Auðhumla hagnast um 364 milljónir

Rekstur kúa­bænda, í gegnum félagið Auðhumlu, batn­aði um ríf­lega hálfan millj­arð milli ára.

Auðhumla, sam­vinnu­fé­lag kúa­bænda, hagn­að­ist um 363,7 millj­ónir króna eftir skatta í fyrra og varð því tölu­verður við­snún­ingu frá fyrra ári þegar rekst­ur­inn var í tapi. Þá var 137 millj­óna tap á rekstr­inum. 

Þennan rúm­lega 500 millj­óna við­snún­ing má „fyrst og fremst rekja til tekna af erlendri starf­semi tengdri skyr­sölu og sölu­hagn­aðar af eigna­sölu“ segir í til­kynn­ingu frá Auðhumlu.

Aðal­fundur Auðhumlu sam­vinnu­fé­lags kúa­bænda fór fram í fund­ar­sal Mjólk­ur­sam­söl­unnar á Selfossi í dag.

Heild­ar­launa­greiðslur hjá félag­inu og dótt­ur­fyr­ir­tækjum þess 3.183 millj­ónir króna á síð­asta ár. Eigið fé sam­stæð­unnar var í árs­lok 7,5 millj­arðar króna.

Kúa­bændum sem leggja inn mjólk til Auðhumlu fækk­aði um 38 árið 2016 og er það hrað­ari fækkun en hefur verið um ára­bil en inn­leggj­endur í árs­lok voru 546. „Margt bendir til að við­líka fækkun verði á yfir­stand­andi ári og verði inn­leggj­endur þá um 500 í lok þessa árs,“ segir í til­kynn­ingu frá Auðhumlu.

Á aðal­fund­inum var til­kynnt um sam­starfs­verk­efni Auðhumlu svf. og Matís ohf. sem miðar að því að styðja og styrkja frum­kvöðla til þess að þróa og koma nýjum hug­myndum byggðum á mjólk á fram­færi. Styrkirnir eru að hámarki 3 millj­ónir en stuðn­ing­ur­inn felst í t.d sér­fræði­ráð­gjöf, aðstoð við að koma vöru á markað, upp­setn­ingu vinnu­ferla, vöru­þróun, umbúða­hönnun, mat­væla­ör­yggi og mæl­ingar en einnig kemur til greina að standa fyrir nám­skeiðum fyrir smá­fram­leið­endur eða afla nýrrar þekk­ingar.

Árs­reikn­ing­ur­inn, sem hér er aðgengi­legur, er sam­stæðu­reikn­ingur Auðhumlu svf. og dótt­ur­fé­laga. Þau eru Mjólk­ur­sam­salan ehf. (MS), sem er í 90,1% eigu félags­ins, Bitru­háls ehf. og Kostur ehf. sem eru í 100% eigu Auðhumlu. Þá nær reikn­ing­ur­inn til Mjólk­ur­bús Flóa­manna ehf. og Norð­ur­mjólkur ehf. sem eru ekki í rekstri en í 100% eigu Auðhumlu svf., segir í til­kynn­ingu Auðhumlu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár