Kjarnorkuógnin frá Norður-Kóreu vex stöðugt

Sér­fræð­ingar segja ekk­ert benda til ann­ars en að til­raunir með lang­drægar flaugar muni halda áfram.

Kim Jong-Un, leið­togi Norður-Kóreu, virð­ist ein­beittur í því að koma upp kjarn­orku­vopnum og lang­drægum flaugum sem geta ógnað helstu and­stæð­ingum ríks­ins, einkum Japan, Suður-Kóreu og Banda­ríkj­unum.

Þrátt fyrir mislukkuð skot á flaugum að und­an­förnu, þá bendir ekk­ert til þess að hann sé af baki dotti, að því er haft er eftir Fraser Cameron, sem stýr EU-Asia Center stofn­un­inni, í við­tali við NBC, að allt bendi til þess að leið­tog­inn láti sér fátt um finn­ast þó skot á flaugum mis­heppn­ist.

Á und­an­förnum sex mán­uðum hefur tíðni skota á flaugum frá skot­svæðum í Norður-Kóreu auk­ist jafnt og þétt og hafa flaug­arnar sem hafa lent næst Japan, verið í um 350 kíló­metra frá landi. Stjórn­völd í Japan hafa harð­lega gagn­rýnt Norður-Kóreu og kraf­ist taf­ar­lausra aðgerða af hálfu Sam­ein­uðu þjóð­anna og einnig óskað eftir meiri stuðn­ingi Banda­ríkj­anna.

Donald Trump hefur heitið „100 pró­sent stuðn­ingi” við Japan og Suður-Kóreu og Rex Tiller­son, utan­rík­is­ráð­herra, hefur enn fremur stað­fest að Banda­ríkin séu til­búin að beita frum­kvæð­is­hern­aði ef á þarf að halda, láti Norður-Kórea ekki af til­raunum sínum með flaugar sem geta drifið fleiri þús­und kíló­metra í lofti áður en þær springa við lend­ingu.

Kín­verjar hafa lengi verið helsti stuðn­ingur Norður-Kóreu, en ekki er lengur á vísan að róa í þeim efnum. Kínversk stjórn­völd hafa komið því á fram­færi að látið verði af til­raunum með lang­drægar flaugar þegar í stað.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár