Miklu færri vilja frá Mexíkó til Bandaríkjanna eftir forsetaskipti

40 pró­sent fækkun varð á komum óskráðra inn­flytj­enda til Banda­ríkj­anna frá Mexíkó milli jan­úar og febr­úar, að sögn stjórn­valda í Banda­ríkj­unum.

Miklu færri óskráðir inn­flytj­endur komu til Banda­ríkj­anna frá Mexíkó í febr­úar síð­ast­liðnum en í jan­úar. Þetta segir John Kelly heima­varn­ar­ráð­herra í rík­is­stjórn Donalds Trump.

Að sögn Kelly fækk­aði inn­flytj­end­unum um 40 pró­sent milli mán­aða, eftir að Trump tók við emb­ætti þann 20. jan­úar og lof­aði að vísa úr landi miklum fjölda óskráðra inn­flytj­enda. Talið er að um ell­efu millj­ónir slíkra inn­flytj­enda séu í land­inu.

Það að meta fjöld­ann og breyt­ingar á honum er vand­kvæðum háð, en yfir­leitt er það gert út frá fjölda þeirra sem nást eða er komið í veg fyrir að fari yfir landa­mærin. Að sögn Kelly fækk­aði þessum til­vikum úr 31.578 í jan­úar í 18.762 í febr­úar. Hann sagði að venju­lega væri fækkun á milli þess­ara tveggja mán­aða, en hún væri 10 til 20 pró­sent sögu­lega séð.

Trump fyr­ir­skip­aði að byggja ætti vegg með­fram landa­mærum ríkj­anna tveggja þann 25. jan­úar síð­ast­lið­inn, eftir að hafa lofað því í kosn­inga­bar­átt­unni.

[adspot]

Fleiri fara en koma

Þróunin hefur verið þannig að fleiri mexíkóskir inn­flytj­endur hafa yfir­gefið Banda­ríkin á und­an­förnum árum en hafa sest þar að. Þetta sýndi rann­sókn Pew rann­sókn­ar­stöðv­ar­innar í Banda­ríkj­unum frá lokum árs 2015, en nið­ur­stöð­urnar eru þvert á það sem ætla mætti af umræð­unni sem hófst í kringum for­seta­kosn­ingar í Banda­ríkj­un­um. Ólög­legum inn­flytj­endum frá Mexíkó fer jafn­framt fækk­and­i.

Mexík­óar eru stærsti inn­flytj­enda­hóp­ur­inn í Banda­ríkj­un­um, hvort sem litið er til ólög­legra inn­flytj­enda eða skráðra. 28% allra inn­flytj­enda í Banda­ríkj­unum árið 2013 voru fæddir í Mexíkó sam­kvæmt opin­berum tölum og sam­kvæmt þeim tölu­legu gögnum sem til eru er tæp­lega helm­ingur ólög­legra inn­flytj­enda í land­inu frá Mexíkó, eða 5,6 millj­ónir manna.

Frá því að krepp­unni lauk um mitt ár 2009 hafa fleiri inn­flytj­endur frá Mexíkó farið aftur til síns heima en hafa komið til Banda­ríkj­anna. Ein milljón Mexík­óa, þar á meðal börn sem fædd­ust í Banda­ríkj­un­um, fór frá Banda­ríkj­unum og til Mexíkó á árunum 2009 til 2014, sam­kvæmt mexíkóskum gögn­um. Á sama tíma­bili komu 870 þús­und mexíkóskir rík­is­borg­arar til Banda­ríkj­anna frá Mexík­ó.

Ýmsar til­gátur eru uppi um ástæð­urnar fyrir því. Banda­ríska hag­kerfið náði sér ekki eins hratt á strik eftir krepp­una og það gæti hafa stuðlað að því að færri sjái sér hag í því að flytj­ast til Banda­ríkj­anna. Jafn­framt getur það hafa haft þau áhrif að mexíkóskir inn­flytj­endur hafi misst vinn­una og farið aftur heim. Þá hefur inn­flytj­enda­lögum verið fylgt harðar eft­ir, sér­stak­lega á landa­mær­unum við Mexíkó, og það hefur und­an­farin tíu ár skilað sér í því að fleirum er vísað úr landi. Engu að síður fór stærsti hluti þeirra sem héldu aftur til Mexíkó síð­ustu fimm ár af sjálfs­dáðum, sam­kvæmt mexíkóskum rann­sókn­um, og algeng­asta ástæðan var sögð fjöl­skyldu­sam­ein­ing.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár