Miðaldra maður 11 milljónum ríkari eftir peningafund

Maður sem fann 730.000 sænskar krónur, and­virði rúm­lega 11 millj­óna íslenskra króna, á gang­stétt í sænska smá­bænum Berga í Kalmar, má eiga alla pen­ing­ana. Hann hafði skilað pen­ing­unum til lög­reglu en eng­inn eig­andi gaf sig fram. Frá þessu er greint á The Local.

Krón­urnar 730.000 voru allar í sænskum seðlum sem voru inn­pakk­aðir í pappír. Maðurinn fann pakk­ann í veg­brún í iðn­að­ar­hverfi í bænum þegar hann var í göngutúr fyrr í ár. Hann fór rak­leiðis með pen­ing­ana til lög­regl­unnar í Hels­ing­borg þar sem málið hefur verið til rann­sóknar en í Berga búa aðeins rúm­lega 700 manns.

Samkvæmt sænskum lögum á sá fund sem finnur, hafi lög­mætur eig­andi ekki gefið sig fram innan þriggja mán­aða. Lög­reglan í Hels­ing­borg til­kynnti svo í morgun að pen­ing­unum hafi verið skilað til hins nýja sam­visku­sama eig­anda.

„Við höfum fært manni á miðjum aldri 730.000 krónur í seðlum. Seðl­arnir eru allir ófals­aðir,“ sagði Richard Glantz, tals­maður lög­regl­unnar við dag­blaðið Sydsvenskan. Hann sagði málið jafn­framt mjög und­ar­legt og full­yrti að aldrei hefðu fund­ist svo háar fár­hæðir á víða­vangi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár