Gagnrýnir lítið samráð í tengslum við „afgerandi“ breytingar á borginni

Í umsögn frá deild­ar­for­seta arki­tekt­úr­deildar LHÍ um breyt­ingar á aðal­skipu­lagi Reykja­víkur segir að við­mið um þétt­leika og hæð byggðar á nokkrum reitum virð­ist í ósam­ræmi við mark­mið aðal­skipu­lags­ins sem nú er í gildi.

Í athugasemd frá arkitektúrdeild LHÍ segir að þéttleiki sumra uppbyggingarreita í breyttu aðalskipulagi séu í mótsögn við markmið gildandi aðalskipulags borgarinnar.
Í athuga­semd frá arki­tekt­úr­deild LHÍ segir að þétt­leiki sumra upp­bygg­ing­ar­reita í breyttu aðal­skipu­lagi séu í mót­sögn við mark­mið gild­andi aðal­skipu­lags borg­ar­innar. Mynd: LHÍ

Arki­tekt­úr­deild Lista­há­skóla Íslands segir það vekja nokkra furðu hve lítið hafi farið fyrir kynn­ingu breyt­ing­ar­til­lagna að aðal­skipu­lagi Reykja­víkur fram til árs­ins 2040, í ljósi þess hve víð­tækt sam­ráð var haft um samn­ingu aðal­skipu­lags­ins 2010-2030.

Í athuga­semdum frá LHÍ um til­lögur til breyt­inga á aðal­skipu­lag­inu, sem Hildigunnur Sverr­is­dóttir deild­ar­for­seti arki­tekt­úr­deildar und­ir­ritar, segir að það veki einnig furðu að „miðað við þær mik­il­vægu og afger­andi breyt­ingar“ sem lagðar séu til sé ekki kallað eftir „meira almennu og fag­legu sam­ráði og sterkara fræði­legu grunn­lagi“.

„Það á ekki síst við á þar sem t.d. við­mið um íbúa­fjölda á hekt­ara er tvö- og jafn­vel þre­fald­aður á þétt­ustu reitum. Skipu­lagið mun bæði hafa afger­andi áhrif á vist­gæði þeirrar byggðar sem þar rís – en einnig hafa afger­andi áhrif á ásýnd borg­ar­innar,“ segir í umsögn­inni.

Þéttleiki á sumum reitum í talsverðu ósamræmi við markmið AR2030

Tölu­verðar athuga­semdir eru gerðar við þau áform um þétt­ingu byggðar sem fyr­ir­huguð eru á ein­staka upp­bygg­ing­ar­reitum í athuga­semd­inni frá arki­tekt­úr­deild LHÍ. Þannig segir að það sé nú horfið frá því, sem hafi verið meg­in­mark­mið í AR2030, að á nýju upp­bygg­ing­ar­svæði í Vatns­mýri verði bygg­ingar ekki hærri en 3-5 hæða. Þétt­ing­ar­svæði sem skil­greind séu í breyt­inga­til­lög­unni séu þess í stað „upp í 5-8 hæðir á mjög stórum reitum og önnur 9 hæðir og yfir“. Einnig segir að það megi „sæta nokk­urri furðu“ að bygg­ingar allt að átta hæðum séu ekki taldar til háhýsa.

Til við­bótar segir í umsögn­inni frá LHÍ að hug­myndir um þétt­ing­ar­svæði í kringum legu Borg­ar­línu í til­lögum nýja skipu­lags­ins séu „í tals­verðu ósam­ræmi við það aðal­skipu­lag sem sam­þykkt var árið 2014“ er varði við­mið um þétt­leika og að „til að tryggja sam­fé­lags­lega sátt til fram­tíðar hefði þurft víð­tæk­ari kynn­ingu og sam­tal við íbúa og hlut­að­eig­andi aðila og fag­að­ila á borð við arki­tekta um þá fram­tíð­ar­sýn“ sem birt­ist í nýju til­lög­unum.

Sól, skuggar og vindur

Þá er það sagt „áhuga­vert að ekki virð­ist hafa verið leitað sér­stak­lega til sér­fræð­inga í dags­ljósa­reikn­ingum og útreikn­ingum skugga­varps“ við vinn­una og að því sé „gjarnan haldið fram að íbúða­byggð á Íslandi ætti ekki að fara upp fyrir 3-5 hæðir til að halda opnum mögu­leikum fyrir að dags­ljós ber­ist á neðri hæðir fjöl­býl­is­húsa.“

Sama gildi síðan um „fræði­legar og fag­legar úttektir á veð­ur­fari og áhrifum þess þegar kemur að svo háum bygg­ingum í íslensku sam­hengi“ og bent er á að það sé „áhuga­vert nokk jafnan talið að óráð­legt“ að fara „yfir 3-5 hæðir í þéttu byggða­lagi hér­lendis.“[links]

Fagleg ráðgjöf arkitekta hafi ekki mælt með jafn þéttri byggð og lagt sé upp með

Í umsögn Hildig­unnar fyrir hönd LHÍ segir að hún hafi fengið þau svör á kynn­ing­ar­fundi um skipu­lagið þann 19. ágúst að arki­tekta­stofan Stika hafi verið kölluð til fag­legrar ráð­gjafar um breyt­ing­arnar á aðal­skipu­lag­inu. Hún segir það vel, en að fag­legur og fræði­legur grunnur undir skipu­lagið hefði að ósekju mátt vera meiri og víð­tæk­ari.

„Sam­an­tekt Stiku má finna sem við­auka við breyt­ing­ar­til­lög­una og ekki verður séð af henni að hún mæli fyrir svo þéttri og hárri byggð sem breyt­ing­ar­til­lagan leggur upp með og opnar í öllu falli fyrir,“ segir í umsögn Hildig­unnar, sem bætir við að ráð­gef­andi vinna arki­tekta­stof­unnar virð­ist ekki hafa skilað sér í bind­andi ákvæði um rým­is­gæði, svo ýtr­ustu fag­legu við­miðum verði gætt við skipu­lag reita.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár