Þungaðar konur settar í óþægilega stöðu

Laun ljós­mæðra end­ur­spegla bæði virð­ing­ar­leysi gagn­vart verð­andi for­eldrum og störfum kvenna. Þetta segir þunguð kona sem skrif­aði stuðn­ings­yf­ir­lýs­ingu sem meira en 2.000 manns hafa skrifað undir á fáeinum dögum. Hún segir ótækt að þung­aðar konur, sem jafn­vel kvíða fæð­ingu, þurfi að ótt­ast það líka að það verði kannski aðeins lág­marks­mönnun og álag á ljós­mæðrum þegar að þeirra fæð­ingu kemur.

Gengin 32 vikur
Gengin 32 vikur Helga Bald­vins­dóttir Bjarg­ar­dóttir er ein fjöl­margra sem sýnt hafa kjara­bar­áttu ljós­mæðra stuðn­ing. Hún segir lítið gert úr með­göngu og fæð­ingu með því að hlúa ekki betur að stétt ljós­mæðra. Mynd: Heiða Helgadóttir

„Ef tekið væri mið af vinnu­tíma, álagi og ábyrgð, kröfum um færni og hæfni, ættu ljós­mæður að vera með hæst­laun­aða starfs­fólki lands­ins.“ Þetta segir Helga Bald­vins­dóttir Bjarg­ar­dóttir, sem er ein fjöl­margra kvenna sem sýnt hafa kjara­bar­áttu ljós­mæðra stuðn­ing með því að skrifa grein til að vekja athygli á mik­il­vægi þeirra. „Það verður sífellt meira áber­andi hvað við berum í raun og veru litla virð­ingu fyrir konum og kvenna­stéttum. Það á að semja við þær um laun í sam­ræmi við menntun þeirra og ábyrgð. Mér finnst líka gert lítið úr með­göngu og fæð­ingum, með því að hlúa ekki betur að þess­ari stétt. Það að eign­ast barn er eitt­hvað það stærsta sem maður gerir á ævinni. Maður leggur lík­ama sinn algjör­lega undir og er varn­ar­laus þegar lík­am­inn tekur yfir, til að nýtt líf geti komið í heim­inn. Það þarf sér­stakar mann­eskjur sem mæta konu á þessu augna­bliki,“ segir Helga Bald­vins­dóttir Bjarg­ar­dóttir.

…

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár