Flokkur

Erlent

Erlent

Par skotið til bana eftir að hafa myrt fjórtán í San Bernardino

Syed Farook og Tashfeen Malik myrtu fjórtán manns og særðu 17 í árás í hús­næði In­land Reg­i­onal Center, sem er þjón­ustumiðstöð fyr­ir fólk með þroska­skerðingu í San Bernardino-borg í Kaliforníu, í gær. Farook og Malik voru vopnuð árásarriflum og skamm­byssum. Þá fannst sprengi­efni á staðnum, en það var gert óvirkt eftir að árásinni var lokið. Parið lést eftir skot­bardaga við...
Erlent

Mark Zuckerberg ætlar að gefa 99 prósent af hlut sínum í Facebook til góðgerðar­mála

Mark Zuckerberg, stofnandi of forstjóri Facebook, og eiginkona hans Pricilla Chan ætla að gefa 99 prósent af virði hlutar þeirra í Facebook til góðgerðar­mála. Hluturinn er sem stendur metinn á 45 milljarða dali, tæplega sex þúsund milljarða króna. Þetta tilkynnti Zuckerberg í opnu bréfi til nýfæddrar dóttur sinnar, Max, sem hann birti á Facebook-síðu sinni í kvöld.
Erlent

Obama: Allt eða ekkert fyrir framtíð mannkyns

Barack Obama, Bandaríkja­forseti, ávarpaði loftslags­ráðstefnu Sameinuðu þjóðanna við upphaf leiðtoga­fundarins á þessum fyrsta degi ráðstefn­unnar í París. Hann lagði áherslu á að góð niður­staða ráðstefn­unnar sé það eina sem bjargar framtíð mann­kynsins. Leiðtogar 150 ríkja heims koma nú saman í París. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson er fulltrúi Íslands. „Getum við ímyndað okkur betri umbun en það að börnin okkar og kynslóðirnar...
Erlent

Adele setur sölumet - Seldi 3,4 milljónir eintaka í Banda­ríkjunum af 25 á einni viku

Breska söngkonan Adele seldi 3,4 milljónir eintaka af nýrri plötu sinni, 25, á fyrstu vikunni sem hún var í sölu. Platan kom formlega út 25. nóvember, en platan var til sölu á völdum stöðum nokkrum dögum fyrr. Aldrei hefur plata selst jafn hratt í Banda­ríkjunum, frá því formlegar mælingar hófust árið 1991, á fyrstu viku í sölu, samkvæmt frétt frá...
Erlent

Donald Trump hæddist að fötlun blaða­manns New York Times

Bandaríska dagblaðið New York Times hefur gagnrýnt Donald Trump og kallað hann „svívirði­legan“ (e. outrageous) eftir að Trump, sem sækist eftir því að verða forseta­fram­bjóðandi repúblikana, hæddist að einum blaða­manna blaðsins og virtist herma eftir fötlun hans. Frá þessu er greint í The Guardian. Í ræðu sem Trump hélt á þriðjudags­kvöld hæddist Trump að Serge Kovaleski, blaða­manni New York Times,...
Erlent

Spennan magnast milli Rússa og Tyrkja - Eftir­lifandi flugmaður segist hafa verið í lofthelgi Sýrlands

Flugmaður sem komst lífs af, þegar herþota rússneska hersins var skotin niður af tyrkneska hernum í fyrradag, segir það af og frá að tíu til tólf viðvaranir hafi borist, eins og yfirvöld í Tyrklandi hafa haldið fram, og svo sé það ekki rétt að þotan hafi verið skotin niður í Tyrklandi, heldur hafi það gerst í lofthelgi Sýrlands. Þar hafi...
Erlent

Bretar ætla að gefa túrtappa­skatttekjur í góðgerðarmál

George Osborne, fjármála­ráðherra Breta, tilkynnti í dag að Bretland muni gefa allar skatt­tekjur vegna skatts sem lagður er á túrtappa og dömubindi til góðgerðar­mála í þágu kvenna. Þetta kom fram í ræðu sem hann flutti í dag um framgang fjárhags­áætlunar ríkis­stjórnar Íhalds­flokksins. Um er að ræða 15 milljónir punda á ári, eða um þrjá milljarða króna. Frá þessu er greint...

Mest lesið undanfarið ár