Alþjóðasamtök flugumferðarstjóra segja ISAVIA verða að bregðast við

Alþjóða­sam­tök flug­um­ferð­ar­stjóra segja að ISAVIA verði að bregð­ast við und­ir­mönnun í stétt flug­um­ferð­ar­stjóra. Flug­ör­yggi sé ógnað og reglum ekki fylgt.

Flugumferðarstjórar hafa staðið í miklum deilum við ISAVIA undanfarið.
Flug­um­ferð­ar­stjórar hafa staðið í miklum deilum við ISAVIA und­an­farið. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Alþjóða­sam­tök flug­um­ferð­ar­stjóra, IFATCA, lýsa yfir miklum áhyggjum af flug­ör­yggi á Íslandi. Í til­kynn­ingu sem sam­tökin sendu frá sér í gær, um ástandið á Íslandi, kemur fram að mönnun flug­um­ferð­ar­stjóra í Leifs­stöð sé ekki næg, reglum sé ekki fylgt og ISAVIA þurfi að bregð­ast hratt og skjótt við til að ganga ekki gegn alþjóða­lögum. Undir til­kynn­ing­una skrifar Tom Laursen, fram­kvæmda­stjóri IFATCA í Evrópu. Flug­um­ferð­ar­stjórar hér­lendis hafa staðið í miklum kjara­deilum und­an­farin miss­eri, sem fól meðal ann­ars í sér yfir­vinnu­bann, sem gerði það að verkum að miklar rask­anir urðu á flug­um­ferð.

IFATCA segja að nýj­ustu skýrslur frá Íslandi um flug­ör­yggi sýni að vegna mann­eklu séu flug­um­ferð­ar­stjórar skildir eftir einir í Leifs­stöð í yfir átta klukku­stundir í senn og það sýni fram á að ISAVIA hafi mis­tek­ist að tryggja við­un­andi þjón­ustu- og örygg­is­við­mið. Það sé grafal­var­legt.

ISAVIA verði að bregðast við

Samtökin hvetja ISAVIA til að gera sér grein fyrir und­ir­mönnun í stétt­inni og bregð­ast skjótt við því. Þá ætti ISAVIA að þróa með sér lang­tíma­á­ætlun sem tryggi að mönnun flug­um­ferð­ar­stjóra sé næg í ljósi sívax­andi flug­um­ferðar í gegn um Leifs­stöð. Einnig eigi að sjá til þess að þjálfun stétt­ar­innar sé við­un­andi og aukin traffík megi ekki verða á kostnað hennar. Þar vísa sam­tökin í alþjóða­lög um flug­um­ferð.

Í maí sendu sam­tökin jafn­framt frá sér yfir­lýs­ingu þar sem lýst var yfir áhyggjum með yfir­vinnu­bann flug­um­ferð­ar­stjóra.

Ógna öryggi áhafna og farþega

Í til­kynn­ing­unni í gær segir að til að fyllsta öryggis sé gætt og öllum reglum sé full­nægt hvað varðar flug­um­ferð í heim­inum þurfi aðilar allra landa heims að fylgja settum reglum, meðal ann­ars hvað varðar mönnun flug­um­ferð­ar­stjóra.

Lýst er yfir áhyggjum að nýj­ustu vend­ingar innan ISAVIA og þeirra vand­kvæði með mönnun geti ógnað öryggi áhafna og far­þega í milli­landa­flugi til og frá Íslandi.

Alþjóða­sam­tök flug­um­ferð­ar­stjóra eru með meira en 50 þús­und félaga í 133 löndum um allan heim. Samtökin huga að öryggi og áreið­an­leika í flug­um­ferð og eru einnig hags­muna­sam­tök fyrir flug­um­ferð­ar­stjóra.

Samið en hafnað

Sam­tök atvinnu­lífs­ins (SA) fyrir hönd ISAVIA og Félag íslenskra flug­um­ferð­ar­stjóra (FÍF) und­ir­rit­uðu kjara­samn­ing í hús­næði rík­is­sátta­semj­ara á um miðja nótt þann 25. júní síð­ast­lið­inn. Flug­um­ferð­ar­stjórar höfn­uðu samn­ingnum, sem átti að gilda út árið 2018, í atkvæða­greiðslu. Alþingi setti lög á yfir­vinnu­bann flug­um­ferð­ar­stjóra í júní og því var gerð­ar­dómur kall­aður saman til að ákveða kaup og kjör, náist ekki að semja.

Hér má lesa til­kynn­ingu IFATCA

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Isavia

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár