Flokkur

Erlent

Erlent

Captagon: Dópið sem stríðs­mennirnir bryðja

Hvað fær ungt fólk til þess að vígbúast, jafnvel sprengja sig í loft upp? Ráðast á eigið fólk? Þetta er ein af stóru spurningum vikunnar. Það er fátt um svör. Einhverjir tala um tryllta hugmynda­fræði, fátækt, stríð, erjur, stétta­skiptingu og svo auðvitað ýmsar sálar­flækjur. Við getum líka bætt við einni tilgátunni: Captagon. Lítil og saklaus pilla en sérstak­lega áhrifa­ríkt og...
Erlent

Höfuð­paurinn Abdel Abaaoud

Lögreglan í París komst á sporið um miðstöð hryðju­verka­mannanna í Saint-Denis eftir að hafa fundið grun­samlegan farsíma fyrir utan tónleika­staðinn Bataclan. Í aðgerðum lögreglunnar síðastliðið þriðjudags­kvöld féll sá sem sagður er sjálfur höfuð­paurinn: Abdel Abaaoud. Hann er talinn hafa skipulagt árásirnar 13. nóvember og jafnvel verið með fleiri hryðju­verk í bígerð. Hugsanlega í fjármála­hverfi borgarinnar. Hann er fæddur 1987 og...
ÚttektStríðið gegn ISIS

Við mættum brjáluðu hafinu, en erum nú komin í skjól

Þúsundir sýrlenskra flótta­manna koma til höfuð­borgar Þýska­lands í viku hverri. Kanslari Þýska­lands hefur gefið það út að engin takmörk séu fyrir því hversu mörgum flótta­mönnum landið getur tekið á móti. Þessir nýju íbúar Berlínar koma sumir hverjir saman í menningar­miðstöðinni Salam í úthverfi borgarinnar. Þar er spilað, sungið og skeggrætt um stjórnmál. Þrátt fyrir erfið­leika og óvissu eftir langt og strangt ferðalag er þakklæti ofarlega í huga þessa fólks.

16 mín. lestur

Erlent

Boko Haram valdur að fleiri dauðsföllum en Íslamska ríkið

Hryðjuverka­samtökin Boko Haram urðu fleirum að bana í fyrra en öll önnur hryðjuverka­samtök í heiminum, þar með talið hið svokallaða Íslamska ríki. Boko Haram bar ábyrgð á dauða 6.664 einstaklinga í fyrra en Íslamska ríkið 6.073, að því er fram kemur í nýrri skýrslu Institute of Economics and Peace, sem New York Times greinir frá. Samanlagt bera hryðjuverka­samtökin tvö ábyrgð...
Erlent

Kastrup opnaður á ný - ekkert fannst í töskunni

Verið er að opna flugstöð 3 á Kastrup-flugvelli á nýjan leik eftir að henni var lokað í morgun vegna grun­sam­legrar tösku. Ekkert vafasamt fannst í töskunni. Bæði sprengju­leitar­hundar og sprengju­leitar­vélmenni skoðuðu töskuna og fundu ekkert. Taskan fannst í flugstöð 3, þar sem Icelandair er með sína aðstöðu á flug­vellinum. Guðjón Arngrímsson, upplýsinga­fulltrúi Icelandair, sagði í samtali við RÚV að hann...

Mest lesið undanfarið ár