Sárþjáð samfélag sem heimsbyggðin hefur brugðist

Sam­fé­lagið á eynni Lesbos er und­ir­lagt sorg, ótta og eymd. Það sem mætir flótta­fólki sem taldi sig vera að kom­ast í skjól frá stríði er annar víg­völlur. Umheim­ur­inn hefur brugð­ist fólki sem flýr stríð og það er geð­þótta­á­kvörðun að hundsa hjálp­ar­kall fólks í neyð. Þau ríki sem senda fólk aftur til Grikk­lands eru ábyrg fyrir því þegar slæmt ástand verður enn verra. Þetta er meðal þess sem við­mæl­endur Stund­ar­innar sem starfa fyrir hjálpar- og mann­úð­ar­sam­tök segja um ástandið í Grikk­landi þessa dag­ana.

Sárþjáð samfélag sem heimsbyggðin hefur brugðist
Hólpin, en aðeins í skamma stund Sýr­lenskir flótta­menn lenda frá Tyrk­landi á grísku eyj­unni Lesbos. Mynd: Páll Stefánsson

„Fólki er refsað fyrir að flýja stríðs­á­tök og reyna að koma sér og ást­vinum sínum í skjól. Skila­boðin til þeirra frá umheim­inum eru skýr: það er ekki pláss fyrir ykkur í „okkar“ heimi!“ segir kanadískur læknir sem hefur starfað í Moria-flótta­manna­búð­unum í Lesbos. 

Hinn 27. febr­úar síð­ast­lið­inn til­kynntu tyrk­nesk stjórn­völd að þau ætl­uðu ekki lengur að hefta för flótta­fólks sem vill kom­ast til Evrópu en landa­mærin hafa verið lokuð í fjögur ár. Um þrjár og hálf milljón flótta­manna frá Sýrlandi eru í Tyrk­landi. Sama dag og landa­mærin voru opnuð þyrpt­ist flótta­fólk í þús­unda­tali að landa­mær­unum til að reyna að kom­ast yfir til Grikk­lands. Stefnan er tekin á Evrópu þar sem flest fólkið vill kom­ast í skjól eftir ára­langa nauð­ung­ar­vist í óhrjá­legum búðum í Tyrk­landi. En í Grikk­landi hefur þeim verið mætt af mik­illi hörku síð­ustu vikur.  Þung­vopn­aðir grískir landamæra­verðir hafa sprautað táragasi yfir fólk og hafa svarað grjót­kasti flótta­fólks með …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár