FME segir eftirlit með innherjum ekki hafa minnkað þrátt fyrir minni kvaðir

Skil­grein­ingin á inn­herjum fyr­ir­tækja tók breyt­ingum nýlega með nýjum lögum sem byggja á evr­ópskri reglu­gerð. Samkvæmt Fjár­mála­eft­ir­lit­inu mun fækka í hópi þeirra sem taldir eru hafa aðgang að mestu inn­herj­a­upp­lýs­ingum með laga­breyt­ing­unni.

Sá hópur sem tal­inn er hafa mestan aðgang að inn­herj­a­upp­lýs­ingum fyr­ir­tækja hefur nú minnkað, auk þess sem til­kynn­ing­ar­skylda hans hefur fallið niður í kjöl­far nýrrar laga­setn­ingar sem tók gildi í byrjun mán­að­ar­ins.

Þrátt fyrir það segir Fjár­mála­eft­ir­lit Seðla­bank­ans (FME) að eft­ir­lit með inn­herjum hafi ekki minnkað, heldur sé það í meira mæli í höndum útgef­enda fjár­mála­gern­inga. Þetta kemur fram í svari FME við fyr­ir­spurn Kjarnans um málið.

Hugtakið innherji ekki lengur notað

Lögin sem um ræðir eru um aðgerðir gegn mark­aðs­svikum, en þau voru sam­þykkt á alþingi í lok maí. Þau eru í sam­ræmi við reglu­gerð sem Evr­ópu­sam­bandið kynnti árið 2016 og er kölluð MAR, en hún var inn­leidd til þess að inn­leiða sömu reglur gegn mark­aðs­svikum hjá öllum aðild­ar­ríkjum sam­bands­ins og aðlaga þær að tækni­breyt­ingum og alþjóð­legri glæp­a­starf­semi í fjár­málum.

Samkvæmt dreifi­bréfi Seðla­bank­ans til þeirra sem gefa út fjár­mála­gern­inga breyt­ist skil­grein­ingin á inn­herjum tölu­vert með nýju lög­unum. Strangt til tekið er hug­takið inn­herji ekki lengur að finna í laga­text­anum, ein­ungis ein­stak­linga sem hafa aðgang að inn­herj­a­upp­lýs­ingum.

Tilkynningarskylda og birting innherjalista felld niður

Þeir sem höfðu mesta aðgang­inn að inn­herj­a­upp­lýs­ingum voru kall­aðir frum­inn­herjar í gömlu lög­unum. Fyr­ir­tækjum bar skylda til að senda FME lista af öllum frum­inn­herjum þeirra, auk þeirra sem áttu tíma­bund­inn aðgang að slíkum upp­lýs­ingum, en þeir voru kall­aðir tíma­bundnir inn­herjar.

Einnig þurftu frum­inn­herjar að til­kynna sér­stak­lega ef þeir, eða aðrir tengdir þeim, vildu eiga í við­skiptum við fyr­ir­tækið sem þeir gætu nálg­ast inn­herj­a­upp­lýs­ingar um.

Með nýju lög­unum falla þessar tvær kvaðir á brott. Fyr­ir­tæki þurfa ekki að senda FME lista af inn­herjum sínum, nema eft­ir­litið óski eftir því. Sömu­leiðis þurfa frum­inn­herjar ekki að til­kynna um við­skipti sín.

Til við­bótar er sá hópur sem tal­inn er eiga mesta aðgang­inn að inn­herj­a­upp­lýs­ingum fyr­ir­tækj­anna orð­inn minni en hann var í nýju lög­unum. Samkvæmt fjár­mála­eft­ir­liti Evr­ópu­sam­bands­ins ein­ungis að sam­an­standa af fram­kvæmda­stjóra, fjár­mála­stjóra, stjórn­ar­for­mann og ann­arra hátt settra starfs­manna fyr­ir­tækja, en svo­kall­aðir frum­inn­herjar voru skil­greindir með víð­ari hætti í gömlu lög­unum

Ekki minna eftirlit, en öðruvísi

Samkvæmt svari FME við fyr­ir­spurn Kjarnans um áhrif laga­breyt­ing­anna segir stofn­unin að eft­ir­lit með inn­herjum hafi ekki minnkað með til­komu MAR-reglu­gerð­ar­innar. Hins vegar hafi það nú breyst, t.d. með því að útgef­endur fjár­mála­gern­inga þurfa að fylgj­ast enn betur með því hverjir hafi aðgang að inn­herj­a­upp­lýs­ingum þegar þær mynd­ast og eiga þar af leið­andi að vera á atviks­bundnum inn­herj­a­lista.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár