Fjármálaráðuneytið vísar gagnrýni Vigdísar Hauksdóttur á bug

Hluti gagn­anna um end­ur­reisn banka­kerf­is­ins er trún­að­ar­gögn vegna þess að þau hafa að geyma við­kvæmar fjár­hags­upp­lýs­ingar um til­greinda ein­stak­linga og lög­að­ila sem fjár­mála­ráðu­neytið má ekki gera opin­ber. Hluti gagn­anna fjallar einnig um lög­skipti sem ráðu­neytið er ekki aðili að, þótt afrit af þeim séu að finna í ráðu­neyt­inu. Þá er það ekki á ábyrgð fjár­mála­ráðu­neyt­is­ins hvernig farið er með trún­að­ar­gögn sem send eru til Alþingis, heldur á ábyrgð þings­ins.

Þetta kemur allt fram í til­kynn­ingu frá fjár­mála­ráðu­neyt­inu, sem svarar með því gagn­rýni frá Vigdísi Hauks­dóttur, þing­manni og for­manni fjár­laga­nefndar Alþingis, frá því um helg­ina.

Í Morg­un­blað­inu um helg­ina sagði Vigdís að verið væri að slá „svaka­legri leynd“ yfir gögn um end­ur­reisn banka­kerf­is­ins.

Gögn um stofnun nýju bank­anna eru aðgengi­leg þing­mönnum en engum öðrum, en Vigdís fann að því í blað­inu um helg­ina, og aftur í sjón­varps­þætt­inum Eyjunni í gær, að blað­síður vant­aði í gögnin. Meðal ann­ars væri þar um að ræða fund­ar­gerðir. Hún segir aug­ljóst að átt hafi verið við gögnin, sem sé refsi­vert og alvar­legt. „Svo þegar þau ber­ast þing­inu þá er það með þeim hætti að það er slegin á það trún­aður. Mjög líkt og gert var í Icesave-mál­inu. Þegar þetta ger­ist svo núna í annað sinn að það séu send gögn til þings­ins og það merkt trún­aður og allir þing­menn hafa eft­ir­lits­skyldu með fram­kvæmda­vald­inu, þá get ég ein­fald­lega ekki sætt mig við það,“ sagði hún í Eyjunni.

Vigdís sagð­ist í Morg­un­blað­inu hafa beðið um fund með for­seta þings­ins í þess­ari viku til að ræða þessi mál. „Það er rosa­lega skrýtið að fram­kvæmda­valdið skuli geta sett þetta skil­yrði gagn­vart þing­mönnum því alþing­is­menn allir hafa eft­ir­lits­skyldu með fram­kvæmda­vald­inu.“

Tvær fundargerðir týndar

Fjár­mála­ráðu­neytið greinir einnig frá því að það hafi látið stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefnd Alþingis hafa öll umbeðin gögn áframs fleiri minn­is­blöðum og vinnu­gögnum.

„Bent hefur verið á að tvær fund­ar­gerðir af fundum stýrinefndar um samn­inga við erlenda kröfu­hafa föllnu bank­anna liggi ekki fyrir. Það er rétt, en eins og áður hefur komið fram hafa þessar fund­ar­gerðir ekki fund­ist. Eftir ítrek­aða leit er það nið­ur­staða ráðu­neyt­is­ins að skýr­ingin sé sú að láðst hafi að halda fund­ar­gerð­irnar í fjar­veru rit­ara og þær því ekki til, sem er vissu­lega miður,“ segir í svar­inu.

Þá segir ráðu­neyið líka að þess hafi alltaf verið gætt í hví­vetna að virða lög og reglur sem gilda um með­ferð opin­berra gagna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár