Fyrstu úrsagnir úr Alþjóða sakamáladómstólnum í Haag

Rússland hefur ákveðið að hætta að styðja Alþjóða saka­mála­dóm­stól­inn í Haag. Áður höfðu Suður-Afríka, Gambía og Búrúndi gert slíkt hið sama á þessu ári. Er að fjara undan til­veru­grund­velli dóm­stóls­ins?

Stjórn­völd í Rúss­landi hafa ákveðið að draga til baka stuðn­ing sinn við Alþjóða saka­mála­dóm­stól­inn í Haag (e. International Criminal Court (ICC)) eftir að dóm­stóll­inn birti skýrslu í vik­unni sem gagn­rýnir meinta stríðs­glæpi Rússa í kjöl­far inn­rás­ar­innar á Krím­skaga í byrjun árs 2014. Rússland bæt­ist í hóp þriggja Afr­íku­ríkja; Suður-Afríka, Gambía og Búrúndí, sem hafa til­kynnt úrsögn sína úr dóm­stólnum á þessu ári.

Skýrslan umrædda sem birt­ist í vik­unni skil­greinir átökin á Krím­skaga í kjöl­far inn­rás Rúss­lands í byrjun árs 2014 sem vopnuð átök á milli tveggja ríkja, Rúss­lands og Úkraínu. Yfir níu þús­und manns hafa látið lífið í átök­unum enn sem komið er og dregur skýrslan upp mynd af fjöl­mörgum meintum stríðs­glæpum af hendi Rússa sem hafa átt sér stað frá upp­hafi átak­anna, þar á meðal atvikið árið 2014 þegar far­þega­flug­vél Malaysia Airlines var skotin niður með rúss­nesku flug­skeyti í aust­ur­hluta Úkraínu með 298 far­þega um borð.

Rússnesk yfir­völd hafa tjáð að þeim þykir skýrslan vera „mót­sögn við raun­veru­leik­ann“ og hafa bent á þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu sem fram­kvæmd var af rúss­neskum yfir­völdum á Krím­skaga árið 2014 eftir inn­rás sína sem sönnun þess að yfir­taka þeirra á land­svæð­inu hafi verð lögum sam­kvæmt. Samkvæmt þjóð­ar­at­kvæða­greiðsl­unni studdu 97% kjós­enda inn­limun Krím­skaga í Rússland en hún hefur ekki verið sam­þykkt af flest­öllum ríkjum í heimi og harð­lega gagn­rýnd af alþjóða­stofn­unum.

Það ber að nefna að þótt að Rússland hafi und­ir­ritað sátt­mál­ann árið 2000 skömmu eftir að honum hafði verið teflt fram þá hafi landið aldrei full­gilt hann. Staða Rúss­lands gagn­vart sátt­mál­anum er því sú sama og staða Banda­ríkj­anna sem drógu und­ir­skrift sína til baka í for­seta­tíð George W. Bush árið 2002. Úkraína hefur und­ir­ritað sátt­mál­ann en aldrei full­gilt hann. Eftir því sem Rússland hefur aldrei full­gilt sátt­mál­ann eru afleið­ing­arnar að mestu leyti tákn­rænar, en það sama er ekki uppi á ten­ingnum hjá hinum ríkj­unum sem hafa gengið úr dóm­stólnum í ár.

Óhreint mjöl í pokanum

Þann 21. októ­ber síð­ast­lið­inn til­kynnti rík­is­stjórn Suður-Afríku að landið hygð­ist ganga úr dóm­stólnum. Búrúndí og Gambía hafa gert hið sama á þessu ári og var hið fyrr­nefnda fyrsta aðild­ar­landið í sög­unni til að sækj­ast eftir því að ganga úr dóm­stólnum. Þá hefur umræða átt sér stað í Keníu um hvort landið eigi að ganga úr dóm­stólnum og hefur málið verið tekið fyrir í Afr­íku­sam­band­inu.

Kring­um­stæður úrsagn­anna gefa þó til kynna að þjóð­höfð­ingjar land­anna þriggja hafa umfangs­mik­illa eig­in­hags­muna að gæta í tengslum við ákvörð­un­ina. Þingið í Búrúndí sam­þykkti til­lögu þann 12. októ­ber um að draga aðild sína að dóm­stólnum til baka sama dag og Sam­ein­uðu þjóð­irnar (SÞ) til­kynntu að hefja ætti rann­sókn á meintum skipu­lögðum mann­rétt­inda­brotum af hálfu stjórn­valda í land­inu. Aðgerðir stjórn­valda hafa beinst gegn mót­mæla­hreyf­ingu sem byrj­aði vorið 2015 eftir að for­seti lands­ins, Pierre Nkurunziza, til­kynnti að hann myndi sækj­ast eftir öðru end­ur­kjöri en það myndi brjóta í bága við stjórn­ar­skrá lands­ins sem bannar for­seta að sitja lengur en tvö kjör­tíma­bil. Nkurunziza, sem inn­leiddi bann við að skokka vorið 2014 af ótta við að upp­reisn­ar­menn skokk­uðu til að skipu­leggja sig, til­kynnti að rann­sókn SÞ væri hluti af sam­særi gegn Búrúndí en sem leið­togi lands­ins yrði hann ábyrgur fyrir dóm­stólnum ef rann­sóknin sýndi fram á það sem grunað er að hafi átt sér stað; glæpir gegn mann­kyn­inu og hugs­an­legt þjóð­ar­morð.

Tog­streita á milli yfir­valda Suður-Afríku og dóm­stóls­ins hafa kraumað í langan tíma en úrsögn lands­ins þann 20. októ­ber á rætur sínar að rekja til gagn­rýni dóm­stóls­ins við yfir­völd fyrir að hand­taka ekki for­seta Súdan, Omar Hassan al-Bashir, á meðan hann var í Suður-Afríku í opin­berri heim­sókn í fyrra. Al-Bashir hefur yfir sér hand­töku­skipun frá dóm­stólnum fyrir stríðs­glæpi, glæpum gegn mannúð, og þjóð­ar­morði í tengslum við hin langvar­andi átök í Darfúr-hér­aði í Súdan en sam­kvæmt sátt­mála dóm­stóls­ins er aðild­ar­löndum skylt að hand­taka slíka ein­stak­linga.

Nokkrum dögum eftir úrsögn Suður-Afríku bætt­ist Gambía í hóp­inn. Yfirvöld í Gambíu ásök­uðu dóm­stól­inn fyrir hlut­drægni og rasísma og sögðu að „þessi aðgerð [að ganga úr dóm­stólnum] er rétt­læt af þeirri stað­reynd að ICC, þrátt fyrir að vera kall­aður International Criminal Court, er í raun International Caucasian Court og er til að ofsækja og nið­ur­lægja litað fólk, sér­stak­lega Afr­íku­búa.“ Forseti Gambíu, Yahya Jammeh, hefur verið við völd frá árinu 1994 þegar hann sem ungur hers­höfð­ingi leiddi vellukkað valda­rán sem steypti Dawda Jawara, fyrsta for­seta Gambíu eftir sjálf­stæði árið 1970. Jammeh hefur verið ásak­aður um ítrekuð mann­rétt­inda­brot á blaða­mönnum, mann­rétt­inda­verj­endum, póli­tískum and­stæð­ingum, og hinsegin fólki.

Bjögun og síðlendustefna?

Þrátt fyrir að þau lönd sem hafa til­kynnt úrsögn sína úr dóm­stólnum eigi það sam­eig­in­legt að koma að málum eða rann­sóknum dóm­stóls­ins með einum eða öðrum hætti er ekki þar með sagt að hluti af þeirra gagn­rýni sem dóm­stóll­inn hefur sætt eigi ekki rétt á sér. Leið­togar margra Afr­íku­ríkja hafa gagn­rýnt dóm­stól­inn harð­lega vegna til­hneigðar hans til að bara taka fyrir mál frá Afr­íku­ríkjum; níu af tíu málum sem dóm­stóll­inn hefur tekið fyrir hingað til snú­ast um meinta glæpi sem hafa átt sér stað í Afríku, og allir þeir 39 ein­stak­lingar sem hafa verið ákærðir af dóm­stólnum eru frá Afr­íku­löndum. Dóm­stóll­inn hefur verið umtal­aður sem verk­færi síð­lendu­stefnu (e. neo-colonialism) Vest­ur­landa og út frá ofan­nefndri töl­fræði mætti halda að stríðs­glæpir væru að mestu afrískt fyr­ir­brigði.

Þó eru góðar ástæður fyrir því að afrísk ríki fái mikla athygli frá dóm­stólnum; átök í álf­unni eru tíð og þar að auki eru fjöl­mörg dæmi um mann­rétt­inda­brot sem er hægt að tengja beint við hátt setta emb­ætt­is­menn, þjóð­höfð­ingja og skæru­liða­leið­toga. Áhersla dóm­stóls­ins hefur verið að reyna að sækja til saka ein­stak­linga af þessu tagi og þannig veita fórn­ar­lömbum málsvörn á hæstu stigum ábyrgð­ar­keðj­unnar. Þá hefur einnig reynst erfitt að hefja og fram­kvæma rann­sóknir á átaka­svæðum ann­ars staðar í heim­inum á borð við Afganistan, Kólumbíu og Palest­ínu.

Ljóst er að dóm­stóll­inn á í miklum vanda með það hvernig hann er skynj­aður og hefur honum ekki tek­ist á kljást við spurn­ing­una af hverju ein­blínt er á afrísk lönd á meðan leið­togar margra ann­arra valda­mik­illa landa virð­ast geta aðhafst án þess að þurfa að hræð­ast refs­ingu. Til dæmis kynnti dóm­stóll­inn undir þessa andúð þegar ákveðið var að ekki ákæra Tony Blair, fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra Bret­lands, í kjöl­far birt­ingu Chilcot-skýrsl­unnar fyrr á þessu ári sem varp­aði ljósi á mann­rétt­inda­brot fram­kvæmd af breskum her­mönnum í stríð­inu í Írak á fyrsta ára­tug þess­arar aldar. Hlutverk dóm­stóls­ins sem rétt­ar­leið til að takast á við alvar­leg­ustu mann­rétt­inda­brot um heim allan á undir högg að sækja og er ljóst að hann verður að snúa við blað­inu á næstu árum til að öðl­ast þá alþjóð­legu við­ur­kennd sem hann þarf til að geta starfað. Eins og allar alþjóða­stofn­anir er dóm­stóll­inn þó ekki skil­virk­ari en sam­starf aðild­ar­ríkja leyfir og ekki bætir fjar­vist Banda­ríkj­anna vægi hans – ólík­legt virð­ist að Donald Trump, nýkjör­inn for­seti Banda­ríkj­anna mun gera neitt til bæta þá stöðu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár