Kínverski boltinn: Ríkustu menn Kína eyða stjarnfræðilegum upphæðum

Einn góðan veð­ur­dag í lok febr­úar finn ég það greini­lega: Taum af vor­lofti sem strýkst not­ar­lega við and­litið. Svo snýr hann sér á ný í þrá­láta Síber­íu­átt og mann­lífið í Peking hopar örlítið aftur inn í vet­ur­inn.

Á þessum árs­tíma er þjóð­ráð að blanda þurrk­uðum jurtum sem ég kann ekki nöfn á í morg­un­vell­ing­inn sem ég hef lært að heitir „zhou“ og er eins og hrís­grjóna­grautur sem er soð­inn í miklu vatni í stað­inn fyrir mjólk. Plönt­urnar eru sagðar veita við­nám gegn vor­hreti og hrá­slaga, tempra hita, mýkja hægðir og slá á gigt. Svo byrjar að snjóa. Þegar morg­un­han­arnir fara á stjá sjá þeir að blautur snjór hefur sest þungur og tign­ar­lega á dúandi trjá­geinar og sveigt þak­skegg Hofs hin­ins­ins. Felmtri slegnir hlaupa þeir aftur inn með tíð­indin en þegar almenn­ingur æðir út til að sjá VETURINN er hann horf­inn, bráðn­aður og uppgu­faður. Oft ríkir sér­stök kyrrð í höf­uð­borg­inni á tíma­bili regn­vatns­ins. Götur og torg eru mann­laus að kalla. Engin morg­un­leik­fimi í garð­inum. Allir farnir eitt­hvað eða komnir eitt­hvað. Heim til sín. Inn í sig. Lagstir í híði. Vor­há­tíðin sem staðið hefur yfir í 1-2 vikur er á enda. Framundan er að kveðja ætt­ingja og vini. Heilsa nýjum átökum við raun­veru­leik­ann.

Í aðdrag­anda leik­tíð­ar­innar í kín­verska bolt­anum að þessu sinni hafa birst óvenju margar gleði­fréttir sem fá mann til að vera bjart­sýnan og trúa því að dýpkun umbóta í bolt­anum sem for­seti lands­ins Xi Jinping hefur boðað skili árangri. Fjallaði ein fréttin í mál­gagni Flokks­ins t.d. um fyrr­ver­andi vara­for­mann kín­verska knatt­spyrnu­sam­bands­ins, Nan Yong, og þann árangur sem hann hefur nýlega náð í fang­elsi. Það er ekki víst að allir viti það en árið 2012 var hann ásamt fjölda kín­verskra emb­ætt­is­manna, dóm­ara og knatt­spyrnu­manna fund­inn sekur um mikið svindl og svínarí. Tóku þeir við mútufé, þáðu þeir stór­gjafir, létu þeir bjóða sér í átveislur o.s.frv. fyrir að sveigja og beygja úrslit leikja eftir fyr­ir­fram ákveðnu skipu­lagi. Það mun síðan hafa verið þegar einn þjálf­ari sást greini­lega í beinni útsend­ingu hvetja sína menn til að skora sjálfs­mark að yfir­völdin gátu ekki annað en skorist í leik­inn. Nan var dæmdur í 10 ½ árs fang­elsi en - sam­kvæmt nýjust fréttum - er nú búið að milda refs­ing­una um eitt ár vegna mik­il­vægs fram­lags hans til vís­ind­anna.

Mun hann hafa tekið að iðka fræði­störf í fang­els­inu og ku þegar búinn að fá einka­leyfi fyrir fjórum knatt­spyrnu­tengdum upp­finn­ingum og skrifa eina vís­inda­skáld­sögu. Vegna þess­arar fréttar varð nokkur umræða í fjöl­miðlum um refsi­lög­gjöf­ina í land­inu og upp­lýsti Dagblað Pekín­gæsk­unnar að almennt væri ekk­ert því til fyr­ir­stöðu að vel stæðir fangar keyptu upp­finn­ingar á net­inu sem þeir síðan fram­seldu til fang­els­is­yf­ir­valda gegn mild­ingu refs­ingar. Væri þetta fyr­ir­komu­lag alþekkt en að sögn blaðs­ins „enn á gráu svæði“. Fleiri gleði­legar fréttir hafa spurð­ust út í aðdrag­anda sparkver­tíð­ar­innar.

[caption id="attachment_24971" align="alignnone" width="650"] Jack Ma, kenndur við netris­ann Alibaba, er mættur í kín­verska bolt­ann með auð sinn.[/caption]

Einna mestum tíð­indum sætir gríð­ar­lega sterk inn­koma tveggja rík­ustu manna Kína (og heims) í bolt­ann. Wang Jianlin, for­maður Dalian Wanda Group, stærsta kvik­mynda­húsa­rek­anda heims, keypti t.d. 20 pró­sent hlut í Spán­ar­meist­urum Atlético de Madrid og hyggst nota klúbb­inn sem æfinga­mið­stöð fyrir efni­lega kín­verska spil­ara (leik­menn vænt­an­legs heims­meist­ara­liðs Kína segja gár­ung­arnir). Og Jack Ma, stofn­andi og aðal­eig­andi Alibaba net­versl­un­ar­ris­ans, dældi stjarn­fræði­legum upp­hæðum í kaup á brasil­íska lands­liðs­mann­inum Ricardo Goulart fyrir Kína­meist­ara síð­asta árs, Guangzhou Evergrande, sem hann er líka nýbú­inn að kaupa. Þess má geta að aðeins í ensku knatt­spyrn­unni eru nú settir meiri pen­ingar í leik­manna­kaup en í þeirri kín­versku.

[caption id="attachment_24972" align="alignnone" width="640"] Bras­il­íu­mað­ur­inn Richardo Goulart kom til Kína­meist­ara Guangzhou Evergrande fyrir stjarn­fræði­lega fjár­hæð.[/caption]

Mínir menn Peking-varð­lið­arnir hafa ekki verið eins stór­tækir á leik­manna­mark­aðnum og hin liðin í deild­inni. Það var samt ánægju­legt að þeir skyldu ná var­an­legum samn­ingi um kaup á Svíanum knáa Erton Fejzullahu frá Djur­g­ar­den en hann kom sem láns­maður á síð­ustu leik­tíð. Það var hins vegar blóð­taka að missa einn efni­leg­asta leik­mann Kína Zhang Xide til Wolfsburg í des­em­ber sl. Er hann fyrsti Kín­verj­inn til að spreyta sig meðal þeirra bestu síðan Hao Junmin fór frá Schalke 04 fyrir um fjórum árum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár