Mynd: Wikicommons

Isavia stefnir íslenska ríkinu vegna saknæmrar háttsemi dómara og vill yfir tvo milljarða

Isavia, sem er rík­is­fyr­ir­tæki hefur sent rík­is­lög­manni kröfu­bréf og fer fram á að íslenska ríkið, eig­andi sinn, greiði það tjón sem fyr­ir­tækið varð fyrir þegar kyrr­settri flug­vél frá WOW air var leyft að fara frá land­inu.

Isavia ohf., fyr­ir­tæki sem er að öllu leyti í eigu íslenska rík­is­ins, mun á næstu dögum stefna eig­anda sínum til greiðslu á um 2,2 millj­örðum króna í skaða­bætur auk vaxta sem eiga að reikn­ast frá 18. júlí 2019. Isavia, sem rekur með ann­ars Kefla­vík­ur­flug­völl, sendi kröfu­bréf til íslenska rík­is­ins vegna þessa 18. októ­ber síð­ast­lið­inn. Kjarninn hefur fengið það bréf afhent á grund­velli upp­lýs­inga­laga.

Ástæðan fyrir stefn­unni er óréttur sem Isavia telur sig hafa verið beitt þegar hér­aðs­dóm­ar­inn Ástríður Gríms­dóttir féllst á aðfara­beiðni Air Lease Corporation (ALC), eig­anda flug­vélar sem Isavia hafði kyrr­sett vegna skulda WOW air við sig, um að fá vél­ina afhenta með úrskurði sínum í júlí 2019. Fyr­ir­tækið telur að dóm­ar­inn hafi sýnt af sér „sak­næma og ólög­mæta hátt­semi við úrlausn máls­ins.“

Í kröfu­bréfi Isavia segir að fyr­ir­tækið telji að það væru „stór­kost­legir efn­is­legir og rétt­ar­fars­legir ann­markar á úrskurði hér­aðs­dóms“ um aðfara­beiðn­ina og að veil­urnar í rök­stuðn­ingi dóm­ar­ans í mál­inu „séu bæði svo alvar­legar og veru­legar“ að varla sé hægt að draga aðra ályktun en það hafi verið ásetn­ingur dóm­ar­ans að aðfara­að­gerðin næði fram að ganga áður en að Lands­rétti gæf­ist ráð­rúm til að end­ur­skoða og snúa við nið­ur­stöð­unni. Þá efast lög­maður Isavia um að dóm­ari máls­ins hafi fylli­lega skilið sak­ar­efni máls­ins.

Far­þega­þotan sem Isavia hafði kyrr­sett, sem var að Airbus-gerð og hefur skrán­ing­ar­núm­erið TF-GPA, flaug af landi brott 19. júlí. Isavia ætlar einnig að stefna ALC vegna máls­ins.

Mikið uppsafnað tap WOW air

Isavia og WOW air gerðu sam­komu­lag um það í lok sept­em­ber 2018, skömmu eftir að frægu skulda­bréfa­út­boði í WOW air hafði verið lokið, hvernig félagið átti að greiða upp skuld sína við Kefla­vík­ur­flug­völl. Skuld WOW air við Isavia hafði vaxið hratt mán­uð­ina á undan, og stóð í rúm­lega millj­arði króna í lok júlí 2018. Þá hafði hún tvö­fald­ast á rúmum mán­uði.

Nokkrum vikum áður en greint var frá því að skulda­bréfa­út­boði WOW air var gefin heim­ild fyrir rekstr­ar­lána­línu og/eða yfir­drátt­ar­láni á stjórn­ar­fundi Isavia upp á tvo millj­arða króna.

Isavia taldi sig geta tryggt að skuldin feng­ist greidd með vegna þess að ákvæði loft­ferða­laga ættu að heim­ila fyr­ir­tæk­inu að kyrr­setja vél WOW air til að tryggja greiðslu gjalda sem væru gjald­fall­inn.

Þegar WOW air fór svo loks í þrot í lok mars var skuld félags­ins við Isavia um tveir millj­arðar króna. Vélin sem var kyrr­sett fyrir greiðslu þeirrar skuldar, og WOW air hafði haft til umráða, var hins vegar ekki í eigu WOW air heldur hafði félagið leigt hana. Eig­and­inn var ALC og hann hafði engan áhuga á því að borga skuld WOW air til að losa vél­ina sína.

Deilur vegna þessa fóru víða um dóms­kerfið, og röt­uðu loks fyrir Hér­aðs­dóm Reykja­nes sem komst á end­anum að þeirri nið­ur­stöðu að ALC þyrfti ekki að greiða allar þær skuldir WOW air gagn­vart Isavia sem safn­ast höfðu upp heldur ein­ungis þær skuldir sem tengd­ust beint þot­unni sem kyrr­sett var. Í úrskurði dóm­ar­ans, Ástríðar Gríms­dóttur, kom einnig fram að ALC væri heim­ilt að sækja vél­ina sem hafði verið kyrr­sett. Henni var því flogið úr landi þann 19. júlí án þess að mála­rekstr­inum væri lokið fyrir íslenskum dóm­stólum, þar sem Isavia áfrýj­aði nið­ur­stöð­unni.

Fyr­ir­greiðslan við WOW air, og hin mislukk­aða til­raun til að end­ur­heimta hana frá ALC, skil­aði því að Isavia þurfti að færa niður kröfur sínar á hið gjald­þrota flug­fé­lag um 2,1 millj­arð króna. Það var stærsta ástæðan fyrir því að Isavia tap­aði rúm­lega 2,5 millj­örðum króna á fyrstu sex mán­uðum árs­ins 2019.

Ætluð saknæm og ólögmæt háttsemi

Lögmaður Isavia, Hlynur Hall­dórs­son frá Lands­lögum, bendir á í kröfu­bréfi sem Isavia sendi til rík­is­lög­manns 18. októ­ber, og Kjarninn hefur fengið afhent á grund­velli upp­lýs­inga­laga, að þegar Lands­réttur kvað upp úrskurð um aðfara­beiðni Isavia, eftir að mál­inu var áfrýjað þangað og eftir að flug­vélin kyrr­setta var farin frá Íslandi, hafi kröf­unum verið vísað frá. Ástæðan væri sú að hin marg­um­þrætta aðfar­ar­gerð væri um garð gengin og Isavia ætti því ekki lögvarða hags­muni af úrlausn um lög­mæti aðgerð­ar­innar. Í nið­ur­stöðu Lands­réttar hefði hins vegar þeirri lög­skýr­ingu sem beitt var til að frelsa flug­vél­ina hefði verið hafnað í fyrri nið­ur­stöðu hans. Auk þess felldi hann niður máls­kostnað.

Hæsti­réttur stað­festi síðan dóm Lands­réttar 23. sept­em­ber.

Þess vegna vill Isavia fá bætur frá íslenska rík­inu og byggir þá kröfu fyrst og fremst á bóta­reglu aðfar­ar­laga og dóm­stóla­lögum.

Kröfubréf lögmanns Isavia sem sent var til ríkislögmanns og dómsmálaráðuneytisins í síðustu viku.
Kröfu­bréf lög­manns Isavia sem sent var til rík­is­lög­manns og dóms­mála­ráðu­neyt­is­ins í síð­ustu viku.

Isavia telur að með úrskurði sínum þann 17. júlí 2019 hafi áður­nefndur dóm­ari við Hér­aðs­dóm Reykja­ness, sem heim­il­aði inn­setn­ing­una, sýnt af sér sak­næma og ólög­mæta hátt­semi við úrlausn máls­ins. Því beri sá dóm­ari skaða­bóta­á­byrgð á því fjár­hags­lega tjóni sem ákvörðun hans hafi valdið. Dómsmál vegna skaða­bóta­á­byrgðar verði þó ekki höfðað gegn dóm­ar­anum per­sónu­lega, heldur aðeins gagn­vart íslenska rík­inu.

Efast um að dómarinn hafi fyllilega skilið málið

Í yfir­lýs­ingu sem fyr­ir­tækið sendi Kjarn­anum segir að það hafi dóm­ar­inn meðal ann­ars gert með því að hunsa efn­is­lega nið­ur­stöðu Lands­réttar varð­andi kyrr­setn­ing­ar­á­kvæði loft­ferða­laga og með því að hafna kröfu Isavia um frestun rétt­ar­á­hrifa úrskurð­ar­ins þannig að Lands­réttur, og eftir atvikum Hæsti­réttur, gætu tekið úrlausn hér­aðs­dóms til end­ur­skoð­unar. „Isavia telur blasa við í ljósi und­ir­liggj­andi hags­muna að hér­aðs­dómur hafi átt að taka þá kröfu Isavia til greina.“

Í kröfu­bréfi lög­manns Isavia segir að veil­urnar í rök­stuðn­ingi dóm­ar­ans í mál­inu „séu bæði svo alvar­legar og veru­legar að varla er hægt að draga aðra ályktun en það hafi verið ásetn­ingur dóm­ar­ans að aðfara­að­gerðin næði fram að ganga áður en að Lands­rétti gæf­ist ráð­rúm til að end­ur­skoða og snúa við nið­ur­stöð­unni. Þá efast lög­mað­ur­inn um að dóm­ari máls­ins hafi fylli­lega skilið sak­ar­efni máls­ins í ljósi þess að hún segi í for­sendum úrskurðar síns að fjár­hags­legir hags­munir ALC í mál­inu væru meiri en Isavia. Það sé rangt, að mati lög­manns Isavia, enda hefði frestun rétt­ar­á­hrif í 6-8 vikur í við­bót ein­ungis bakað ALC tjón upp á að 85-114 millj­ónir króna sam­kvæmt upp­lýs­ingum frá félag­inu sjálfu. Það sé um 1/20 af því tjóni sem Isavia hafi orðið fyrir. „Umbjóð­andi minn skilur ekki þann órétt sem hann var beittur með fram­an­greindum úrskurði hér­aðs­dóms.“

Telja málið hafa fordæmisgildi

Guðjón Helgason, upp­lýs­inga­full­trúi Isavia, segir málið ekki ein­ungis snú­ast um hags­muni vegna tap­aðra fjár­muna. „Málið í heild sinni hefur for­dæm­is­gildi um hvernig við hjá Isavia högum rekstri okkar til fram­tíðar. Við þurfum að vita hvort við getum beitt kyrr­setn­ing­ar­heim­ild loft­ferða­laga áfram með þeim hætti sem við höfum gert, þ.e. kyrr­sett eina flug­vél fyrir heild­ar­skuld, eða hvort nauð­syn­legt verði til fram­tíðar að kyrr­setja allan flota flug­fé­laga í einu ef grípa þarf til aðgerða.“

Það breytir því þó ekki að krafa Isavia á hendur eig­anda sínum, rík­inu, er upp á tölu­verða fjár­muni, eða 1.372 millj­ónir króna í íslenskum krónum auk vaxta. Auk þess er farið fram á greiðslu um sex milljón evra, um 830 milljón króna. Sam­an­lagt er því farið fram á um 2,2 millj­arða króna. Um er að ræða þá upp­hæð sem Isavia taldi sig geta end­ur­heimt frá ALC vegna skulda sem WOW air hafði safnað upp við sig, með því að kyrr­setja vél­ina og heim­ila ekki brott­för hennar fyrr en að skuldin væri greidd.

Fyrir liggur að krafa Isavia í þrotabú WOW air yrði almenn, en ekk­ert mun fást greitt upp í slíkar kröfur að óbreyttu.

Frétta­skýr­ingin hefur verið upp­færð með við­bót­ar­upp­lýs­ingum um að krafa Isavia er hærri, um 2,2 millj­arðar króna, en upp­haf­lega kom fram.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

dómstólar

Mest lesið undanfarið ár