Bar­áttu­kona Inga Dóra Guð­munds­dóttir er kona tveggja heima. Hún ólst upp á Íslandi en varð full­orðin á Græn­landi og vann þar póli­tíska sigra. Nú býr hún á Íslandi. Mynd: Kristinn Magnússon

Stúlkan með mávsungann

Inga Dóra Guðmunds­dóttir ólst upp á Íslandi til 12 ára aldurs en flutti þá til Grænlands. Hún varð landsliðs­kona í tveimur löndum. Æsku­vinkona hennar og frænka var myrt í fjölda­morði. Hún varð bæjar­fulltrúi í Nuuk eftir glæsi­legan kosninga­sigur. Seinna varð hún áhrifa­mesti ritstjóri Grænlands. Nú er hún framkvæmda­stjóri Vestnorræna ráðsins.

„Ég gleymi aldrei jarðar­förinni í Narsaq. Það var vindur og hræðilega kalt þar sem hundruð manna stóðu í kirkju­garðinum til að kveðja fólk sem með réttu hefði átt að vera að byrja líf sitt en ekki enda það,“ segir Inga Dóra Guðmunds­dóttir Markussen, um fjölda­morð á ungmennum sem átti sér stað á Suður-Grænlandi þegar hún var rúmlega tvítug. Meðal hinna föllnu var náfrænka hennar.

Inga Dóra á að baki feril sem áberandi bæjar­fulltrúi í Nuuk. Seinna varð hún ritstjóri AG, áhrifa­mesta blaðs Grænlands, og fletti ofan af spillingar­málum í samfélaginu.

Inga Dóra fæddist á Íslandi og ólst þar upp til 12 ára aldurs þegar hún flutti með fjöl­skyldu sinni til Grænlands. 

„Ég fæddist á Þorláks­messu­kvöld árið 1971 í Reykjavík. Mamma og pabbi höfðu kynnst í Kaupmanna­höfn. Hann frá Íslandi en hún frá Grænlandi. Þetta var á hippa­tímabilinu. Þau sáust fyrst á barnum Skipperkroen í borginni. Þegar mamma birtist hélt pabbi að hún væri indíáni. Hún leit út eins og Pocahontas. Hann féll strax fyrir henni og varð hugfangin. Þetta reyndist vera ást við fyrstu sýn og þau hafa verið saman síðan.“

Alin upp í Breiðholti 

Litla fjöl­skyldan var framan af á leigu­markaði. Hjónin, Guðmundur Þorsteinsson og Benedikte Thorsteinsson, störfuðu bæði í álverksmiðjunni í Straumsvík. Hún á skrif­stofunni en hann var í verksmiðjunni, lengi sem trúnaðar­maður. Þau keyptu í fyllingu tímans íbúð í Stranda­seli í Breið­holti. Þar ólst Inga Dóra upp.

„Ég stundaði nám í Öldusels­skóla. Á sumrin fór ég til móður­fjölskyldu minnar á Suður-Grænlandi. Mamma var sátt við að búa á Íslandi en pabbi var altekinn af þeirri hugmynd að flytja til Grænlands og taka við búinu af afa og ömmu. Mamma er frá sveitabæ sem heitir Eqaluit. Hann er austan við Qaqortoq, um hálftíma siglingu þaðan. Nafn bæjarins útleggst á íslensku „Þar sem silungurinn er“. Grænlenskan er myndmál, gjarnan sett saman úr fleiri en einu orði. Þannig er eldhús staðurinn þar sem potturinn er. Vorið 1984 var ákveðið að flytja til Grænlands. Þá vorum við systkinin orðin þrjú. Súsan Ýr var næst mér í aldri og Andreas Þorsteinn yngstur.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið undanfarið ár