Bréf bankastjóra Arion til borgarstjóra birt: "Afskaplega óheppilegt"

Hösk­uldur H. Ólafsson, banka­stjóri Arion banka, sendi tölvu­póst til Dags B. Egg­erts­sonar, borg­ar­stjóra Reykja­víkur, síð­ast­lið­inn laug­ar­dags­morgun klukkan 10:46. Þar áframsendi hann tölvu­póst sem hinum hafði borist frá Eggerti Dag­bjarts­syni, eins þeirra fjár­festa sem koma að bygg­ingu Marriott-hót­els við Hörpu, deg­inum áður þar sem sem Eggert segir að ályktun Reykja­vík­ur­borgar um snið­göngu á ísra­elskum vörum gæti haft "mjög nei­kvæð áhrif á verk­efnið okkar" vegna þess að margir lyk­il­menn í verk­efn­inu séu banda­rískir gyð­ingar. Síðar í bréf­inu, sem er skrifað á ensku, segir Eggert að skila­boðin sem verið sé að senda séu eft­ir­far­andi: "if you are jewish - your not welcome here" (ísl. ef þú ert gyð­ingur þá ertu ekki vel­kom­inn hér).

Hösk­uldur segir í tölvu­pósti sínum til dags að hann leyfi sér að áfram­senda þessa nótu og að málið sé "Ákaflega óheppi­legt og hygg ég að sam­bæri­legt ber­ist okkur í bank­anum úr öðrum áttum vegna ann­arra verk­efna."

Á for­síðu DV í dag sagði að fjár­fest­arnir hafi hótað að hætta við hót­elið og til­laga Reykja­vík­ur­borgar ógni því sautján millj­arða fjár­fest­ingu á reitnum.

Richard L. Friedman, for­stjóri Carpenter & Co. og for­svars­maður fjár­fest­anna, sem leiðir hót­el­verk­efnið, neit­aði þessu í yfir­lýs­ingu sem hann sendi DV í gær og öðrum fjöl­miðlum í morgun. Þar sagð­ist hann hafa heyrt af ákvörðun meiri­hluta borg­ar­stjórnar um við­skipta­bann gegn Ísrael. Fyr­ir­tækið skipti sér hins vegar ekki af stjórn­málum á Íslandi. Verk­efnið og hann sjálfur hafi mætt mjög góðu við­móti á Íslandi, bæði af íbúum og borg­ar­yf­ir­völdum. „Áform okkar eru óbreytt,“ sagði hann í yfir­lýs­ing­unni.

Nú stendur yfir auka­fund­ur í borg­ar­stjórn, sem hófst klukk­an 17:00. Á fund­inum verða teknar fyrir til­lög­ur meiri- og minni­hluta borg­ar­stjórnar um að draga til baka sam­þykkt borg­ar­stjórn­ar frá 15. sept­em­ber þar sem lagt var til að borg­in út­færði snið­göngu á vör­um fram­leidd­um í Ísra­el. Til stóð að vera með beina útsend­ingu frá fund­inum hér en hún liggur niðri sem stendur vegna álags á net­þjóni borg­ar­innar.

Hægt er að sjá tölvu­póst­sam­skipti Hösk­uldar við Dag og póst­inn sem Eggert sendi á Höskuld hér að neðan. Tölvu­póst­ur­inn var sendur öllum borg­ar­full­trúum fyrir auka­fund borg­ar­stjórnar.


From: Hösk­uldur H. Ólafsson 
Sent: 19. sept­em­ber 2015 10:46
To: Dagur B Egg­erts­son
Subject: FW: Worrisome Issue

Sæll Dagur borg­ar­stjóri,

Leyfi mér að áfram­senda þessa nótu frá Eggerti Dag­bjartsyni. Þú þekkir allar þessar per­sónur mæta vel sem og verk­efnið og vís­ast er búið að hafa sam­band við þig vegna þessa máls eftir öðrum leiðum.
Ákaflega óheppi­legt og hygg ég að sam­bæri­legt ber­ist okkur í bank­anum úr öðrum áttum vegna ann­arra verk­efna.

Með bestu kveðjum,
Hösk­uldur

From: Eggert Dag­bjarts­son
Sent: 18. sept­em­ber 2015 23:16
To: Hösk­uldur H. Ólafsson
Cc: Eggert Dag­bjarts­son
Subject: Worrisome Issue

Dear Hoskuldur,

I wanted to share my concern with you reg­ar­ding the recent resolution passed by the Reykja­vik City Council - bann­ing the import­ing of certain goods from Israel to Iceland. I beli­eve this could potenti­ally have a very negative impact on our project - the proposed Reykja­vik Edition. The fact is that many of the key people who are ultima­tely going to be responsi­ble for mak­ing this a success are Jewish Americans. Both Ian Schrager and Dick Friedman are jewish. Many of the top people at Marriott are jewish as well. Furthermore, most major US Hotel Companies - such as Starwood, Lowes, etc. are either owned or controlled by jewish Americans.

While American jews are by no means a uni­fied group, they are gener­ally strongly supp­ortive of the State of Israel and sensitive to boycotts or bann­ing of Israeli related products or services. This is a real “hot button” issue.

The message that the City of Reykja­vik has just sent, whether it meant to or not, is this: “if you are jewish - your not welcome here”. It also sug­gests and will potenti­ally be inter­preted by the outside world as a statem­ent that Icelander’s are racist when it comes to jews. I’ve got no idea how some­one like Ian Schrager or Dick Friedman will react to this - and I’m hop­ing they don’t find out about this and it will be somehow quickly fixed. This has the potential of being a real problem - which I clearly hope it will not be.

If there is anyt­hing that you can do to influence things and have this retracted - and that a clear message be sent that Iceland is a welcoming place for Israeli’s and jews - as well as people of all nationalities and creeds - it should be done as soon as possi­ble.

This is not good for Iceland - and potenti­ally harm­ful to our project.

Best,

Eggert

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár