Lögreglumenn vilja meiri menntun og þjálfun í nauðgunarmálum

Mennt­un­ar­kröfur lög­reglu­manna og rann­sak­enda á Íslandi eru afar lágar og rann­sókn­ar­lög­reglu­menn telja sjálfir ríka ástæðu til að bæta nám, þjálfun og fræðslu hvað varðar rann­sóknir nauðg­unar- og kyn­ferð­is­brota.

Þetta kemur fram í rann­sókn þar sem við­horf og reynsla fag­að­ila sem koma að með­ferð nauðg­un­ar­mála var skoðuð. Hildur Fjóla Ant­ons­dóttir, mann- og kynja­fræð­ingur, vann rann­sókn­ina á vegum Eddu-önd­veg­is­set­urs og í sam­starfi við inn­an­rík­is­ráðu­neytið.

Tekin voru við­töl við 26 manns sem starfa innan kerf­is­ins. Talað var við sex sér­fræð­inga á sviði heil­brigðis- og félags­mála sem gefa álit fyrir dómi, sex rann­sókn­ar­lög­reglu­menn, fimm rétt­ar­gæslu­menn og verj­endur, fjóra ákærendur og fimm dóm­ara.

Stóla á eigið hyggjuvit og reynslu


Rann­sókn­ar­lög­reglu­menn­irnir sögð­ust helst stóla á sitt eigið hyggju­vit og reynslu við rann­sóknir. Þeir hafi ekki fengið sér­stök tæki­færi til sér­þjálf­unar. „ [...] þú þarft bara algjör­lega að bjarga þér sjálfur og þar ger­ast mis­tökin, þar fara hlut­irnir úrskeiðis,” er til að mynda haft eftir einum rann­sókn­ar­lög­reglu­manni í skýrsl­unni.

Grunn­nám­skeið fyrir rann­sókn­ar­lög­reglu­menn eru yfir­leitt haldin á hverju ári. Það eru fjög­urra vikna nám­skeið þar sem einum og hálfum degi er varið sér­stak­lega í ofbeldis- og kyn­ferð­is­brot auk þess sem nem­endur fá kynn­ingu frá Neyð­ar­mót­töku fyrir þolendur kyn­ferð­is­brota. Þá hafa verið haldin sér­nám­skeið þar sem áhersla hefur verið lögð á kyn­ferð­is­brot, en fram kom í við­tölum að ekki hafi verið nægj­an­lega mikið af slíkum nám­skeiðum í boði. Þó kemur fram í skýrsl­unni að eftir að við­tölin voru tekin hafi verið haldið tveggja vikna sér­nám­skeið um rann­sóknir kyn­ferð­is­brota.

„Þannig að það er eitt­hvað sem mér finnst vanta mjög mikið, það er tæki­færi til mennt­unar á þessu sviði. Það er fullt af nám­skeiðum í boði erlendis, ein­göngu erlendis. Ég hef beðið um að fara á hin ýmsu nám­skeið, en það er bara ekk­ert í boði út af fjár­skorti,“ segir rann­sókn­ar­lög­reglu­maður jafn­framt í skýrsl­unni.

„Þetta snýr bara að þá þessum ein­staka lög­reglu­manni, hvað gerir hann sjálfur, hvað skilur hann af því sem hann er að gera og hvernig vinnur hann með það,“ segir rann­sókn­ar­lög­reglu­maður einnig.

Nið­ur­staða við­mæl­enda og skýrsl­unnar er þó sú að gæði rann­sókna hafi auk­ist á síð­ustu árum. Flestir eru til að mynda sam­mála um að með til­komu sér­stakrar kyn­ferð­is­brota­deildar hafi orðið til hópur rann­sókn­ar­lög­reglu­manna sem hafi öðl­ast mikla reynslu af rann­sóknum. Munur á gæðum rann­sókna fari frekar eftir ein­stökum rann­sókn­ar­lög­reglu­mönnum en lög­reglu­emb­ættum.

Kynnt fyrir innanríkisráðherra


Í rann­sókn Hildar Fjólu eru taldir upp ýmsir fleiri ágallar á með­ferð nauðg­un­ar­mála innan rétt­ar­vörslu­kerf­is­ins og lagðar fram til­lögur til úrbóta á þeim. Rann­sóknin hefur verið kynnt fyrir Ólöfu Nordal inn­an­rík­is­ráð­herra og mun hún nú fara yfir til­lög­urnar og meta þær.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár