Captagon: Dópið sem stríðsmennirnir bryðja

Captagon sem fannst í Líbanon, og hafði komið frá Sýrlandi.
Captagon sem fannst í Líbanon, og hafði komið frá Sýrlandi. Mynd: EPA

Hvað fær ungt fólk til þess að víg­bú­ast, jafn­vel sprengja sig í loft upp? Ráðast á eigið fólk? Þetta er ein af stóru spurn­ingum vik­unnar. Það er fátt um svör. Ein­hverjir tala um tryllta hug­mynda­fræði, fátækt, stríð, erjur, stétta­skipt­ingu og svo auð­vitað ýmsar sál­ar­flækjur.

Við getum líka bætt við einni til­gát­unni: Captagon.

Lítil og sak­laus pilla en sér­stak­lega áhrifa­ríkt og ávana­bind­andi lyf, fram­leitt í Sýrlandi og víðar. Þetta lyf hefur fund­ist í hryðju­verka­mönnum, það er afar algengt meðal stríðs­manna Íslamska rík­is­ins, sem bryðja það víst eins og kandís. Þetta dóp er það sem helst heldur stríð­inu gang­andi, segja sér­fræð­ingar – það breytir sak­lausu fólki í trylltar dráps­vélar.

Í borg­ara­styrj­öld gilda engin lög, sið­ferð­is­mörk hafa verið afmáð. Þannig er ástandið í Sýrlandi. Óöld. Einn angi þess er smygl. Gíf­ur­legt magn af ólög­legum varn­ingi rennur gegnum landið: byssur, vopn og svo auð­vitað líka vin­sæl­asti smygl­varn­ingur heims: eit­ur­lyf.

Eitt vin­sælasta dópið er captagon; afar kröft­ugar og örvandi amfetamíntöflur – áður þekkt sem fenet­hylline. Það deyfir allan sárs­auka og til­finn­ingar, menn geta vakað dögum saman – meitt og drepið annað fólk án nokk­urrar sam­visku.

Stríðs­menn Íslamska ríks­ins og við­mæl­endur í heim­ilda­mynd, sem sýnd var í breska rík­is­út­varp­inu í sept­em­ber, segja m.a. um captagon:

„Þú getur ekki sofið, þú getur ekki einu sinni lokað aug­unum. Það er ekk­ert sem getur stöðvað þig.“

„Eins og þú eigir heim­inn. Hafir yfir­nátt­úru­lega krafta sem eng­inn annar hefur. Mjög góð til­finn­ing.“

„Eftir að maður tekur captagon hverfur öll hræðsla.“

Frétta­skýrendur BBC og Reuters hafa sagt að eitt af ein­kennum stríðs­ins í Sýrlandi sé „spítt-fyll­er­íið“ – neyslan og fram­leiðslan sé gíf­ur­leg. Þetta var sömu­leiðis þekkt í síð­ari heim­styrj­öld­inni þar sem amfetamínn­eysla var algeng hjá her­mönnum, sér í lagi hjá nas­istum, en síð­ustu ár stríð­ins voru her­menn nán­ast mataðir á amfetamíni. Hitler gekk á spítti, sem á margan hátt skýrir hvernig geð­veiki hans magn­að­ist síð­ustu árin.

Stjórn­ar­her­inn í Sýrlandi er sagður dreifa captagoni á meðal her­manna sinna – þannig geti menn barist dögum saman. Stöðugar til­raunir séu svo gerðar til þess að gera lyfið öfl­ug­ara og áhrifa­rík­ara.

Captagon hefur verið til í hálfa öld – upp­runið á Vest­ur­löndum og var notað sem ofvirkni- og þung­lynd­is­lyf. Það er mjög ávana­bind­andi og var af þeim sökum bannað í flestum ríkjum heims upp úr 1980.

En captagon hvarf samt aldrei alveg.

Þótt að íslamskar víga­sveitir bryðji captagonið ákaft er samt stærsti neyslu­hóp­ur­inn í Sádi-Arabíu. Þriðj­ungur alls þess captagons sem árlega er neytt í heim­inum fer þangað, eða um sjö tonn. Talið er að um 40 til 50 þús­und manns leiti sér hjálpar í Sádi-Arabíu á hverju ári vegna ofneyslu captagons . Í Islam er áfengis- og dóp­neysla for­dæmd, en margir líta ekki á captagon sem dóp. Það er ekki reykt eða sett í sprautu, svo það er fyrst og fremst álitið sem lyf. Þeir her­menn sem ekki eru ákafir í trúnni – en þeim mun ákaf­ari í slátrun – eru sagðir öfl­ug­ustu neyt­end­urnir. Sturl­aðir og útúr­dóp­aðir morð­ingjar.

Lyfið er ekki ein­ungis fram­leitt í Sýrlandi, heldur sömu­leiðis fram­leitt og smyglað frá Evrópu og öðrum nágranna­löndum. Eins og í öðrum eit­ur­lyfja­við­skiptum er gróðra­vonin mikil, en mikið er um ódýra og vafa­sama fram­leiðslu. Því eru einnig stór­hættu­legu efni í umferð. Mikil neysla getur haft alvar­legar afleið­ingar; valdið geð­trufl­unum og heilaskaða. Við mikla neyslu verður fólk sturlað og borðar ekki né sefur dögum saman.

Í heim­ild­ar­mynd BBC segir einn við­mæl­end­anna um captagon-fíklana:

„Við börðum þá – og þeir fundu ekki fyrir sárs­auka. Sumir hlógu bara við þung högg og bar­smíðar. Þá létum við þá vana­lega dúsa inni í klefa í tvo sól­ar­hringa. Þá rann af þeim og auð­veld­ara var að eiga við þá.“

Fyrr­ver­andi víga­maður Íslamska rík­is­ins segir um captagon:

„Þetta er hið full­komna stríðs­dóp. Það gefur manni yfir­nátt­úr­lega krafta og hug­rekki. Yfirmenn hvöttu okkur til þess að taka það. Þeir sögðu það gefa okkur orku og hug­rekki. Þú getur yfir­bugað tíu manns. Þú þarft ekki að sofa né borða, finnur ekki fyrir hræðslu eða þreytu. Við vissum aldrei bein­línis hvað þetta var – lyf eða orkupilla – við bara tókum þetta. En við urðum strax háðir þessu. Það er eig­in­lega vanda­málið.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár