Rússnesk orrustuþota skotin niður í Sýrlandi

Tyrkir segja Rússa hafa brotið loft­helgi sína. Rússar vilja rann­saka áður en þeir fella dóma. NATO-ríki hefur aldrei fyrr skotið beint á Rússa.

Myndband sýnir þotuna hrapa til jarðar.
Myndband sýnir þot­una hrapa til jarðar. Mynd: EPA

Tyrknesk yfir­völd segj­ast hafa grandað rúss­neskri orr­ustu­þotu með flug­skeytum eftir að hún flaug inn í tyrk­neska loft­helgi í morgun. Á Twitter hafa birst mynd­bönd af þot­unni hrapa til jarðar og af því sem talið er vera flug­menn­irnir tveir í fall­hlífum. Er þetta í fyrsta sinn sem með­limur NATO á í beinum átökum við Rússa. Frá þessu er meðal ann­ars greint á The Guardian.

Varn­ar­mála­ráðu­neyti Rúss­lands segir orr­ustu­þotu sína aldrei hafa farið inn í loft­helgi Tyrkja, það sýni fluggögn. Á meðan Vest­ur­lönd fljúga flug­vélum sínum frá Tyrk­landi til þess að hæfa skot­mörk í Sýrlandi, hafa Rússar flogið frá her­svæði sínu við sýr­lenskar strendur Mið­jarð­ar­hafs­ins. Ráðu­neytið segir þotu sína að öllum lík­indum hafa verið skotna niður með flug­skeyti frá jörðu. Enn sé verið að kanna ástand flug­mann­ana og hvernig þot­unni hafi veirð grandað. Samkvæmt yfir­lýs­ingu frá stjorn­völdum í Tyrk­landi þá flaug þotan inn í loft­helgi lands­ins.

[adspot]

Heim­ildir innan skrif­stofu for­seta Tyrk­lands, Recep Tayyip Erdogan, þá var rúss­neska þotan af SU-24 gerð.

Hér er talið að um flug­menn­ina sé að ræða og að þeir hafi stungið sér úr flug­vél­inni áður en hún féll til jarðar:

Þó Banda­ríkin hafi ekki átt þátt í þessu atviki þá er til­efni til að ryfja upp yfir­lýs­ingar bæði Rússa og Branda­ríkja­manna um að jafn­vel þó bæði löndin kasti sprengjum á hið svo­kall­aða Íslamska ríki í Sýrlandi og Írak, þá muni ríkin forð­ast að lenda í beinum átökum eða verða í vegi hvors ann­ars. Ekkert sam­starf eða sam­ráð hefur verið milli NATO-ríkj­anna og Rúss­lands um loft­árás­irnar. Eftir hryðju­verka­árás­irnar í París fyrir rúmri viku hafa frétta­skýrendur hins vegar gert að því skóna að hugs­an­lega væri verið að und­ir­búa sam­starf.

Frekari fréttir verða færðar þegar þær ber­ast.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár