Systk­inin Þau bíða þess að verða send til Grikk­lands ásamt ungum for­eldrum sínum. Mynd: Úr einkasafni

„Ákaflega ómannúðleg aðgerð“

Sex manna fjöl­skylda frá Írak bíður þess að verða fyrsta barna­fjöl­skyldan sem vísað er úr landi til Grikk­lands, þar sem aðstæður flótta­fólks fara versn­andi dag frá degi. Lög­fræð­ingur hjá Rauða kross­inum segir að þessi ákvörðun marki tíma­mót í með­ferð útlend­inga­mála hér á landi.

Fyr­ir­huguð brott­vísun sex manna íra­skrar fjöl­skyldu til Grikk­lands í næstu viku brýtur í bága við þá laga­skyldu stjórn­valda að hafa hags­muni barna að leið­ar­ljósi við alla ákvarð­ana­töku. Þetta segir Magnús Norðdahl, lög­maður fjöl­skyld­unnar. Sema Erla Serdar, stofn­andi hjálp­ar­sam­tak­anna Solaris sem berj­ast fyrir hæl­is­leit­endur og flótta­fólk, segir að brott­vís­unin stríði gegn almennu við­horfi í sam­fé­lag­inu. Sífellt fleiri séu mót­fallnir því að ákvarð­anir sem þessar séu teknar.

Í fjöl­skyld­unni eru for­eldr­arnir Mohammed og Wedyan og börnin fjögur, þau Ali, Kayan, Saja og Jadin, sem eru á aldr­inum eins til níu ára. Ástæða þess að vísa á þeim til Grikk­lands er að þar í landi hafa þau fengið við­ur­kennda stöðu flótta­fólks. Fjölmörg mann­úðar- og hjálp­ar­sam­tök hafa ítrekað bent á að aðstæður flótta­fólks þar séu með öllu óboð­legar, jafn­vel hættu­legar, og þeim sem þangað verði sendir bíði ómann­úð­legar aðstæður.

Vísa átti fjöl­skyld­unni úr landi í gær, fimmtu­dag­inn 4. mars, en því var …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár