Framsókn hefði fengið 19 prósent með Sigmund sem formann, segir Sigmundur

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, fyrrverandi formaður Framsóknarflokksins.
Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, fyrr­ver­andi for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins. Mynd: Birgir Þór

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, fyrr­ver­andi for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, segir átök á flokks­þingi flokks­ins í byrjun októ­ber, þar sem hann tap­aði for­manns­kosn­ingu, vera ástæðu þess að Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn tap­aði jafn miklu fylgi og raun ber vitni í kosn­ing­unum um helg­ina. Hann seg­ist hafa hitt fjölda fólks sem sagð­ist ekki geta kosið Fram­sókn­ar­flokk­inn vegna átak­ana á flokks­þing­inu. Sjálf­stæð­is­menn hafi hins vegar staðið saman í kosn­inga­bar­átt­unni og það hafi skilað þeim flokki miklu. Þetta kemur fram í Morg­un­blað­inu í dag.

Í Frétta­blað­inu segir Sig­mundur Davíð að hann hefði getað tryggt flokknum 18 til 19 pró­sent atkvæða í kosn­ing­unum ef hann hefði verið for­maður. „Ég var búinn að leggja drög að því hvernig með öfl­ugri kosn­inga­bar­áttu hefðum við getað hækkað fylgið um kannski fjögur pró­sentu­stig og svo kannski tvö í við­bót í kosn­ing­unum sjálfum. Við hefðum þá getað gert ráð fyrir 18 til 19 pró­senta fylgi.“

Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn hefur aldrei fengið hlut­falls­lega færri atkvæði í alþing­is­kosn­ingum í 100 ára sögu sinni og hann fékk á laug­ar­dag. Alls fékk flokk­ur­inn 11,5 pró­sent atkvæða og átta þing­menn, en hafði fengið 24,4 pró­sent árið 2013 og 19 þing­menn. Versta nið­ur­staða flokks­ins fyrir þessa var árið 2007 þegar Jón Sig­urðs­son stýrði flokknum og hann fékk 11,7 pró­sent atkvæða. Þá fékk flokk­ur­inn hins vegar færri þing­menn, eða sjö.

Ástæða þess að kosið var nú í októ­ber, en ekki næsta voru þegar kjör­tíma­bil­inu átti að ljúka, var hið svo­kall­aða Wintris-mál og vera ann­arra ráð­herra rík­is­stjórn­ar­innar í Panama-skjöl­unum sem opin­beruð voru í byrjun apríl síð­ast­liðnum. Wintris-málið snérist um að Sig­mundur Davíð hafi átt félag á aflandseyj­unni Tortóla til helm­inga gegn eig­in­konu sinni. Í félag­inu eru miklar eignir, þótt að ekki hafi verið greint frá því opin­ber­lega nákvæm­lega hverjar þær eru. Félagið var einnig kröfu­hafi í slitabú föllnu bank­anna. Sig­mundur Davíð var spurður út í félagið í sjón­varps­þætti 3. apríl 2016 og þar sagði hann ósátt um til­urð þess og til­gang. Hann rauk síðan út úr við­tal­inu. Daginn eftir mættu 26 þús­und manns á stærstu mót­mæli Íslands­sög­unnar fyrir framan Alþingi og þriðju­dag­inn 5. apríl sagði Sig­mundur Davíð af sér sem for­sæt­is­ráð­herra.

Hann snéri síðan aftur í stjórn­mál í lok júlí og reyndi að koma í veg fyrir að kosn­ingar yrðu haldnar í haust. Hann reyndi einnig að koma í veg fyrir að flokks­þing Fram­sókn­ar­flokks­ins yrði haldið í aðdrag­anda kosn­inga en hvor­ugt gekk eftir. Á flokks­þing­inu bauð Sigurður Ingi Jóhanns­son sig fram til for­mennsku í Fram­sókn­ar­flokknum gegn Sigmundi Davíð og sigr­aði.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2016

Fréttirkosningar2016

Ekki ein­hugur um ráð­herra­val innan Sjálf­stæð­is­flokks­ins

Ein­hverjir þing­menn Sjálf­stæð­is­flokks­ins studdu ekki til­lögu Bjarna Bene­dikts­sonar, for­manns flokks­ins, um ráð­herra­skipan í nýrri rík­is­stjórn. Birgir Ármanns­son, sem tók við sem þing­flokks­for­maður af Guðlaugi Þór Þórð­ar­syni í gær, segir að til­laga Bjarna hafi þó verið sam­þykkt með afger­andi hætti. Þetta kemur fram í Morg­un­blað­inu. Þar er rætt við Harald Bene­dikts­son, odd­vita Sjálf­stæð­is­manna í Norð­vest­ur­kjör­dæmi. Hann seg­ist sjálfur sáttur við að...
Fréttirkosningar2016

Stjórn­ar­sátt­máli: Evr­ópu­mál fara til þings­ins undir lok kjör­tíma­bils

Í drögum að stjórn­ar­sátt­mála rík­iss­stjórnar Sjálf­stæð­is­flokks, Við­reisnar og Bjartrar fram­tíðar kemur fram að hún muni ekki leggja fram til­lögu á Alþingi varð­andi umsókn Íslands um aðild að Evr­ópu­sam­band­inu á þessu kjör­tíma­bili. Þar segir hins vegar að þing­menn stjórn­ar­meiri­hlut­ans geti stutt þing­mál varð­andi umsókn­ar­ferli að Evr­ópu­sam­band­inu komi slíkt mál fram undir lok kjör­tíma­bils­ins. Frá þessu er greint í Morg­un­blað­inu. Þetta er...
Fréttirkosningar2016

Þingmenn innan Sjálf­stæð­is­flokks efast um sam­starf við miðju­flokka

Fullyrt er í Morg­un­blað­inu í dag að hluti þing­manna Sjálf­stæð­is­flokks efist um ágæti þess að mynda rík­is­stjórn með Viðreisn og Bjartri fram­tíð. Þeir meti það hins vegar sem svo að Bjarni Bene­dikts­son, for­maður flokks­ins, hafi óskorað umboð til þess að mynda slíka rík­is­stjórn. Form­legar stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræður flokk­anna þriggja hafa staðið yfir alla þessa viku eftir að Bjarni fékk stjórn­ar­mynd­un­ar­um­boð frá for­seta...

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár