Gjörbreytt Danmörk árið 2150

Dönsk rann­sókn­ar­stofnun telur að sjáv­ar­borð við strendur Dan­merkur muni á næstu ára­tugum hækka mun hraðar og meira en áður hefur verið talið. Ef svo fer fram sem horfir verði margar eyjar óbyggi­legar og bæir og strendur fari undir vatn.

Útlit er fyrir að stormflóð verði tíðari og áhrif þeirra meiri í Danmörku á næstu áratugum.
Útlit er fyrir að storm­flóð verði tíð­ari og áhrif þeirra meiri í Danmörku á næstu ára­tugum. Mynd: EPA

Danir þekkja vel það tjón sem storm­flóð og úrkoma geta valdið. Til eru aldagamlar frá­sagnir af storm­flóðum en á síð­ustu ára­tugum hafa slíkir atburðir orðið æ algeng­ari. Danmörk er eitt þeirra landa sem liggja mjög lágt (flad som en pandekage) og þar hafa storm­flóð valdið miklu tjóni. Mestu flóðin verða þegar saman fara stór­streymi, lágur loft­þrýst­ingur og rok. Í byrjun des­em­ber árið 1999 gerði mik­inn storm sunn­ar­lega við vest­ur­strönd Jótlands. Þá hækkað sjáv­ar­borð á þessu svæði um rúma fimm metra og olli miklu tjóni. Þegar þetta gerð­ist var lág­sjávað en í stór­streymi er talið að sjáv­ar­borðið hefði hækkað um að minnsta kosti sex metra.

Í byrjun nóv­em­ber 2006 olli slíkt flóð miklu tjóni, um það bil fjögur þús­und hús skemmd­ust mikið, og mörg hund­ruð til við­bótar skemmd­ust minna. Þegar þetta gerð­ist hafði verið hvöss vest­an­átt dögum saman, hún þrýsti sjónum suður Kaattegat og alla leið í Eystra­salt. Þegar storm­inn loks lægði gekk sjór­inn til baka og olli flóði á svæðum fyrr sunnan Litla- og Stóra­belti (badekarseffekt).

[adspot]

Stíf norð­an­átt hefur sömu­leiðis iðu­lega orðið til að þrýsta sjó inn í Hró­arskeldu­fjörð­inn á Sjálandi. Fjörð­ur­inn er tæp­lega 42 kíló­metra langur og fyrir botni hans er danska vík­inga­skipa­safnið sem nær í sjó fram. Þar hefur margoft orðið tjón af völdum sjávar og eftir miklar skemmdir á safn­inu árið 2014 (storm­ur­inn Bodil) voru uppi hug­myndir um að flytja vík­inga­skipin af safn­inu og koma þeim fyrir á örugg­ari stað.

Flóðavarnir kosta mikið fé

Mikið flóð á Kaup­manna­hafn­ar­svæð­inu og við Kögeflóa í byrjun árs 2017 olli tjóni sem metið var á jafn­gildi 2,8 millj­arða íslenskra króna. Verk­fræði­fyr­ir­tækið Cowi var fengið til að meta þörf og kostnað við flóða­varnir í dönsku höf­uð­borg­inni og nágranna­sveit­ar­fé­lögum. Slíkt mat hafði ekki áður verið gert í Danmörku. Sér­fræð­ingar Cowi skil­uðu skýrslu sinni, sem var mjög ítar­leg, í júlí 2019. Í skýrsl­unni var gert ráð fyrir að varn­ar­garðar sem þegar voru til staðar, á Amager og sunnan við Kaup­manna­höfn, yrðu styrktir jafn­framt því sem nýir yrðu gerðir. Jeppe Sikker Jensen einn sér­fræð­inga Cowi sagði, þegar skýrslan var kynnt, að ef miðað væri við hund­rað ára reikni­líkanið (stór­flóð einu sinni á öld) mætti gera ráð fyrir að kostn­aður við gerð varn­ar­garða yrði, var­lega áætlað, um 22 millj­arðar danskra króna, um það bil 416 millj­arðar íslenskir. Jeppe Sikker Jensen nefndi líka hvað myndi ger­ast ef miðað væri við stærsta flóð á þús­und árum. Þá færi suð­ur­hluti Kaup­manna­hafnar á kaf, flug­völl­ur­inn á Kastrup myndi lok­ast og sömu­leiðis Eyr­ar­sunds­brúin. Lesta­kerfið, þar með talið metro­kerfið, myndi lam­ast. „Ef þetta ger­ist nemur erum við að tala um tjón sem nemur stjarn­fræði­legum upp­hæðum“ sagði Jeppe Sikker Jensen. Við­staddir litu með undr­un­ar­svip hver á annan. „Er þetta ekki algjör svart­sýn­is­spá?“ spurði loks einn. „Ég er smeykur um ekki“ var svarið.

Sjávarborð gæti hækkað um 170-180 sentimetra

Síð­ast­lið­inn mið­viku­dag, 5. októ­ber, boð­aði Mette Frederik­sen for­sæt­is­ráð­herra Dan­merkur til þing­kosn­inga sem fram fara 1. nóv­em­ber. Danskir fjöl­miðlar fjöll­uðu það sem eftir lifði dags nán­ast ekki um neitt nema kosn­ing­arnar.

Þennan sama dag birti danska rann­sókn­ar­stofn­unin GEUS (Nationale Geolog­iske Und­er­søgelser for Danmark og Grønland) skýrslu sem hvarf að mestu leyti í skugg­ann af kosn­inga­um­fjöll­un­inni. Það sem fram kemur í skýrsl­unni á þó lík­lega eftir að hafa mun meiri og víð­tæk­ari áhrif en hver verður næsti for­sæt­is­ráð­herra Dan­merkur. Hafi ýmsum þótt skýrslan frá árinu 2019 draga upp dökka mynd af fram­tíð Dan­merkur er sú skýrsla þó rós­rauð miðað við GEUS skýrsl­una sem kynnt var í síð­ustu viku. GEUS byggi nið­ur­stöður sínar að hluta á skýrslu (AR6) lofts­lags­nefndar Sam­ein­uðu þjóð­anna, IPPC, sem birt var á síð­asta ári. „Því meira sem sér­fræð­ing­arnir vita, því dekkri verður myndin varð­andi hækkun sjáv­ar­borðs“ sagði William Colgan sér­fræð­ingur hjá GEUS. Samkvæmt skýrsl­unni getur sjáv­ar­borð við strendur Dan­merkur stigið um 170-180 senti­metra miðað við árið 1990. Spáin mið­ast við að ekki tak­ist að draga veru­lega úr losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda. Þetta er mikil breyt­ing frá fyrri spám sem gerður ráð fyrir 106 senti­metrum sem hámarks­hækkun. Áður­nefndur William Colgan sagði, þegar skýrslan var kynnt, að þótt mörgum þætti svart­sýni gæta í spánni væru sér­fræð­ingar sam­mála ef svo færi fram sem horfir gæti sjáv­ar­borðs­hækk­unin orðið enn meiri.

Gjörbreytt Danmörk árið 2150

Gangi spáin sem sett var fram í skýrslu GEUS eftir hefur hún miklar afleið­ingar í Danmörku. Fjöl­margir smá­bæir við strönd­ina munu hverfa og margar eyjar úti fyrir ströndum lands­ins verða óbyggi­legar eða hrein­lega hverfa.

Danska strand­lengjan er um það bil 7 þús­und kíló­metra löng. Áður­nefndur William Colgan sagði í við­tali við dag­blaðið Politi­ken að úti­lokað væri að tryggja alla strand­lengju lands­ins með varn­ar­görðum. „Slíkt kostar svo mikið að þessi val­kostur er algjör­lega óraun­hæfur. Danir hafa til þessa að mestu sneitt hjá því að ræða hvaða svæði lands­ins eigi að verja og hver ekki, nú verður ekki hjá því kom­ist að taka ákvarð­anir. Danir hafa hummað þetta fram af sér allt of lengi“ sagði William Colgan.

Margir stjórn­mála­menn eru á sama máli og sumir úr þeirra hópi saka stjórn Mette Frederik­sen um að hafa ekki aðhafst neitt sem heitið geti þrátt fyrir fögur fyr­ir­heit í aðdrag­anda kosn­ing­anna 2019.

Ef marka má yfir­lýs­ingar þing­manna úr öllum flokkum á danska þing­inu, Fol­ket­inget, eru þeir sam­mála um að nú verði að láta verkin tala. Vilja­yf­ir­lýs­ingar, og að vona hið besta, dugi ekki.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár