Flokkur

Öryrkjar

Greinar

Forréttindi og fordómar eru staðreyndir
Freyja Haraldsdóttir
Pistill

Freyja Haraldsdóttir

For­rétt­indi og for­dómar eru stað­reyndir

„Ég er svo fegin þegar ég sé að fólk verður reitt, þegar fólk tekur hluti alvar­lega,“ segir Freyja Har­alds­dóttir, um for­rétt­indi og for­dóma. Í kjöl­far ummæla sem fjöl­miðla­mað­ur­inn Sindri Sindra­son lét falla í frétta­tíma Stöðvar 2 um að hann gæti ekki verið í for­rétt­inda­stöðu því hann til­heyrði mörgum minni­hluta­hópum hefur mikil umræða skap­ast í kringum for­rétt­indi. Freyja er tals­kona femínísku fötl­un­ar­hreyf­ing­ar­innar Tabú og segir frá því hvernig hún telur að margir séu að mis­skilja þetta hug­tak, og hversu mik­il­vægt hún telur að jað­ar­settir hópar sýni að þeim stendur ekki á sama þegar reynslu­heimur þeirra er rengdur.
Niðurlægingin: Þau verst settu eru skilin eftir
Úttekt

Nið­ur­læg­ingin: Þau verst settu eru skilin eftir

Öryrkjar eru brot­hættur hópur fólks á jaðri fátæktar. Flókið almanna­trygg­inga­kerfi, lágur örorku­líf­eyrir, nið­ur­læg­ing og skömm er raun­veru­leiki okkar allra við­kvæm­ustu ein­stak­linga. Vegna kerf­is­ins geta þeir neyðst til að senda barn sitt út af heim­il­inu eða skilja við maka sinn á gam­als aldri til að forð­ast skerð­ing­arnar. Þingmenn hafa fengið fimmt­án­falda kjara­bót á við öryrkja á kjör­tíma­bil­inu.
Fyrirhugaðar breytingar á lögum um almannatryggingar atvinnuletjandi
Fréttir

Fyr­ir­hug­aðar breyt­ingar á lögum um almanna­trygg­ingar atvinnu­letj­andi

Ellen Calmon, for­maður Öryrkja­banda­lags Íslands, segir sjón­ar­mið líf­eyr­is­þega ekki hafa hlotið áheyrn í nefnd um end­ur­skoðun laga um almanna­trygg­ingar og ótt­ast afleið­ing­arnar verði til­lögur nefnd­ar­innar að veru­leika. Frumvarp sem bygg­ist á til­lögum nefnd­ar­innar er í und­ir­bún­ingi hjá félags­mála­ráðu­neyt­inu og verður lagt fyrir Alþingi fyrir næstu kosn­ingar. Lagt er til að breyt­ing­arnar taki gildi um næstu ára­mót.
Fátæku börnin
Úttekt

Fátæku börnin

Sautján ára stúlka sem býr við sára fátækt seg­ist finna fyrir for­dómum frá jafn­öldrum vegna aðstæðna hennar. Hún á aðeins eitt par af skóm og götótt föt. Samkvæmt skýrslu UNICEF má gera ráð fyrir að 6.100 börn líði skort hvað varðar fæði, klæði og hús­næði hér á landi. Þar af líða tæp­lega 1.600 börn veru­legan skort. Barna­fá­tækt stafar af því að for­eldrar hafa ekki fram­færslu sem dugar til að mæta grunn­þörfum barna sinna – og þar standa líf­eyr­is­þegar verst. Erfiður hús­næð­is­mark­aður setur einnig stórt strik í reikn­ing­inn en meg­in­þorri örorku­líf­eyr­is­þega býr við íþyngj­andi hús­næð­is­kostnað og flestir eru á leigu­mark­aði. Stundin ræddi við ein­stæðar mæður á örorku­líf­eyri um bar­átt­una við að tryggja börnum þeirra áhyggju­lausa æsku.

Mest lesið undanfarið ár