Bjarkey vill vita hvers vegna Illugi hefur ekki svarað fjölmiðlum

Bjarkey Olsen Gunn­ars­dóttir, þing­maður Vinstri grænna, vill að Illugi Gunn­ars­son mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra geri grein fyrir því hvers vegna hann hefur ekki svarað spurn­ingum fjöl­miðla um tengsl sín við fyr­ir­tækið Orku Energy og for­svars­menn þess í tæpt hálft ár, og hvernig það sam­ræm­ist upp­lýs­inga­lögum. Þetta er meðal þess sem kemur fram í fyr­ir­spurn Bjarkeyjar til Illuga, sem var dreift á Alþingi í dag.

Bjarkey vill að ráð­herr­ann greini frá því hvenær hann hafi síð­ast fengið laun, lán eða „aðra fjár­hags­lega fyr­ir­greiðslu“ frá fyr­ir­tæk­inu eða for­svars­mönnum þess, og hversu háar upp­hæðir þar hafi verið um að ræða. Hún vill líka vita hvort hann hafi þegið boðs­ferðir á borð við lax­veiði­ferðir frá þeim meðan hann hefur verið ráð­herra og hvort hann hafi þegið ein­hverjar aðrar gjafir frá Orku. Þá spyr Bjarkey hvort Illugi hafi „greitt götu fyr­ir­tæk­is­ins eða for­svars­manna þess með ein­hverjum hætti í ráð­herra­tíð sinni.“

Líka spurður beint í þinginu


Ásta Guðrún Helga­dóttir, þing­maður Pírata, spurði Illuga líka út í málið í óund­ir­búnum fyr­ir­spurn­ar­tíma á Alþingi í morgun. Hún spurði hann fyrst um stöðu hans gagn­vart frum­varpi sem hún hefur lagt fram og fjallar um upp­lýs­inga- og sann­leiks­skyldu ráð­herra. Svo spurði hún á hverra vegum Illugi hefði verið í Kína árið 2013, hver hefði greitt veiði­leyfi í Vatns­dalsá árið 2013 og hver væru tengsl ráð­herr­ans við Orku Energy.

Illugi svar­aði því til að heim­sóknin til Kína hefði verið vinnu­heim­sókn ráð­herra, emb­ætt­is­manna, rekt­ora þriggja háskóla og for­stöðu­manns Rannís. „Hitt er alveg hár­rétt að á sama tíma voru í Peking full­trúar frá fyr­ir­tæk­inu Orku Energy, sem um hefur verið rætt hér, og einn full­trúi frá fyr­ir­tæk­inu Marel.“ Þá sagði hann að hann hefði í sínum fórum kvittun fyrir greiðslum sínum fyrir veiði­ferð í Vatns­dalsá og kostnað við hana.

Hefur ekki íhugað stöðu sína


Illugi seg­ist ekki hafa íhugað stöðu sína vegna Orku Energy-máls­ins, að því er fram kom í við­tali við hann á RÚV fyrr í dag. „Það þyrfti þá að vera hægt að segja að ég hefði með ein­hverjum hætti veitt þessu fyr­ir­tæki óeðli­lega fyr­ir­greiðslu, það hefur ekki verið með nokkum hætti sýnt fram á eða bent á.“

Illugi vildi fyrst ekki ræða málið við frétta­stofu RÚV, vegna þess að hann hefur þegar farið í við­tal í Frétta­blað­inu sem verður birt á morgun. Hann sagði við RÚV að þar ræddi hann ítar­lega um málið og gæti rætt við aðra fjöl­miðla í kjöl­farið. Svo mán­uðum skiptir hefur Illugi ekki viljað tala við fjöl­miðla um málið þrátt fyrir ítrek­aðar fyr­ir­spurnir.

Illugi seg­ist þó skilja umræð­una en segir jafn­framt að það væri mjög und­ar­legt ef hann væri að íhuga stöðu sína, því þá hefðu aðrir ráð­herrar sem hefðu átt sams­konar sam­vinnu við fyr­ir­tækið átt að gera slíkt hið sama. Frétta­maður RÚV benti þá á að hann sé fjár­hags­lega háður stjórn­ar­for­manni fyr­ir­tæks­ins, og í því liggi mun­ur­inn. Illugi neit­aði því að vera fjár­hags­lega háður þrátt fyrir að stjórn­ar­for­maður fyr­ir­tæk­is­ins hafi keypt af honum íbúð og leigi Illuga hana til baka.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár