Flokkur

Hælisleitendur

Greinar

Viðtal

Sögð njóta sömu rétt­inda og grískir rík­is­borg­arar í Grikk­landi

Tvær fjöl­skyldur frá Írak, með þrjár ungar stúlkur á sínu fram­færi, voru ekki metnar í nægi­lega við­kvæmri stöðu til að þeim yrði veitt alþjóð­leg vernd á Íslandi. Senda á fjöl­skyld­urnar aftur til Grikk­lands, þar sem þær bjuggu áður í tjaldi í á þriðja ár, við afar slæman aðbúnað. Í fjöl­skyld­unni eru ein­stak­lingar sem eiga við alvar­leg and­leg og lík­am­leg veik­indi að stríða, auk þess sem ein stúlkan, Fatima, glímir við fötlun eftir að hafa orðið fyrir sprengju­árás í æsku.

8 mín. lestur

Úttekt

Sárþjáð sam­fé­lag sem heims­byggðin hefur brugð­ist

Sam­fé­lagið á eynni Lesbos er und­ir­lagt sorg, ótta og eymd. Það sem mætir flótta­fólki sem taldi sig vera að kom­ast í skjól frá stríði er annar víg­völlur. Umheim­ur­inn hefur brugð­ist fólki sem flýr stríð og það er geð­þótta­á­kvörðun að hundsa hjálp­ar­kall fólks í neyð. Þau ríki sem senda fólk aftur til Grikk­lands eru ábyrg fyrir því þegar slæmt ástand verður enn verra. Þetta er meðal þess sem við­mæl­endur Stund­ar­innar sem starfa fyrir hjálpar- og mann­úð­ar­sam­tök segja um ástandið í Grikk­landi þessa dag­ana.

14 mín. lestur

FréttirCovid-19

Óttast að smit­ast af covid-19 á Ásbrú

Hæl­is­leit­endur sem dvelja í hús­næði Útlend­inga­stofn­unar að Ásbrú í Reykja­nesbæ ótt­ast covid-19 smit og forð­ast margir að nota sam­eig­in­lega eld­hús­að­stöðu. Í fjöl­menn­asta úrræði stofn­un­ar­innar búa sjö­tíu og sex karl­menn tveir og tveir saman í her­bergi. Upp­lýs­inga­full­trúi Útlend­inga­stofn­unar segir það gilda um íbúa á Ásbrú eins og aðra, að þeir verði að leggja sitt að mörkum til að minnka líkur á smiti.
Fréttir

Börn verða send til Grikk­lands í fyrsta sinn á morgun

Ungir for­eldrar frá Írak með fjögur börn verða að óbreyttu sendir til Grikk­lands á morgun. Þrátt fyrir að mörgum fjöl­skyldum hafi að und­an­förnu verið synjað um vernd hér hefur ekk­ert barn verið sent til Grikk­lands, enn sem komið er. Tals­maður Rauða kross­ins segir mikið óvissu­á­stand ríkja þar. Þrjú Evr­ópu­ríki hafa tekið ákvörðun um að taka við fólki frá Grikk­landi, vegna þess.

Mest lesið undanfarið ár