fé­lags­miðlum. Fanga stemn­ing­una. Sjáðu mig! Hér er ég! Í hópi sig­ur­veg­ara.

Það er farið að hitna í salnum í bók­staf­legri merk­ingu. Einhver opnar út á sval­irnar og kalt haust­loftið streymir inn. Í dyr­unum stendur Jón Gunnar Geirdal, einn þekkt­asti almanna­teng­ill lands­ins og kosn­inga­stjóri Fram­sóknar í Kraganum. Hann er að tala í sím­ann. „Líst þér ekki vel á þetta?“ segir hann stuttu seinna hress í bragði að vanda við blaða­mann sem spyr á móti hvort hann hafi komið að gerð slag­orðs­ins fræga: Er ekki bara best að kjósa Framsókn?

„Nei,“ svarar hann, „fra­sa­kóng­ur­inn á það því miður ekki.“ Slag­orðið er hug­mynd Sigryggs Magna­sonar, félaga Jóns og aðstoð­ar­manns Sigurðar Inga Jóhanns­sonar, for­manns Fram­sókn­ar­flokks­ins. Í þessum töl­uðu orðum gengur Sig­tryggur fram­hjá og spyr einn gest­inn sömu spurn­ingar og Jón Gunnar hafði spurt blaða­mann: „Líst þér ekki vel á þetta?“

Sá svarar að bragði: „Ég held að þetta verði negla.“

Beðið eftir fyrstu tölum. Sigurður Ingi og Sunna Valgerðardóttir fréttakona.
Beðið eftir fyrstu tölum. Sigurður Ingi og Sunna Val­gerð­ar­dóttir frétta­kona.

Klukkan er tvær mín­útur í tíu. Senn líður á lokun kjör­staða. Margir líta á sím­ann sinn eða úrið í sífellu. Ljós­mynd­arar frá fjöl­miðlum standa í röðum með­fram veggjum. Loks er kveikt á köst­urum sjón­varps­stöðv­anna. Það verður farið í beina útsend­ingu innan skamms.

„Það er búið að loka!“ kallar ein­hver. „Árangur áfram!“ kallar annar. Það er skálað í sífellu. Nú er end­an­lega ekk­ert meira hægt að gera til að sann­færa fólk um að kjósa Fram­sókn­ar­flokk­inn. Tíminn er útrunn­inn.

„Ásmundur Einar var að detta í hús,“ segir Jón Gunnar. „Það er svo von á Lilju, Sigurði og Willum von bráðar.“

Í þeim töl­uðu orðum ganga odd­vitar flokks­ins í Reykja­vík­ur­kjör­dæm­unum inn í sal­inn undir miklu lófa­klappi. Sunna frétta­kona RÚV er fljót að grípa þau bæði í beina útsend­ingu. Fólk klappar og blístrar. Eftir við­talið gefur Lilja sig á tal við einn af mörgum hópum ungra karl­manna. Þeir horfa á hana með aðdáun. Verða slakir, ein­beittir og ofur­k­urt­eisir um stund.

Sigurður Ingi, for­mað­ur­inn sjálfur, fær við­tökur sem hæfa stór­stjörnu er hann kemur í sal­inn. „Ætlum við ekki að hafa gaman í kvöld?“ segir hann hátt og skýrt yfir mann­fjöld­ann sem tekur undir með dúndr­andi lófa­klappi. Það hefur snögg­lega fjölgað veru­lega í hópi gesta. Hann líkir því sem átt hefur sér stað á und­an­förnum vikum við flóð­bylgju. „Ég hef á til­finn­ing­unni að það muni ganga vel.“ Sigurður er eins og venju­lega, föð­ur­legur í fasi og minnir við­stadda á að ekki skuli þó gleðj­ast um of fyr­ir­fram. „En höfum gaman!“

„Eru fyrstu tölur?“ er spurt. Og það er sussað úr ýmsum áttum þegar yfir­maður kjör­stjórnar í Norð­vest­ur­kjör­dæmi birt­ist á stórum sjón­varps­skjá við enda sal­ar­ins.

Að venju eru atkvæði „B-lista Fram­sókn­ar­flokks“ lesin fyrst. Og áður en flestir átta sig á tíð­ind­unum brestur á með gleð­iópum sem fara svo eins og bylgja um sal­inn og magn­ast að end­ingu upp í kringum for­mann­inn. Hann brosir breitt. Hættir ekki að brosa. Gefur fimmu. En þetta er ekki búið. Þegar þing­manna­list­inn birt­ist á breið­tjald­inu, sá fyrsti í þessum kosn­ingum, verður allt vit­laust.

„Ertu með fiðr­ildi í mag­anum?“ spyr Sunna frétta­kona Sigurð Inga í enn einni beinni útsend­ing­unni. „Já, þau hafa verið þar, já.“

„Þetta er partístofa Ásmundar Einars!“ er sagt í hátala­kerfið en í þann mund sem lag er sett „á fón­inn“ er komið að fyrstu tölum í Suð­ur­kjör­dæmi. Sagan end­ur­tekur sig. Og á eftir að end­ur­taka sig fram yfir mið­nætti. Það ætlar allt um koll að keyra.

„Ég hef verið í kirkju­söfn­uðum og það er svo áhuga­vert hvað þetta er svipað,“ segir ung kona við blaða­mann er hún lítur yfir sal­inn og drekkur í sig stemn­ing­una. „Að allir séu sam­mála um eitt­hvað, vilji bæta sam­fé­lagið saman. Eitthvað sem sam­einar alla.“ Hún má ekki vera að því að spjalla lengi. Það þarf að kyssa mann og annan. Fagna. Og fagna svo enn meira.

Stemn­ingin sem hún var að dást að er eins og á árs­há­tíð fyr­ir­tækis eftir gott upp­gjör. Nema lík­lega í tíunda veldi. Kannski má heldur líkja henni við upp­skeru­há­tíð, enda haust, og væri það eftir til vill meira í anda Fram­sókn­ar­flokks­ins sem á rætur í bænda­sam­fé­lagi lands­ins. Í vor og sumar var sáð. Og nú er verið að koma ríku­legri upp­sker­unni í hús.

„Kæru vinir,“ segir Sigurður er hann hefur loks náð að fikra sig að svið­inu því allir vilja óska honum til ham­ingju. „Fyrstu tölur eru komnar og þær gefa góðar vís­bend­ingar um von­andi það sem á eftir að koma úr öllum kjör­dæmum. Við höfum fundið fyrir sama með­byrnum alls staðar á Íslandi enda erum við flokk­ur­inn sem hugsar um Ísland allt, ekki satt?“

Þessu svara stuðn­ings­menn hans með sker­andi fagn­að­ar­ópum. Hann segir að nú taki við biðin eftir tölum úr hinum kjör­dæm­unum og allt að því hvíslar svo í míkra­fón­inn: „Af því að þetta var svo gaman að sjá þessar. Líður ykkur ekki betur?“

Sigurður er eins og hljóm­sveit­ar­stjóri að stjórna mjög fjör­legum kór. „Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn er aftur, enn á ný, orð­inn leið­andi afl í íslenskum stjórn­málum.“ Hann lýkur svo ræð­unni á orð­unum: „Áfram Framsókn!“ sem end­ur­tekin eru af fjöld­anum.

Upp­hafs­stef lags­ins Life is Life með Opus hefst. Fólk klappar og syngur með af heitri inn­lifun. „When everyone gives everyt­hing, and every song, everybody sings: Life is Life.

Ungu menn­irnir eru orðnir rjóðir í kinnum. Aftur er opnað út og ferskt sjáv­ar­loftið flæðir inn.

„Ég er af Fram­sókna­rættum,“ segir karl­maður sem kom­inn er til fagn­að­ar­ins með eig­in­kon­unni sem tekur virkan þátt í flokks­starf­inu. Hann teygir sig í smá­rétti sem eru í boði, kran­sa­köku­topp og bita af hvítu Tobler­one. Á boðstólum eru reyndar líka íslenskir Hraun­bitar. Við hlið hans stendur ungur maður sem tekur upp súkkulaði­húðað jarð­ar­ber. „Er það nokkuð inn­flutt?“ spyr hann hlæj­andi áður en hann stingur því upp í sig og skolar því svo niður með vænum sopa af bjór.

Opus hefur þagnað og við hefur tekið dúndr­andi danstaktur. Þetta er eng­inn Geir­mundur Valtýs ef ein­hver er að velta því fyrir sér. Þetta er tón­list unga fólks­ins, unga fólks­ins sem er alveg örugg­lega enn í meiri­hluta við­staddra þótt liðið sé nokkuð á kvöldið. Fólk stendur þétt. Faðmast. Kyssist. Tón­listin er hátt stillt og klið­ur­inn eykst stöðugt. Eina mann­eskjan með grímu í salnum er kona sem kemur annað slagið að tína tóm glös og flöskur af borðum. „Það er bara einn sig­ur­veg­ari í þessum kosn­ingum,“ öskur­hvíslar einn ungu mann­anna að félaga sínum. „Já, ég veit það!“ hrópar hann upp í eyra vinar síns á móti. „Áfram Framsókn!“ segja þeir og skála.

Það er komið að fyrstu tölum í Norð­aust­ur­kjör­dæmi og nú er orðið erf­ið­ara að sussa á fólk á meðan þær eru lesnar. Eins klisju­lega og það hljómar þá ætlar þakið bók­staf­lega að rifna af hús­inu. „Framsókn! Framsókn!“

Þetta er keppni. Og þótt henni sé ekki lokið eru merkin um nið­ur­stöð­una orðin mörg. Það er þó ekki alveg laust við að von­brigða gæti er fyrstu tölur í Suð­vest­ur­kjör­dæmi birt­ast. Ein­hverjir púa. Aðrir klappa hvetj­andi. „We are going up, going up, we are going up!“ kyrja ungu menn­irnir við lagið Give it Up með KC and the Sunshine Band. Kapp­leik­ur­inn stendur sem hæst. Og þeir eru stút­fullir af bjart­sýni.

Það er löng bið í næstu tölur. En það er nóg að bíta og brenna og engum virð­ist leið­ast. „Þekkir þú ein­hvern hérna?“ spyr karl­maður konu sem hann reynir að troða sér með í gegnum mann­þröng­ina. „Neibb,“ svarar hún.

Rétt fyrir mið­nætti eru nokkrir orðnir valtir á fót­unum. En það er haldið áfram að syngja. Klappa og stappa. Val­gerður Sverr­is­dóttir, fyrr­ver­andi ráð­herra flokks­ins, stendur og ræðir við fólk. Ungu menn­irnir, sem hafa brugðið á það ráð að fara í hala­rófu um þétt­set­inn sal­inn – með hönd á öxl hvers ann­ars – staldra ekki sér­stak­lega við þegar þeir fara fram hjá henni. Kannski eru þeir of ungir til að muna eftir henni en kannski eru þeir bara of ölv­aðir af gleði. Og slatta af áfengi.

Ásmundur Einar er hins vegar umvaf­inn ungum aðdá­endum. Ef Sigurður Ingi er föð­ur­legi hljóm­sveit­ar­stjór­inn er hann rokk­stjarnan.

Eina mín­útu í mið­nætti er gerð heið­ar­leg til­raun til að sussa á mann­skap­inn er fyrstu tölur úr kjör­dæmi Ásmundar, Reykja­vík norður, eru lesnar í sjón­varp­inu. Ásmundur tók stóran sjens er hann flutti sig um kjör­dæmi úr einu helsta vígi fram­sókn­ar­manna og til höf­uð­borg­ar­innar. En hann er inni. Og stuðn­ings­menn hans blístra, klappa og hrópa. Þetta var þá eftir allt saman áhætt­unnar virði.

Sigurður Ingi gefur sig á tal við fólk hér og hvar í salnum. Sumir eiga erfitt með að sleppa honum, það er um svo margt skemmti­legt að tala, en hann smeygir sér fim­lega á milli fólks til að ná að ræða við sem flesta.

„Ole ole ole ole!“

„Ertu fram­sókn­ar­maður?“ spyr kona einn ungu mann­anna, nýbúin að velta því upp að kannski væru þeir ekki allir stuðn­ings­menn Fram­sóknar heldur mættir til að hafa gaman í góðu partíi. „Nei, ég er sós­í­alisti,“ segir hann grafal­var­legur en vinir hans sem standa við hlið hans koma upp um hann og springa úr hlátri. „Ég ætla að taka 40 pró­sent af þessum drykk þínum og setja til rík­is­ins. Restinni verður þú að deila með okkur hinum.“ Vinum unga manns­ins finnst hann svo orð­hepp­inn að þeir velt­ast um af hlátri.

Það er gott að vera um borð í skútu sem er á hraðri sigl­ingu.

Þegar komið er að fyrstu tölum í Reykja­vík suður er orðið ómögu­legt að fá sæmi­legt hljóð í sal­inn. Því er hins vegar ákaft fagnað er ljóst er að sam­kvæmt þeim er Lilja inni. „We are going up, going up, weeee are going up!“

Ef boðið hefði verið upp á brauðtertu í þessu teiti hefði majo­nesan lík­lega verið orðin gul þegar hér er komið sögu. „Aldrei að koma fyrstur og aldrei að fara síð­astur,“ segir karl­maður sem verður sam­ferða blaða­manni niður í lyft­unni. Þegar komið er niður á jörð­ina er ljóst að fyrir utan er löng bið­röð. Það er von á Herra Hnetu­smjöri og færri kom­ast að en vilja. Það eru jú í gildi sam­komu­tak­mark­anir.

„Ef þú ferð út núna get­urðu ekki komið inn aftur,“ segir kona sem stendur vakt­ina í dyr­unum.

Það stendur ekki til að snúa aftur og því hreppir ein­hver annar pláss blaða­manns í salnum. Kemst inn úr nöprum vindi hausts­ins í hita­belt­is­lofts­lagið á fjórðu hæð­inni.

„Framsókn og Flokkur fólks­ins eru að bæta mikið við sig.“ Það er rödd Felix Bergs­sonar sem ómar úr útvarp­inu í bílnum á leið­inni heim. Hann er að fara yfir fyrstu tölur úr öllu kjör­dæmum á næt­ur­vakt­inni á Rás 2. „Þetta er alveg ótrú­legt!“

Sigurður Ingi er mættur í sjón­varps­sal á öðrum tím­anum um nótt­ina. Hann vill ekki spá of mikið í spilin enda „nóttin ung“ eins og stjórn­mála­mönnum er allt að því eðl­is­lægt að segja á þessum tíma­punkti. „Ég held að lokum hafi allir kom­ist að því að það væri senni­lega bara best að kjósa Framsókn.“

Samkvæmt úrslitum kosn­ing­anna töldu vissu­lega margir það best eða 34.501. Það skil­aði Fram­sókn­ar­flokknum 6,6 pró­sent fylg­is­aukn­ingu á milli kosn­inga og þrettán þing­mönnum, fimm fleiri en árið 2017.

Það er við­eig­andi að segja að fram­sókn­ar­menn séu með pálmann í hönd­unum í kom­andi stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræðum. Það er svona í ágætum takti við hit­ann, svit­ann og suð­rænu birt­una sem ein­kenndi partístof­una þeirra á kosn­inga­nótt.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2021

Mest lesið undanfarið ár