Stjórnsýsluúttekt Ríkisendurskoðunar vegna falls WOW air er tilbúin

Skýrsla Rík­is­end­ur­skoð­unar þar sem rýnt er í aðgerðir Sam­göngu­stofu og Isavia í aðdrag­anda þess að WOW air varð gjald­þrota í lok í mars 2019 er til­búin. Gera má ráð fyrir að úttektin verði tekin til umræðu í þing­nefnd eða -nefndum eftir páska.

WOW air féll 28. mars 2019.
WOW air féll 28. mars 2019. Mynd: Aðsend

Rík­is­end­ur­skoðun hefur lokið vinnu við stjórn­sýslu­út­tekt um aðkomu Sam­göngu­stofu og Isavia í kringum að starf­semi og rekstri WOW air í aðdrag­anda og kjöl­far gjald­þrots flug­fé­lags­ins. Gert er ráð fyrir að skýrslan verði tekin til umræðu á fyrsta fundi stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefndar Alþingis eftir páska­frí, þann 7. apríl.[links]

Umhverfis- og sam­göngu­nefnd þings­ins óskaði eftir þess­ari skýrslu í júní árið 2019 og bað sér­stak­lega um að kannað yrði hvaða heim­ildir Isavia hefði til að veita flug­rek­endum greiðslu­frest á lend­ingar- og þjón­ustu­gjöldum, eins og WOW air fékk á sínum tíma.

Í skýrslu­beiðn­inni var þess sér­stak­lega óskað að kannað yrði hvernig fyr­ir­greiðslur Isa­via við WOW air rím­uðu við sam­keppn­is­lög og rík­is­að­stoð­ar­reglur EES-­samn­ings­ins.

Skuldasöfnun hjá Isavia og eftirlit Samgöngustofu með rekstrarhæfi

Isavia þurfti sem kunn­ugt er að afskrifa yfir tvo millj­arða íslenskra króna vegna skuldar WOW air við opin­bera hluta­fé­lagið, sem Isavia leyfði WOW air að safna upp þegar félagið var komið í fjár­hags­erf­ið­leika. Isavia reyndi síðan, þegar WOW air var farið á haus­inn, að kyrr­setja þotu sem WOW air hafði á láni frá flug­véla­leigu­fyr­ir­tæk­inu AirLease Corporation (ALC) sem trygg­ingu fyrir skuld­inni.

Sú þota flaug af landi brott 19. júlí 2019 sam­kvæmt úrskurði Hér­aðs­dóms Reykja­ness, sem komst að þeirri nið­ur­stöðu að Isavia gæti ekki krafið ALC um ógreidd gjöld WOW air önnur en þau sem tengd­ust þess­ari til­teknu flug­vél.

Einnig var Rík­is­end­ur­skoðun falið að draga fram hvernig Sam­göngu­stofa hefði upp­fyllt lög­bundið hlut­verk sitt í aðdrag­anda falls WOW air, en stofn­unin hefur meðal ann­ars það hlut­verk að hafa eft­ir­lit með því að flug­fé­lög sem eru með útgefin flug­rekstr­ar­leyfi séu rekstr­ar­hæf.

[adspot]

Eftir að WOW air varð gjald­þrota 28. mars 2019 var stofn­unin gagn­rýnd fyrir að grípa ekki fyrr inn í rekstur félags­ins, þar sem ljóst var að eig­in­fjár­staða félags­ins var afar bág­borin og illa gekk að fá nýja fjár­festa að rekstr­in­um.

Trúnaður um skýrsluna þar til hún hefur verið kynnt nefndum

Að skýrslu­beiðni umhverfis- og sam­göngu­nefndar stóðu þing­menn­irnir Helga Vala Helga­dóttir, Jón Gunn­ars­son, Ari Trausti Guð­munds­son, Líneik Anna Sæv­ars­dóttir, Hanna Katrín Frið­riks­son, Vil­hjálmur Árnason, Rósa Björk Brynj­ólfs­dóttir, Karl Gauti Hjalta­son og Bergþór Ólason. Hún var sam­þykkt með öllum greiddum atkvæðum 18. júní 2019.

Skýrslan fæst ekki afhent frá Alþingi, en sam­kvæmt svari frá nefnda­sviði Alþingis til Kjarnans er venjan sú að skýrslur Rík­is­end­ur­skoð­unar séu ekki birtar opin­ber­lega fyrr en rík­is­end­ur­skoð­andi er búinn að kynna efni þeirra fyrir við­eig­andi nefndum þings­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Isavia

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár